Fótbolti

Ein­kunnir Ís­lands: Þrjár stóðu upp úr í veislunni í Dalnum

Íþróttadeild Vísis skrifar
Sveindís Jane Jónsdóttir og Glódís Perla Viggósdóttir stigu sigurdans í lokin.
Sveindís Jane Jónsdóttir og Glódís Perla Viggósdóttir stigu sigurdans í lokin. vísir/Anton

Ísland tryggði sér í kvöld örugglega sæti í úrslitaeinvígi umspils um sæti á Heimsmeistaramóti kvenna í knattspyrnu sem fram fer í Brasilíu á næsta ári. Ísland vann 5-0 sigur á Króatíu á Laugardalsvelli og mætir að öllum líkindum Portúgal í einvígi um sæti á HM.

Stelpurnar okkar höfðu mikla yfirburði á Laugardalsvelli í kvöld og sóttu nánast linnulaust að marki Króatíu allan leikinn.

Eftir mörk frá Hlín Eiríksdóttur og Ídu Marín Hermannsdóttur í fyrri hálfleik var aldrei spurning hvoru megin sigurinn myndi enda og Katla Tryggvadóttir bætti þriðja markinu við í síðari hálfleik áður en varamaðurinn Diljá Ýr Zomers skoraði tvö mörk undir lokin.

Hér fyrir neðan má sjá einkunnir stelpnanna okkar í leiknum í kvöld.

Einkunnir Íslands 

Fanney Inga Birkisdóttir, markvörður (6)

Hafði afskaplega lítið að gera í markinu. Þurfti aldrei að verja skot, var áhorfandi lengst af en greip vel inn í þau fáu skipti sem þess var krafist.

Arna Eiríksdóttir, hægri bakvörður (6)

Reyndi lítið á hana en stóð fyrir sínu. Var ekki mikið með í sóknarleiknum á hægri kantinum en lenti ekki í neinum vandræðum í varnarleiknum, frekar en aðrir leikmenn íslenska liðsins.

Glódís Perla Viggósdóttir, miðvörður (fyrirliði) (7)

Það reyndi ekki mikið á fyrirliðann okkar í miðri vörninni í 150. landsleiknum fyrir Íslands hönd. Hún var dugleg að stýra sínum leikmönnum og ógnandi í föstum leikatriðum eins og vanalega.

Diljá Ýr Zomers kom inn á sem varamaður og skoraði tvö mörk.vísir/Anton

Guðrún Arnardóttir, miðvörður (6)

Þurftu sjaldan eða aldrei að taka á honum stóra sínum en það segir okkur einfaldlega hversu mikla yfirburði varnarmenn okkar höfðu gegn króatísku sóknarmönnunum.

Hafrún Rakel Halldórsdóttir, vinstri bakvörður (7)

Var örugg í sínum aðgerðum og tók í nokkur skipti þátt í sóknarleiknum. Átti frábæran klobba í seinni hálfleiknum þegar hún fór illa með einn króatíska varnarmanninn. Örugg í sínum aðgerðum í dag.

Sveindís Jane Jónsdóttir, hægri vængmaður (8)

Komst oft í góðar stöður hægra megin og hefði stundum mátt nýta þær betur. Lagði upp fyrir Ídu Marín og svo aftur fyrir Kötlu á afar smekklegan hátt. Góð frammistaða heilt yfir og sífelld ógn af Sveindísi á hægri kantinum.

Alexandra Jóhannsdóttir, miðjumaður (6)

Myndaði þríeyki á miðjunni ásamt Karólínu Leu og Kötlu. Var tengiliður við vörnina, hljóp mikið og gaf króatísku leikmönnunum ekki færi á að byggja upp eitt né neitt.

Katla Tryggvadóttir skoraði frábært mark.Vísir/Anton Brink

Katla Tryggvadóttir, miðjumaður (7)

Hún nýtti tækifærið sem hún fékk vel. Var mikið í boltanum, barðist eins og ljón og gaf ekki tommu eftir á miðjunni. Hún skoraði sitt fyrsta landsliðsmark með góðu skoti úr teignum.

Karólína Lea Vilhjálmsdóttir, miðjumaður (6)

Oft hefur farið meira fyrir Karólínu Leu en í kvöld. Hljóp mikið og átti gott skot í fyrri hálfleiknum sem fór rétt fram hjá markinu. Skilaði því sem ætlast var til af henni.

Karólína Lea Vilhjálmsdóttir mundar skotfótinn.vísir/Anton

Hlín Eiríksdóttir, vinstri vængmaður (7)

Var hættuleg á vinstri kantinum og augljóslega full sjálfstrausts. Fékk gott skallafæri snemma en braut síðan ísinn fyrir Ísland með góðu marki.

Ída Marín Hermannsdóttir, sóknarmaður (8)

Fékk tækifærið í byrjunarliðinu og lét heldur betur til sín taka. Hún klikkaði á dauðafæri í upphafi leiks en áður en fyrri hálfleikur var á enda hafði hún bæði lagt upp mark fyrir Hlín og skorað sitt fyrsta landsliðsmark. Hún var dugleg að fá boltann í fætur og koma sér í réttar stöður.

Varamenn 

Birta Georgsdóttir kom inn á fyrir Ídu Marín Hermannsdóttur á 64. mínútu (7).

Átti þátt í marki Diljár með fínum spretti upp hægri kantinn. Kom boltanum síðan á Líf sem átti stoðsendinguna á Diljá.

Emilía Kiær Ásgeirsdóttir kom inn á fyrir Kötlu Tryggvadóttur á 64. mínútu (6).

Var áræðin í þau skipti sem hún fékk boltann og dugleg að setja pressu á króatísku varnarmennina.

Diljá Ýr Zomers kom inn á fyrir Hlín Eiríksdóttur á 74. mínútu (8).

Skoraði tvö mörk seint í leiknum og gerði það sem varamenn eiga að gera, setti mark sitt á leikinn og það af krafti.

Líf Joostdóttir Van Bemmel lék sinn fyrsta A-landsleik í kvöld.vísir/Anton

Emilía Óskarsdóttir kom inn á fyrir Sveindísi Jane Jónsdóttur á 80. mínútu.

Spilaði ekki nóg til að fá einkunn.

Líf Joostdóttir Van Bemmel kom inn fyrir Örnu Eiríksdóttur á 80. mínútu.

Lagði upp mark Diljár með fínni sendingu úr teignum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×