Mikilvægt er að draga lærdóm af smáíbúðamálinu i Hafnarfirði Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar 20. október 2026 08:32 Meirihluti Samfylkingar, Viðreisnar og Sjálfstæðisflokks í Hafnarfirði hefur ákveðið að falla frá áformum um uppbyggingu íbúða fyrir tímabundna búsetu við Krýsuvíkurveg og Hvaleyrarvatnsveg. Kröftug mótmæli bæjarbúa við hugmyndinni liggja að baki þeirri ákvörðun. Á íbúafundi í síðustu viku komu fram fjölmargar málefnalegar athugsemdir við áformin og yfir 3000 manns hafa nú ritað nafn sitt á undirskriftarlista og mótmælt þeim. Kjörnum fulltrúum ber að hlusta og bregðast við þegar afstaða íbúa er jafn skýr og í þessu tilfelli. Það hefur merihlutinn nú gert og það er mikilvægt. Samningur undirritaður með fyrirvara um samþykki bæjarstjórnar Forsagan er sú að málið kom fyrst inn til umræðu fyrir tæpu ári síðan en kemur þó ekki opinberlega til umræðu fyrr en 17. september síðastliðinn á fundi bæjarráðs. Þá var lagður fram fullbúinn samningur milli aðila til afgreiðslu. Fulltrúar meirihlutans og Framsóknarflokksins samþykktu samninginn á fundinum, vísuðu málinu til bæjarstjórnar og samningur milli aðila var í kjölfarið undirritaður með fyrirvara um samþykki bæjarstjórnar. Andstaða við verkefnið og vinnubrögðin Í mínum huga hafa íbúar ekki bara fyrirvara um verkefnið sem slíkt. Þeir gera einnig athugsaemdir við það hvernig málið er unnið og að samningurinn hafi ekki verið kynntur áður en hann var samþykktur í bæjarráði. Íbúasamráð á að fara fram í aðdraganda ákvörðunar en ekki eftir að ákvörðun liggur fyrir. Það er grundvallaratriði og þess vegna er að finna í samþykktum bæjarins ákvæði um að íbúar geti krafist íbúakosningar séu þeir ósáttir við ákvörðun sem á endanum er tekin. Það er hins vegar neyðarventill sem ætlað er að tryggja það að bæjarstjórn vandi ákvarðanir sínar og íbúasamráð. Nauðsynlegt að draga lærdóm af málinu Það er mikilvægt að við sem stýrum bæjarfélaginu drögum lærdóm af málinu. Við eigum að tryggja aðkomu bæjarbúa að málum eins og þessu á fyrri stigum þeirra. Samráðið á ekki að fara af stað eftir að niðurstaða liggur fyrir. Tryggja verður að allur undirbúningur og samráð við íbúa sé eins vandað og mögulegt er. Það er grundvallaratriði sem við eigum að halda í heiðri í öllum okkar störfum í bæjarstjórn. Þannig komum við í veg fyrir þá stöðu sem upp kom eftir fund bæjarráðs 17. september síðastliðinn. Íbúasamráð er grundvallaratriði í stjórnun sveitarfélags Virkt samráð við íbúa og íbúalýðræði er mikilvæg forsenda fyrir vandaðri ákvarðantöku. Bæjarstjórn verður einfaldlega að taka mið af því í störfum sínum að ákvarðanir hennar hafa í mörgum tilfellum áhrif á nærumhverfi fólks og þá skiptir öflugt samráð við íbúa öllu máli. Þess vegna verður að vanda það og tryggja að það fari fram á réttum tíma þannig að íbúar hafi tækifæri til þess að koma sínum sjónarmiðum á framfæri áður en ákvörðun er tekin. Höfundur er bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar í Hafnarfirði. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Árni Rúnar Þorvaldsson Hafnarfjörður Mest lesið Gott bú stendur undir sér Róbert Ragnarsson Skoðun Börn þurfa úrræði, ekki innantóm loforð Ása Berglind Hjálmarsdóttir Skoðun Fæðingarorlof fyrir ömmu og afa? Magnea Gná Jóhannsdóttir Skoðun Þegar samþykki virðist verða að ábyrgð brotaþola Herdís Ósk Sveinbjörnsdóttir Skoðun Af þreyttasta frumvarpi íslenskrar þingsögu Árni Guðmundsson Skoðun Að byrja á röngum enda – vítahringur vímuefnavanda, afbrota og refsinga Margrét Dís Yeoman Skoðun Skörum fram úr í skaðlegu skattaumhverfi Elliði Vignisson Skoðun Hver ætlar að hjúkra þér? Helga Rósa Másdóttir Skoðun Hvers vegna skiptir bókun 35 máli? Eiríkur S. Svavarsson Skoðun Mikilvægt er að draga lærdóm af smáíbúðamálinu i Hafnarfirði Árni Rúnar Þorvaldsson Skoðun Skoðun Skoðun Úr öskunni í eldinn Ingveldur Anna Sigurðardóttir skrifar Skoðun Hamfarir í hversdagslegum kringumstæðum Sanna Magdalena Mörtudóttir skrifar Skoðun Heimilin eiga ekki alltaf að borga brúsann Alexander M. Árnason skrifar Skoðun Fleiri krónur taldar – fáar nýjar Daði Freyr Ólafsson skrifar Skoðun „The Concert of Three“. Samráð stórveldanna þriggja – ný leið til heimsfriðar? Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Mikilvægt er að draga lærdóm af smáíbúðamálinu i Hafnarfirði Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun Farsælt ferðalag fólks og fisks Heiðrún Lind Marteinsdóttir skrifar Skoðun Orkan í ólgusjó efnahagsmála Tinna Traustadóttir skrifar Skoðun Fæðingarorlof fyrir ömmu og afa? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Gott bú stendur undir sér Róbert Ragnarsson skrifar Skoðun Loksins get ég notið þess að vera heima Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar samþykki virðist verða að ábyrgð brotaþola Herdís Ósk Sveinbjörnsdóttir skrifar Skoðun Sama fötlun en ólík réttindi - Aldurinn ræður úrslitum - Ásta Ólafsdóttir skrifar Skoðun Umskiptingar Flokks fólksins á Alþingi Júlíus Valsson skrifar Skoðun Okkar fé í Heimum Bergur Hauksson skrifar Skoðun Hver ætlar að hjúkra þér? Helga Rósa Másdóttir skrifar Skoðun Er alveg sama hvað Ísland er dýrt? Björn Ragnarsson skrifar Skoðun Krossinn er ekki matseðill Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Við mælum hávaða en mælum við óskýrleikann? Ragnhildur Bjarkadóttir skrifar Skoðun Hvað gerist í síðari hálfleik? Lovísa Oktovía Eyvindsdóttir skrifar Skoðun Hvers vegna skiptir bókun 35 máli? Eiríkur S. Svavarsson skrifar Skoðun Skörum fram úr í skaðlegu skattaumhverfi Elliði Vignisson skrifar Skoðun Hvernig getum við dregið úr einmanaleika mæðra í fæðingarorlofi? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Arfurinn og réttur ríkisins til skattheimtu Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Undir sömu stjörnu – ópera fyrir alla þjóðina Sævar Þór Halldórsson skrifar Skoðun Börn þurfa úrræði, ekki innantóm loforð Ása Berglind Hjálmarsdóttir skrifar Skoðun Ísland á ekki að verða land gjaldhliða Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Fokk, ég er með ristilkrabbamein! Matthías Freyr Matthíasson skrifar Skoðun Lofthjúpurinn er ekki verðbólguspá – þegar prófessorinn villist út fyrir sitt sérfræðisvið Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Af þreyttasta frumvarpi íslenskrar þingsögu Árni Guðmundsson skrifar Sjá meira
Að byrja á röngum enda – vítahringur vímuefnavanda, afbrota og refsinga Margrét Dís Yeoman Skoðun
Skoðun „The Concert of Three“. Samráð stórveldanna þriggja – ný leið til heimsfriðar? Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar
Skoðun Mikilvægt er að draga lærdóm af smáíbúðamálinu i Hafnarfirði Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar
Skoðun Hvernig getum við dregið úr einmanaleika mæðra í fæðingarorlofi? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar
Skoðun Lofthjúpurinn er ekki verðbólguspá – þegar prófessorinn villist út fyrir sitt sérfræðisvið Sveinn Atli Gunnarsson skrifar
Að byrja á röngum enda – vítahringur vímuefnavanda, afbrota og refsinga Margrét Dís Yeoman Skoðun