Sniglar á götunni Kristján Logason skrifar 20. október 2026 15:30 Ég er meðlimur í Sniglunum, bifhjólasamtökum lýðveldisins. Sniglarnir eru einn þeirra mörgu menningarhópa sem nú hafa fengið langt nef frá borgarstjórn og verið hent út á götu. Sniglarnir eru mun meira menningarsamfélag en margur gerir sér grein fyrir og í gegnum þá hef ég á gamals aldri kynnst fullt af fólki, bæði ungu og öldnu, með ýmis sameiginleg áhugamál. Þar hefur myndast vinskapur sem vara mun út mína ævi. Sniglarnir eru ekki bara menningarsamfélag sem vinnur að sameiningu félagsmanna með áhuga á mótorhjólum heldur hafa Sniglar einnig unnið að bættri umferðarmenningu, meira öryggi í umferðinni, bótum á vegakerfi, fræðslu ungmenna, söfnun fyrir endurhæfingu á Grensásdeild og unnið með lögreglu og fengið fræðslu frá lögreglu. Sniglarnir eru þannig hópur sem ekki bara heldur kaffisamsæti einu sinni í viku heldur hefur haft víðtæk áhrif á samfélagið til hins betra, að því marki sem félagið hefur getað. Með því að missa húsnæðið sitt og vera hent á götuna er 40 ára starfsemi félagsins stefnt í voða. Því miður eru Sniglarnir ekki eini hópurinn sem borgaryfirvöld hafa ákveðið að henda á götuna og svo virðist vera sem Sjálfstæðismönnum í borgarstjórn sé verulega í nöp við alla menningu. Menningin á götunni Á undanförnum vikum hefur Reykjavíkurborg sagt upp leigusamningum við fimmtán menningarhópa og aðila sem hafa haft aðstöðu í húsnæði borgarinnar. Þar eru meðal annars Sniglarnir, fólk sem starfar að myndlist, kvikmyndagerð, tónlist, reiðhjólaviðgerðum og ýmiss konar skapandi starfsemi. Þetta eru ekki endilega stórfyrirtæki með þykka sjóði og fjársterka hluthafa. Þvert á móti er þarna um að ræða fólk sem hefur byggt upp starfsemi sína á áhuga, hugsjónum, sjálfboðavinnu og þeirri einföldu staðreynd að einhver staður þarf að vera til þar sem fólk getur hist og unnið saman. Í sumum tilfellum hefur þessi starfsemi vaxið og þróast í áratugi. Fólk hefur lagt eigin vinnu og peninga í að gera húsnæðið nothæft og byggt þar upp samfélag sem verður ekki einfaldlega flutt á milli húsa eins og skrifborð og skjalaskápar. Það er nefnilega munur á að eiga hús og að eiga samfélag. Reykjavíkurborg getur átt húsin en það er fólkið sem hefur skapað samfélagið innan veggjanna. Og það verður ekki endilega endurbyggt þótt einhverjir fermetrar finnist annars staðar. Brunavarnir eða brottrekstur? Skýringar borgarinnar á uppsögnunum hafa meðal annars verið þær að brunavarnir í húsnæðinu séu ófullnægjandi og of kostnaðarsamt að gera nauðsynlegar úrbætur. Sum húsanna kunni jafnvel að verða rifin eða seld síðar. Auðvitað þurfa brunavarnir að vera í lagi. Um það ætti enginn að þurfa að deila. En þegar leigjendur segjast tilbúnir að leggja sjálfir í úrbætur, fái þeir tryggingu fyrir því að geta áfram nýtt húsnæðið, vaknar spurning um hvort raunverulega hafi verið leitað allra leiða til að viðhalda starfseminni. Það er líka merkilegt að borg sem hefur byggt hluta af menningarstefnu sinni á því að Reykjavík sé skapandi borg skuli finna sig knúna til þess að rýma húsnæði sem einmitt hefur hýst þetta skapandi fólk. Hvað kostar að missa slíka starfsemi? Hvað kostar að byggja hana upp aftur? Hvar í bókhaldi borgarinnar er gert ráð fyrir verðmæti sjálfboðavinnu, félagslegra tengsla, vináttu, fræðslu og þeirra verkefna sem verða til þegar fólk með ólíka reynslu og þekkingu kemur saman? Kannski er enginn sérstakur bókhaldslykill fyrir slíkt. Þá er væntanlega auðveldast að strika það út. Húsdýragarðurinn á markað En nú hefur meirihlutinn í borgarstjórn fengið enn eina hugmyndina um hvernig megi bæta rekstur borgarinnar. Skoða á hvort hægt sé að koma rekstri Fjölskyldu- og húsdýragarðsins, að hluta eða öllu leyti, í hendur einkaaðila. Bent hefur verið á að rekstur garðsins hafi kostað borgina milljarða á undanförnum árum. Auðvitað er þetta stórkostlegt tækifæri til hagræðingar. Það er nefnilega ákaflega óheppilegt þegar borg rekur starfsemi sem börn hafa gaman af en skilar ekki hagnaði. Hér hefur borgin haft þann undarlega sið að leyfa börnum að kynnast íslenskum húsdýrum, sjá þau, heyra í þeim og jafnvel finna lyktina af þeim. Allt þetta þegar hægt er að finna myndir af sömu dýrum á netinu. Þar að auki eru nú til gervigreindarforrit sem geta búið til bæði myndir og myndskeið af kindum, hestum, geitum og hænum án þess að þurfa að fóðra eitt einasta dýr. Helgarpabbarnir, sem hafa hingað til farið með börnin í Húsdýragarðinn, gætu svo einfaldlega farið með þau á barinn í staðinn. Það gæti jafnvel verið ódýrara. Þar er hægt að fá sér kaffibolla eða bjór og leyfa börnunum að horfa á dýramyndir í símanum. Enginn þarf að moka flórinn og borgarsjóður sparar stórfé. Börn þurfa ekki bækur Þegar búið er að koma Húsdýragarðinum í hendur einkaaðila er næsta skref auðvitað að skoða Borgarbókasafnið. Hvers vegna í ósköpunum heldur Reykjavíkurborg úti bókasöfnum á tímum þegar börn geta einfaldlega spurt gervigreindina um allt milli himins og jarðar? Til hvers að lesa bók um sögu Íslands þegar hægt er að spyrja tölvuna hvað gerðist? Til hvers að lesa skáldsögu þegar gervigreindin getur sagt manni hvað stendur í henni og jafnvel búið til nýja sögu á meðan maður bíður eftir strætó? Og allar þessar bækur sem safnast hafa upp á bókasöfnunum. Þær taka pláss, þurfa hillur, húsnæði, hita, rafmagn og starfsfólk. Það liggur beinast við að selja bækurnar, losa húsnæðið og hætta þessari kostnaðarsömu starfsemi. Flestar upplýsingar er hvort sem er hægt að finna á netinu. Vissulega gætu einhverjir haldið því fram að bókasöfn séu meira en geymslur fyrir bækur. Að þau séu staðir þar sem fólk hittist, börn læri að lesa, ungmenni geti lært og fólk hafi aðgang að þekkingu óháð efnahag. En það er einmitt vandinn við svona samfélagsleg verðmæti. Þau eru svo erfið í bókhaldi. Listin er hvort sem er fyrir fáa útvalda Þegar bókasöfnin eru farin er upplagt að skoða listasöfnin. Það vita allir að myndlist er hvort sem er fyrir fáa útvalda. Almenningur skilur hvorki upp né niður í henni og hefur líklega nóg annað við tímann að gera en að standa fyrir framan málverk og velta fyrir sér hvað listamaðurinn hafi verið að hugsa. Listasöfn kosta peninga. Þar þarf húsnæði, gæslu, sérfræðinga, viðhald og varðveislu. Þar liggja jafnvel ótal verk í geymslum sem enginn hefur séð árum saman. Hvers vegna ekki að selja allt saman og láta einkaaðila sjá um restina? Og svo er komin gervigreind sem getur framleitt myndlist á sekúndum. Það er hægt að biðja hana um landslagsmynd í anda gömlu meistaranna, abstraktverk í hvaða litum sem er eða heila sýningu af verkum sem aldrei hafa verið máluð. Það þarf hvorki listamann, vinnustofu né áratuga æfingu til að ýta á hnappinn. Þannig mætti loksins losa borgina við þennan þráláta kostnað sem fylgir því að fólk vilji skapa eitthvað. Tónlist án tónlistarmanna Tónlistarskólarnir hljóta svo að koma næstir. Það tekur mörg ár að kenna barni að spila á fiðlu eða píanó. Það þarf kennara, æfingaaðstöðu, hljóðfæri og ómælda þolinmæði. Á meðan getur gervigreind samið og flutt heila sinfóníu á örfáum mínútum. Það þarf ekki einu sinni að kenna henni nótnalestur. Þá er náttúrlega engin ástæða til að halda áfram að kenna börnum á hljóðfæri þegar hægt er að láta tölvuna spila fyrir þau. Leikhúsin eru ekki síður áhugaverður kostnaðarliður. Leikarar þurfa laun, leikstjórar þurfa laun, ljósamenn, búningahönnuðir og sviðsmenn þurfa allir laun. Svo þarf að æfa leikritin vikum saman áður en nokkur fær að sjá þau. Gervigreindin getur búið til leikrit, leikara, leikmynd og sýningu án þess að nokkur þurfi að mæta í vinnuna. Það er erfitt að sjá hvers vegna skattgreiðendur ættu að þurfa að borga fyrir allt þetta þegar hægt er að gera það með tölvu. Borgin komin í plús Þegar búið er að losa Reykjavíkurborg við Húsdýragarðinn, bókasöfnin, listasöfnin, tónlistarskólana, leikhúsin og allt þetta óþarfa félagsstarf er loksins hægt að fara að skoða hvað hægt er að spara mikið. Það er jafnvel hægt að selja húsin, lóðirnar og ýmsar eignir sem hafa safnast upp í gegnum árin. Það hlýtur að vera eftirsóknarvert að losna við alla þessa rekstrarliði og fá í staðinn peninga í kassann. Og þá er auðvitað engin ástæða til að hætta við menninguna. Næst mætti skoða íþróttastarfið, almenningsgarðana og alla hina þjónustuna sem borgin heldur úti án þess að krefjast þess að hver eining skili hagnaði. Þegar allt er talið mætti jafnvel sjá fyrir sér borg sem kostar svo lítið í rekstri að bókhaldið verður loksins eins og borgaryfirvöld vilja helst hafa það. Auðvitað verður þar minna um að vera. Minna af menningu, færri staðir þar sem fólk hittist, færri tækifæri fyrir börn til að læra, skapa og kynnast einhverju öðru en því sem birtist á skjánum. En það þarf ekki að hafa áhyggjur af því. Það er nefnilega enginn vandi að reka borg með hagnaði ef við losum okkur fyrst við allt sem gerir hana að samfélagi. Og við Sniglarnir getum þá bara haldið áfram að vera á götunni. Þar eigum við víst best heima. Höfundur er snigill. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Kynslóðin sem mátti aldrei sýna tilfinningar getur ekki lengur sofið Sigríður Svanborgardóttir Skoðun Að nota börn til að næra sitt eigið egó Helga Snædal Skoðun Gott bú stendur undir sér Róbert Ragnarsson Skoðun Fæðingarorlof fyrir ömmu og afa? Magnea Gná Jóhannsdóttir Skoðun Af þreyttasta frumvarpi íslenskrar þingsögu Árni Guðmundsson Skoðun Mikilvægt er að draga lærdóm af smáíbúðamálinu i Hafnarfirði Árni Rúnar Þorvaldsson Skoðun Skaðabætur frá síðustu öld Hópur lögmanna Skoðun Að byrja á röngum enda – vítahringur vímuefnavanda, afbrota og refsinga Margrét Dís Yeoman Skoðun Börn þurfa úrræði, ekki innantóm loforð Ása Berglind Hjálmarsdóttir Skoðun Ætlum við að fækka bílum eða bara ökumönnum með sjálfkeyrandi bílum? Kristín Hrefna Halldórsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Tengslarof ríkistjórnarinna við atvinnulíf og samfélög á landsbyggðinni Sonja Lind E. Eyglóardóttir skrifar Skoðun Hver pantaði börn með þessu ADHD? Jóna Kristín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Sniglar á götunni Kristján Logason skrifar Skoðun Kynslóðin sem mátti aldrei sýna tilfinningar getur ekki lengur sofið Sigríður Svanborgardóttir skrifar Skoðun Skipulagið grefur undan séreignarstefnunni – brött brekka fyrir fyrstu kaupendur Sigurður Stefánsson skrifar Skoðun Myrkraverk í Afríku Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Skaðabætur frá síðustu öld Hópur lögmanna skrifar Skoðun Að nota börn til að næra sitt eigið egó Helga Snædal skrifar Skoðun Veitingageiranum var hent undir vagninn Einar Bárðarson skrifar Skoðun Ætlum við að fækka bílum eða bara ökumönnum með sjálfkeyrandi bílum? Kristín Hrefna Halldórsdóttir skrifar Skoðun Úr öskunni í eldinn Ingveldur Anna Sigurðardóttir skrifar Skoðun Hamfarir í hversdagslegum kringumstæðum Sanna Magdalena Mörtudóttir skrifar Skoðun Heimilin eiga ekki alltaf að borga brúsann Alexander M. Árnason skrifar Skoðun Fleiri krónur taldar – fáar nýjar Daði Freyr Ólafsson skrifar Skoðun „The Concert of Three“. Samráð stórveldanna þriggja – ný leið til heimsfriðar? Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Mikilvægt er að draga lærdóm af smáíbúðamálinu i Hafnarfirði Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun Farsælt ferðalag fólks og fisks Heiðrún Lind Marteinsdóttir skrifar Skoðun Orkan í ólgusjó efnahagsmála Tinna Traustadóttir skrifar Skoðun Fæðingarorlof fyrir ömmu og afa? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Gott bú stendur undir sér Róbert Ragnarsson skrifar Skoðun Loksins get ég notið þess að vera heima Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar samþykki virðist verða að ábyrgð brotaþola Herdís Ósk Sveinbjörnsdóttir skrifar Skoðun Sama fötlun en ólík réttindi - Aldurinn ræður úrslitum - Ásta Ólafsdóttir skrifar Skoðun Umskiptingar Flokks fólksins á Alþingi Júlíus Valsson skrifar Skoðun Okkar fé í Heimum Bergur Hauksson skrifar Skoðun Hver ætlar að hjúkra þér? Helga Rósa Másdóttir skrifar Skoðun Er alveg sama hvað Ísland er dýrt? Björn Ragnarsson skrifar Skoðun Krossinn er ekki matseðill Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Við mælum hávaða en mælum við óskýrleikann? Ragnhildur Bjarkadóttir skrifar Skoðun Hvað gerist í síðari hálfleik? Lovísa Oktovía Eyvindsdóttir skrifar Sjá meira
Kynslóðin sem mátti aldrei sýna tilfinningar getur ekki lengur sofið Sigríður Svanborgardóttir Skoðun
Að byrja á röngum enda – vítahringur vímuefnavanda, afbrota og refsinga Margrét Dís Yeoman Skoðun
Ætlum við að fækka bílum eða bara ökumönnum með sjálfkeyrandi bílum? Kristín Hrefna Halldórsdóttir Skoðun
Skoðun Tengslarof ríkistjórnarinna við atvinnulíf og samfélög á landsbyggðinni Sonja Lind E. Eyglóardóttir skrifar
Skoðun Kynslóðin sem mátti aldrei sýna tilfinningar getur ekki lengur sofið Sigríður Svanborgardóttir skrifar
Skoðun Skipulagið grefur undan séreignarstefnunni – brött brekka fyrir fyrstu kaupendur Sigurður Stefánsson skrifar
Skoðun Ætlum við að fækka bílum eða bara ökumönnum með sjálfkeyrandi bílum? Kristín Hrefna Halldórsdóttir skrifar
Skoðun „The Concert of Three“. Samráð stórveldanna þriggja – ný leið til heimsfriðar? Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar
Skoðun Mikilvægt er að draga lærdóm af smáíbúðamálinu i Hafnarfirði Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar
Kynslóðin sem mátti aldrei sýna tilfinningar getur ekki lengur sofið Sigríður Svanborgardóttir Skoðun
Að byrja á röngum enda – vítahringur vímuefnavanda, afbrota og refsinga Margrét Dís Yeoman Skoðun
Ætlum við að fækka bílum eða bara ökumönnum með sjálfkeyrandi bílum? Kristín Hrefna Halldórsdóttir Skoðun