Íslenski boltinn

„Við ætlum að vinna rest“

Árni Gísli Magnússon skrifar
Sigurður Höskuldsson er staðráðinn í að bjarga Þór frá falli.
Sigurður Höskuldsson er staðráðinn í að bjarga Þór frá falli. Hulda/Vísir

Þór hafði betur gegn ÍBV, 1-0, í fallbaráttuslag Bestu deildarinnar fyrir norðan í dag.Vonir Þórs um að forðast fall lifa á meðan ÍBV er fallið.

Sigurður Höskuldsson, þjálfari Þórs, var ánægður með frammistöðuna í dag.

Ertu búinn að ná þér niður eftir þessari lokamínútur?

„Já já ég er búinn að því. Himinlifandi með frammistöðuna í dag, hún var frábær og sérstaklega fyrri hálfleikurinn skóp þennan sigur þar sem við vorum miklu betra liðið. Allt sem við lögðum upp með einhvern veginn svínvirkaði. Leikmennirnir gerðu þetta bara frábærlega vel, vorum mjög orkumiklir, pressan frábær. Varnarleikurinn, þeir fá varla upphlaup á okkur, bara ótrúlega svekkjandi að vera ekki meira en 1-0 yfir í hálfleik því mér fannst við vera skila frammistöðu sem ætti að vera tvö, þrjú núll yfir í hálfleik.“

„Í seinni hálfleik þá eigum við náttúrulega tvö færi bara eiginlega fyrir opnu marki sem hefði getað lokað þessu þannig að pínu svekkjandi að hafa bara ekki klárað það. Á hinn bóginn þeir fá varla færi, það er eitthvað svona boltinn skoppandi eftir föst leikatriði annars bara var varnarleikurinn í dag stórkostlegur.“

ÍBV skoraði tvívegis en í bæði skiptin í ólöglega þar sem í fyrra skiptið var brot og seinna skiptið rangstaða. Sigurður segir ekki hafa verið stutt á milli og leikurinn þ.a.l. geta endað með jafntefli.

„Nei nei, það er augljóst að þessu mörk áttu ekki að standa þannig þú getur bara kastað honum inn ef þú ætlar að skora eitt mark og segja bara heyrðu við skoruðum eitt en mér fannst við bara verðskulda þennan sigur mjög.“

Tveir úrslitaleikir framundan

Hvernig undirbúið þið ykkur fyrir þessa tvo úrslitaleiki sem eru eftir?

„Bara svipað og þennan; við ætlum bara eins og ég sagði fyrir leik við ætlum að keyra á þetta, við ætlum að sækja þessa sigra, við ætlum að vinna rest og frábær byrjun á því plani hérna í dag. Ef við vinnum síðustu tvo leikina myndi ég halda að við verðum áfram í deildinni á næsta tímabili.“

ÍBV er fallið og ljóst að annað hvort Þór eða KA fylgir Eyjamönnum niður þar sem FH er gott sem hólpið eftir sigur þeirra á Val í dag.

„Já sem er ótrúlegt og ótrúlega svekkjandi að það skuli vera staðan því að þessir leikir sem eru búnir að vera hérna er búin að vera frábær skemmtun og frábær upplifun fyrir bæjarbúa. Svekkjandi að annað liðið þurfi að fara niður en við ætlum að vinna þá baráttu“, sagði Sigurður að lokum.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×