Erlent

Neyðar­lending eftir sprengju­hótun

Bjarki Sigurðsson skrifar
Austrian Airlines er í eigu Lufthansa.
Austrian Airlines er í eigu Lufthansa. Getty/Graham Hughes

Flugvél Austrian Airlines á leið frá Ísrael til Austurríkis þurfti óvænt að lenda á flugvelli í Búlgaríu eftir sprengjuhótun. Málið er nú til rannsóknar. 

MiG-29-þotur búlgarska hersins fylgdu vélinni á flugvöllinn í Sofia, höfuðborg Búlgaríu. Engar frekari upplýsingar hafa verið gefnar út um eðli hótunarinnar, hvort hún hafi komið frá farþega eða einhver hafi hringt í flugfélagið er óvitað. 

Eftir að vélinni var lent var farþegum gert að yfirgefa hana og leituðu yfirvöld að sprengju en fundu ekkert. Einungis þrjátíu mínútur liðu frá því að hótunin barst og þar til allir farþegar voru komnir úr vélinni. 

Stutt er síðan aðstoðarflugmaður vélar Flydubai lagði á ráðin um hryðjuverk og réðst á flugstjóra vélarinnar með neyðaröxi. Hann hafði ætlað að brotlenda vélinni. Sú vél var á leið til Tel Avív í Ísrael. Vél Austrian Airlines var einmitt á leið frá Tel Avív.


Tengdar fréttir

Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk

Aðstoðarflugmaður í flugi Flydubai FZ1073, sem var á leið frá Dúbaí til Tel Avív á miðvikudag, lagði á ráðin um hryðjuverk. Hann réðst á flugstjórann inni í flugstjórnarklefanum með neyðaröxi og reyndi að brotlenda flugvélinni en farþegar og áhöfn yfirbuguðu hann. Alls voru ríflega hundrað og sjötíu manns um borð í vélinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×