Til hamingju... með hvað? Einar Jóhannes Guðnason skrifar 14. október 2026 12:01 Við Íslendingar höfum svo sannarlega fengið að kynnast frasa- og umbúðapólitík undanfarin ár. Stjórnmálamenn keppast við að setja aðgerðir sínar og ástand raunveruleikans í fallegar umbúðir en þegar betur er að gáð kemur í ljós að innihaldið er lítið sem ekkert. Við erum í raun farin að kjósa yfir okkur samskiptafulltrúa sem telja hlutverk sitt vera að búa til glansmyndir framar því að framkvæma í þágu íbúa. Því miður er þessi pólitík að opinberast í Kópavogsbæ og er nýjasta dæmið fréttatilkynning bæjarins um PISA-niðurstöður grunnskólanna undir fyrirsögninni: „Kópavogur meðal fremstu sveitarfélaga landsins í PISA 2025“. Í tilkynningunni er vitnað í bæjarstjóra sem segir niðurstöðurnar endurspegla öflugt starf og fagmennsku starfsfólks. Í framhaldinu kepptust fulltrúar Sjálfstæðisflokksins við að deila fréttinni og fagna árangrinum. Ég verð þó að draga í efa að þessir sömu fulltrúar hafi gefið sér tíma til að lesa niðurstöðurnar. Hefðu þeir lesið PISA-skýrsluna hefðu þeir séð að 41% nemenda í Kópavogi ná ekki grunnhæfni í lesskilningi. Hlutfallið er 34% í náttúruvísindum og 32% í stærðfræði. Á sama tíma teljast aðeins 2% nemenda afburðanemendur í lesskilningi, 2% í náttúruvísindum og 5% í stærðfræði. Við erum því ekki aðeins að bregðast þeim nemendum sem dragast aftur úr, heldur einnig þeim sem hafa burði til að skara fram úr. Er það í alvöru fagnaðarefni að þriðjungur nemenda nái ekki grunnhæfni í stærðfræði og náttúruvísindum? Að það styttist í að helmingur nemenda nái ekki grunnhæfni í lesskilningi? Sjálfstæðisflokkurinn virðist telja svo vera svo lengi sem Kópavogur mælist yfir landsmeðaltalinu á Íslandi. Landsmeðaltali sem hefur hrakað verulega undanfarinn áratug. Það er ekki eins og það vanti tillögur að úrbótum. OECD hefur bent á mikilvægi samræmdra mælinga á námsárangri, aukinnar áherslu á grunnfög, bætts stuðnings við nemendur og endurskoðunar kennsluhátta. Miðflokkurinn í Kópavogi hefur þegar kallað eftir endurskoðun á framkvæmd skóla án aðgreiningar, samræmdum prófum og minni notkun snjalltækja í skólastarfi, við litlar undirtektir. Því miður virðast varðhundar núverandi skólakerfis hafa meiri áhuga á að verja fyrirkomulagið en að horfast í augu við raunveruleikann. Það er löngu tímabært að við hættum að láta þá sem hafa hæst ráða ferðinni. Þeir hafa fengið sínu framgengt og sjáið bara afraksturinn. Við rekum eitt dýrasta menntakerfi heims og því verður ekki endalaust hægt að halda því fram að lausnin felist einfaldlega í auknu fjármagni. Það þarf að þora að endurskoða framkvæmdina, mæla árangurinn og setja menntun barnanna okkar í fyrsta sæti. Í stað þess að óska sjálfum sér til hamingju ætti meirihlutinn í Kópavogi að taka niðurstöðurnar alvarlega og hefjast handa við nauðsynlegar úrbætur. En kannski er þetta einhvers konar satíra af hálfu Sjálfstæðisflokksins. Þessar PISA-niðurstöður eru vissulega sögulegar fyrir Kópavog, árangurinn hefur aldrei verið verri. „Til hamingju.“ Höfundur er bæjarfulltrúi Miðflokksins í Kópavogi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Einar Jóhannes Guðnason Mest lesið Ert þú gervigreindarsóði? Marín Jónsdóttir Skoðun Vegna eða „vegna“ ferðamanna Ragnar Lúðvík Jónsson Skoðun Fimm mýtur um vændi Drífa Snædal Skoðun Forsætisráðherra endurskrifar söguna og snýr staðreyndum á hvolf Pétur Óskarsson Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen Skoðun „Við“ skiptaráð Dofri Hermannsson Skoðun Foreldraupplifun Sólný Pálsdóttir Skoðun Að eldast er að lifa Halldór S. Guðmundsson,Sirrý Sif Sigurlaugardóttir Skoðun Gervigreind, til góðs?Gervigreind, til góðs? Ketill Berg Magnússon Skoðun Bannað að plata Ágúst Elvar Bjarnason Skoðun Skoðun Skoðun Götu hvað? Ebba Margrét Magnúsdóttir skrifar Skoðun Afmælisdagur á ekki að tefja skólagöngu Hrönn Stefánsdóttir skrifar Skoðun Fimm mýtur um vændi Drífa Snædal skrifar Skoðun Hvað kostar að gera vinnustað mannlegri? Ragnhildur Bjarkadóttir skrifar Skoðun Líknarslæving, dánaraðstoð og rétturinn til að velja Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Vegna eða „vegna“ ferðamanna Ragnar Lúðvík Jónsson skrifar Skoðun Gervigreind, til góðs?Gervigreind, til góðs? Ketill Berg Magnússon skrifar Skoðun Ert þú gervigreindarsóði? Marín Jónsdóttir skrifar Skoðun Smjörklípa Þorgerðar Hjörvar Sigurðsson skrifar Skoðun Þegar undantekningarnar verða að stefnu Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Foreldraupplifun Sólný Pálsdóttir skrifar Skoðun Til varnar tímanum Eva Harðardóttir,Katrín Ólína Pétursdóttir skrifar Skoðun Forsætisráðherra endurskrifar söguna og snýr staðreyndum á hvolf Pétur Óskarsson skrifar Skoðun Það á að vera gott að eldast á Íslandi Ólafur Þór Gunnarsson,Regína Ásvaldsdóttir skrifar Skoðun Hver reiknar raunverulegan kostnað hagræðingar? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Einkunnakvarði er ekki námsmat! Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Áframhaldandi skilningsleysi nýliða Kristín Helga Schiöth skrifar Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar Skoðun Er að eignast barn samfélagsleg busun? Stefnir Húni Kristjánsson skrifar Skoðun Jöfn laun eiga ekki að ráðast af tilviljun Kolbrún Halldórsdóttir skrifar Skoðun Bannað að plata Ágúst Elvar Bjarnason skrifar Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar Skoðun Látum Loftbrúna vera Sindri S. Kristjánsson skrifar Skoðun Öryggi í umferð framtíðarinnar Jón Gunnar Jónsson skrifar Skoðun „Við“ skiptaráð Dofri Hermannsson skrifar Skoðun Bláskógaskatturinn hefur áhrif víða Sveinn Ægir Birgisson skrifar Skoðun Skrýtnir útreikningar og fjármálalæsi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Er mynstrið þitt nægilega djúpt? Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Geimvera lendir á Íslandi Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Tvískinnungur ættjarðarástar Gunnlaugur Stefánsson skrifar Sjá meira
Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen Skoðun
Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar
Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar
Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen Skoðun