Körfubolti

Drungilas tvífótbrotinn

Sindri Sverrisson skrifar
Adomas Drungilas verður lengi frá keppni.
Adomas Drungilas verður lengi frá keppni. vísir/Anton

Körfuboltalið Tindastóls varð fyrir miklu áfalli þegar miðherjinn stóri og stæðilegi Adomas Drungilas meiddist illa í leik við Njarðvík í síðustu viku. Nú er orðið skýrara hve alvarleg meiðslin eru.

Það sást vel í beinni útsendingu þegar Drungilas lenti illa og sneri upp á hægri ökklann við lendinguna. Hann var þá strax fluttur á sjúkrahús.

Það snerist illa up á ökklann hjá Drungilas og hælbeinið tvíbrotnaði.Skjáskot/Sýn Sport

Ljóst er að Litháinn er með tvö brot í hælbeini og hann fór í myndatöku á Sjúkrahúsinu á Akureyri í dag til að kanna slit á liðböndum. Þetta staðfesti Arnar Guðjónsson þjálfari Tindastóls við Vísi nú síðdegis en þá lá ekki fyrir niðurstaða varðandi liðböndin.

Engu að síður er ljóst að Drungilas verður frá keppni í langan tíma og hann byrjar á að missa af leiknum við Ármenninga í kvöld.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×