Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Freyja Þórisdóttir skrifar 16. október 2026 21:43 Lucky Aiyedatiwa, fylkisstjóri Ondo-fylkis, fyrir miðju, heimsækir slysstað ATR-42-flugvélar nígeríska flughersins sem fórst í Igbokoda í Nígeríu þann 5. október 2026. AP Meira en vika er liðin síðan tuttugu og fimm létust eftir að flugvél nígeríska flughersins fórst en enn er leitað að braki úr vélinni og leifum hinna látnu. Aðstæður á svæðinu hafa gert björgunarstarfsfólki erfitt fyrir en flugvélin brotlenti í mýrlendi á afskekktu svæði í suðvesturhluta Nígeríu. Um borð voru nítján hermenn og sex óbreyttir borgarar.
Er þetta meðal þess sem kemur fram í umfjöllun fréttaveitunnar Reuters um málið en þar segir einnig að fjölskyldur farþeganna bíði óþreyjufullar svara frá yfirvöldum. Bola Tinubu forseti Nígeríu hafi fyrirskipað rannsókn á flugslysinu, þann 5. október, en ættingjar hafi fengið litlar upplýsingar um orsök þess, hvort líkamsleifar hafi verið auðkenndar eða hvernig björgunarstarfinu miði áfram. Var að íhuga rútuferð frekar Þá á vélin að hafa verið á leið frá Benínborg til Lagos þegar hún, samkvæmt upplýsingum frá nígeríska flughernum, fórst á afskekktu svæði í suðvesturhluta Nígeríu eftir að ratsjársamband rofnaði. Fréttaritari Reuters náði tali af hugbúnaðarforritara í London, Victor Anii, en hann segir óvissuna hafa aukið á sorgina yfir missi eldri systur hans, Esther Anii, liðþjálfa í nígeríska flughernum. Þegar hann hafi vaknað þann 5. október hafi beðið hans skilaboð frá henni þar sem hún hafi beðið hann að senda sér pening fyrir rútuferð. Hún hafi sagt honum að hópurinn hefði þurft að gera hlé á ferðalagi sínu í Benínborg vegna bilunar í flugvél. Hún var orðin þreytt á biðinni og íhugaði að halda ferðinni áfram landleiðina. Nokkrum klukkustundum síðar hafi Anii borist fréttir af því að flugvél flughersins sem flaug á milli borganna tveggja, sömu og systir hans þurfti að komast á milli, hefði farist. „Dugar ekki til“ „Við vissum ekki hvað var í gangi. Við vissum bara að við náðum ekki í hana og eiginmaður hennar náði ekki í suma vini sína sem voru um borð,“ sagði Anii við Reuters. Það hafi svo ekki verið fyrr en daginn eftir, þegar flugherinn hafi birt lista yfir þá sem voru um borð, að fjölskyldan hafi komist að því að Esther hefði verið á meðal hinna látnu. Anii, sem hafi verið að eigin sögn verulega ósáttur við það sem hann taldi slæma upplýsingagjöf yfirvalda, hafi birt myndband á netinu þar sem hann gagnrýndi framkomu flughersins við fjölskyldurnar eftir slysið. Tveimur dögum síðar, að hans sögn, heimsótti yfirmaður í flughernum heimili foreldra hans í Abuja með tvö umslög. Í öðru var samúðarbréf. Fjölskyldan opnaði ekki hitt umslagið því hana grunaði að í því væru peningar. „Hvað sem er í því dugar ekki til að taka sársaukann frá fjölskyldu minni,“ sagði hann.
Lögreglumál Nígería Flug Umferðaröryggi Mest lesið Sjö ára dómur Innlent Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Erlent „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Innlent Sögulegur dómur fyrir námsmenn í Hæstarétti Innlent Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Innlent Gul viðvörun gefin út fyrir landið allt Veður Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Erlent Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað Innlent Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Innlent Ekki ástæða til að rýma bankann Innlent Fleiri fréttir Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Deilt um sönnunargögn og mögulegan vitorðsmann Norðmaður í tuttugu ára fangelsi í Bretlandi vegna leigumorðs Landtökumenn börðu og rændu ljósmyndara Washington Post „Atkvæði gegn Kanada er hættuleg blekking“ Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Árásarmaðurinn sextán ára Skipun um að hægja á Starshield hafi komið úr Hvíta húsinu Minnst fjórir féllu í skotáras í Oregon Lést í stormi í Færeyjum Hættir við að skjóta Hasan í beinni Biðja viðskiptavini að vera á varðbergi Andersson hafnað í sænska þinginu Hófu aftur árásir á olíuvinnslur í Rússlandi Eldur í ráðuneyti og banka í óeirðum í Tirana Tuttugu og sjö nemendur látnir eftir að þak skóla hrundi „Þessi ákvörðun mun kosta mörg mannslíf“ Bækur Rooney teknar úr sölu í Bretlandi Umsátur opinberar skuggastríð málaliða Gefur í skyn að bandarísk stjórnvöld hafi sett takmarkanir á Úkraínumenn Brösugleg byrjun hjá nýjum talsmanni Trumps Handteknir fyrir að féfletta NATO-skip í Noregi Fundu elsta skipsflak heims Árásum fjölgar og Íranir ætla að loka Hormússundi aftur Takmarkanir á Starlink í Úkraínu: „Þetta getur ekki verið tilviljun“ Yfir hálf milljón án rafmagns í Kænugarði eftir árásir Rússa í nótt Segja hálfa milljón hafa tekið þátt Styður Repúblikana með tugum milljarða Sjá meira