Áhrifavaldar já, Gestgjafinn nei Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir skrifar 12. október 2026 14:17 Ég las viðtal Vísis við Sigríði Dögg Auðunsdóttur, formann Blaðamannafélags Íslands, frá 4. október og staldraði við eitt dæmi. Formaðurinn sagði Gestgjafann vissulega fjölmiðil en bætti við: „Jú, jú, þar eru einhverjar greinar sem blaðamenn vinna en mestmegnis er þetta miðlun á uppskriftum.“ Í sama viðtali sagði hún að fréttamennska væri bara ein tegund af blaðamennsku. Hún taldi hlaðvarpsfólk og myndatökumenn til blaðamennsku og benti á að úti í heimi væri fjöldi áhrifavalda sem væru blaðamenn. Áhrifavaldur getur sem sagt verið blaðamaður. Blaðamaður á ritstjórn Gestgjafans, sem greiðir félagsgjöld til BÍ og starfar eftir siðareglum félagsins, skrifar hins vegar „einhverjar greinar“ innan um uppskriftir. Ég átta mig ekki á því hvaða mælikvarða formaðurinn notar, en hún er þarna að flokka eigin félagsmenn. Þeir sem skrifa um stýrivexti eru í efsta flokki og þeir sem skrifa um mat í öðrum. Hvar lenda þá íþróttafréttamenn, menningarblaðamenn eða þeir sem skrifa um heilsu og ferðalög? Stéttarfélag á að standa með öllum sínum félagsmönnum, ekki raða þeim upp eftir því hversu merkilegt viðfangsefnið þykir. Tímasetningin gerir þetta verra. Úthlutunarnefnd um stuðning við einkarekna fjölmiðla hefur í frummati komist að því að efni Vikunnar og Húsa og híbýla, systurblaða Gestgjafans, teljist ekki fréttir. Formaðurinn segir sjálf í viðtalinu að héraðsmiðlar „sem stunda alvöru blaðamennsku“ þurfi stuðning og að gerð sé krafa til þess. Þegar formaður blaðamanna talar um alvöru blaðamennsku og gerir lítið úr tímaritunum er ekki skrýtið að nefndin dragi sömu línu. Formaðurinn ætti að fletta Gestgjafanum. Þar eru viðtöl við matreiðslumenn, bændur og framleiðendur, umfjöllun um veitingastaði og fólkið sem rekur þá, um nýsköpun í matargerð, ræktun, matarmenningu og ferðalög. Þetta efni hefur fengið aukið vægi á síðustu árum einmitt vegna þess að uppskriftirnar eru komnar á netið. Fólk kaupir blaðið fyrir viðtölin og umfjöllunina. Þegar Morgunblaðið eða Vísir skrifa um mat og landbúnað kallast það blaðamennska. Ég sé ekki af hverju það breytist þegar sérhæft tímarit gerir það betur. Einhver þarf að borga fréttirnar Þessi ummæli sýna líka lítinn skilning á því hvernig fjölmiðlar eru reknir. Einkarekinn fjölmiðill lifir á áskrifendum og auglýsendum, og þeir greiða fyrir heildina. Það er einmitt efnið sem formaðurinn gerir lítið úr, viðtölin, maturinn, hönnunin og mannlífið, sem heldur ritstjórnunum gangandi og borgar laun blaðamannanna sem skrifa fréttirnar. Formaðurinn segir réttilega að blaðamennska sé ekki ókeypis. Ríkisstuðningurinn greiðir aðeins hluta af kostnaði ritstjórnar. Það er ekki nóg að styrkja bara fréttirnar, einhver þarf líka að borga þær, og hjá einkareknum miðlum eru það lesendur og auglýsendur. Ef efnið sem fólk vill borga fyrir er ekki talið með er verið að saga greinina sem blaðamennskan situr á. Ég minnist þess að fréttasíður Fréttablaðsins voru ekki sérlega eftirsóttar hjá auglýsendum, nema fremstu síðurnar, og samt var allt efnið frítt. Formaðurinn kallar fall blaðsins risastóran skell í viðtalinu, og það var það. En það sýnir líka að fréttir einar og sér standa ekki undir rekstri fjölmiðils. Það sama sást hjá Sýn í haust, þegar kvöldfréttir í sjónvarpi voru lagðar niður eftir að áður hafði verið hætt með fréttir um helgar og á hátíðisdögum. Formaðurinn segir það mistök og að gildi fréttanna verði „ekkert metið í einhverjum debet- og kreditdálkum“. Ég skil hvað hún á við, en þannig virkar rekstur ekki. Þegar fréttatími stendur ekki undir sér þarf eitthvað annað að borga fyrir hann, og hjá einkareknum miðlum er það efnið sem fólk sækir í og auglýsendur vilja vera nálægt. Skráning er ekki ókeypis Formaðurinn sagðist ekki kippa sér upp við að fjölmiðlanefnd vilji skrá hlaðvarpsfólk sem fjölmiðla, enda „kostar ekki einu sinni neitt að skrá sig sem fjölmiðil“. Það er ekki rétt. Skráningu fylgja skyldur samkvæmt fjölmiðlalögum: að tilkynna ábyrgðarmann, eignarhald og ritstjórnarstefnu, tilkynna sölu á hlut innan tveggja virkra daga, skila árlegri skýrslu til fjölmiðlanefndar, setja reglur um ritstjórnarlegt sjálfstæði og svara fyrirspurnum nefndarinnar. Við hjá Birtíngi gerum þetta ár eftir ár. Fyrir tvo vini sem spjalla saman í hlaðvarpi er þetta ekki lítið mál, og ég tel að fólk eigi sjálft að fá að ráða því hvort það gangist undir þetta eftirlit. Formaðurinn segir að fjölmiðlanefnd hafi farið út fyrir verksvið sitt þegar hún fór að meta hvernig fjölmiðlar fjalla um mál, og þar er ég sammála henni. Hún segir líka að það sem skipti máli sé tilgangurinn með því sem miðlað er og að unnið sé eftir siðareglum, ekki miðlunarleiðin. Þá hlýtur Gestgjafinn að standast prófið, unninn af blaðamönnum á ritstjórn eftir siðareglum BÍ. Blaðamannafélagið berst fyrir öflugri fjölmiðlun, segir formaðurinn. Það gerum við líka. Öflug fjölmiðlun er fjölbreytt, og blaðamennirnir sem skrifa um mat, hönnun og mannlíf eiga heima í þeirri baráttu. Ég vona að félagið þeirra standi með þeim. Höfundur er eigandi og framkvæmdastjóri Birtíngs útgáfufélags. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Fjölmiðlar Mest lesið Ert þú gervigreindarsóði? Marín Jónsdóttir Skoðun Gervigreind, til góðs?Gervigreind, til góðs? Ketill Berg Magnússon Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen Skoðun Foreldraupplifun Sólný Pálsdóttir Skoðun Forsætisráðherra endurskrifar söguna og snýr staðreyndum á hvolf Pétur Óskarsson Skoðun „Við“ skiptaráð Dofri Hermannsson Skoðun Að eldast er að lifa Halldór S. Guðmundsson,Sirrý Sif Sigurlaugardóttir Skoðun Vegna eða „vegna“ ferðamanna Ragnar Lúðvík Jónsson Skoðun Bláskógaskatturinn hefur áhrif víða Sveinn Ægir Birgisson Skoðun Bannað að plata Ágúst Elvar Bjarnason Skoðun Skoðun Skoðun Fimm mýtur um vændi Drífa Snædal skrifar Skoðun Hvað kostar að gera vinnustað mannlegri? Ragnhildur Bjarkadóttir skrifar Skoðun Líknarslæving, dánaraðstoð og rétturinn til að velja Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Vegna eða „vegna“ ferðamanna Ragnar Lúðvík Jónsson skrifar Skoðun Gervigreind, til góðs?Gervigreind, til góðs? Ketill Berg Magnússon skrifar Skoðun Ert þú gervigreindarsóði? Marín Jónsdóttir skrifar Skoðun Smjörklípa Þorgerðar Hjörvar Sigurðsson skrifar Skoðun Þegar undantekningarnar verða að stefnu Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Foreldraupplifun Sólný Pálsdóttir skrifar Skoðun Til varnar tímanum Eva Harðardóttir,Katrín Ólína Pétursdóttir skrifar Skoðun Forsætisráðherra endurskrifar söguna og snýr staðreyndum á hvolf Pétur Óskarsson skrifar Skoðun Það á að vera gott að eldast á Íslandi Ólafur Þór Gunnarsson,Regína Ásvaldsdóttir skrifar Skoðun Hver reiknar raunverulegan kostnað hagræðingar? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Einkunnakvarði er ekki námsmat! Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Áframhaldandi skilningsleysi nýliða Kristín Helga Schiöth skrifar Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar Skoðun Er að eignast barn samfélagsleg busun? Stefnir Húni Kristjánsson skrifar Skoðun Jöfn laun eiga ekki að ráðast af tilviljun Kolbrún Halldórsdóttir skrifar Skoðun Bannað að plata Ágúst Elvar Bjarnason skrifar Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar Skoðun Látum Loftbrúna vera Sindri S. Kristjánsson skrifar Skoðun Öryggi í umferð framtíðarinnar Jón Gunnar Jónsson skrifar Skoðun „Við“ skiptaráð Dofri Hermannsson skrifar Skoðun Bláskógaskatturinn hefur áhrif víða Sveinn Ægir Birgisson skrifar Skoðun Skrýtnir útreikningar og fjármálalæsi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Er mynstrið þitt nægilega djúpt? Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Geimvera lendir á Íslandi Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Tvískinnungur ættjarðarástar Gunnlaugur Stefánsson skrifar Skoðun Íslenska Z-kynslóðin hefur hægt um sig Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Ég hata þessa manneskju út af lífinu! Hermann Stefánsson skrifar Sjá meira
Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen Skoðun
Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar
Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar
Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen Skoðun