Erlent

Gerðu hús­leit hjá þing­konu sem Trump á sök­ótt við

Kjartan Kjartansson skrifar
Ilhan Omar kallar fram í stefnuræðu Trump forseta á Bandaríkjaþingi í febrúar. Trump hefur óbeit á Omar og fleiri frjálslyndum þingkonum Demókrataflokksins af innflytjendaættum.
Ilhan Omar kallar fram í stefnuræðu Trump forseta á Bandaríkjaþingi í febrúar. Trump hefur óbeit á Omar og fleiri frjálslyndum þingkonum Demókrataflokksins af innflytjendaættum. Vísir/EPA

Bandarískir alríkisfulltrúar gerðu húsleit á heimili Ilhan Omar, þingkonu Demókrataflokksins, í tengslum við sakamálarannsókn á meintu skjalafalsi. Donald Trump forseti hefur ítrekað sagt að Omar ætti að fara úr landi.

Fox News-sjónvarpsstöðin, sem er nátengd Trump og Repúblikanaflokknum, hefur eftir heimildarmönnum sínum að húsleitin tengist sakamálarannsókn á umsókn um dvalarleyfi Omar sem faðir hennar fyllti út þegar hún var barn.

Fjölskylda Omar kom til Bandaríkjanna sem flóttamenn frá Sómalíu þegar hún var þrettán ára gömul. Hún er fyrsti Bandaríkjamaðurinn af sómölskum uppruna sem nær kjöri á Bandaríkjaþing.

Dómsmálaráðuneytið segir að húsleitin á heimili Omar í Washington-borg snemma í morgun hafi verið gerð á grundvelli leitarheimildar sem dómstóll gaf út. Útsendar heimavarnaráðuneytis Bandaríkjanna gerðu húsleitina. Leitin er sögð tengjast sakamálarannsókn.

Tom Homan, sérstakur erindreki Trump í landamæramálum, sagði að Omar væri til rannsóknar í september. Repúblikanar hafa haldið uppi samsæriskenningum um að Omar hefði gifst bróður sínum til þess að fá bandarískan ríkisborgararétt. Hún hefur ítrekað vísað því alfarið á bug.

Trump hefur ítrekað ráðist á Omar í ræðu og riti og kallað eftir því að henni verði vísað frá Bandaríkjunum. Repúblikana hefur meðal annars dreymt um að Trump geti svipt Omar ríkisborgararétti og rekið úr landi.

Sómalskir innflytjendur almennt hafa verið í skotlínu Trump undanfarin misseri, meðal annars vegna umfangsmikils fjársvikamáls í Minnesota, heimaríki Omar. Þá var Sómalía á meðal ríkja sem Trump kallaði „skítaholur“ á fyrra kjörtímabili sínu.

Ríkisstjórn Trump hefur beitt sakamálarannsóknum sem vopni gegn pólitískum andstæðingum í auknum mæli að undanförnu. Alríkissaksóknarar hafa þó ítrekað verið gerðir afturreka með saksóknir, þar á meðal á hendur James Comey, fyrrverandi forstjóra alríkislögreglunnar, og Letitiu James, dómsmálaráðherra New York-ríkis, sem stefndi Trump á sínum tíma.

J.D. Vance, varaforseti Trump, sagði í maí að hann grunaði að maðkur væri í mysu Omar en að allir ættu rétt á réttlátri málsmeðferð.

„Þannig að við ætlum að rannsaka það. Við ætlum að líta á það. Ef við teljum að glæpur hafi verið framinn munum við ákæra vegna hans,“ sagði varaforsetinn þá.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×