Skoðun

Fleyg um­mæli á Al­þingi!

Steingrímur Jónsson skrifar

Líklega eru einu ummælin sem fallið hafa á alþingi og hafa orðið fleyg þau þrjú orð sem mikill meirihluti þingmanna sagði eftir að Jón Sigurðsson mótmælti kröftuglega slitum þjóðfundarins 1851: Vér mótmælum allir. Enda var börnum samviskusamlega kennt þetta í skólum á árum áður þegar verið var að byggja upp þjóðernishyggjuna.

Nær öll önnur ummæli sem viðhöfð voru á alþingi hafa fallið í algera gleymsku. Mótmæli Ólafs Thors við þingrofinu 1931, niður með ríkisstjórnina og viðbót Héðins Valdimarssonar ... og konunginn líka komust ekki í kennslubækur og gleymdust fljótt flestum. Upphafsorð ræðu Ólafs Jóhannessonar 1976 þegar hann svaraði fráleitum ásökunum Sighvats Björgvinssonar um tengsl við Geirfinns- og Guðmundarmál, Þingheimur hefur nú upplifað hátíðlega stund, hafa líka horfið í aldanna skaut.

Margt fleira, mismunandi magnað eða heimskulegt, hefur hrotið af vörum þingmanna á liðnum áratugum en ekki komist lengra en í Alþingistíðindi sem allir geta lesið sér til skemmtunar eða leiðinda.

Með einni undantekningu þó. Í desember síðastliðnum hrutu af vörum hæstvirts forseta alþingis nokkur orð sem urðu fleyg, þegar hún hafði frestað fundi þar sem þingmenn ræddu fundarstjórn forseta og gekk úr þingsal. Orð forseta Ég er komin með nóg. Helvítis, djöfulsins, andskotans pakk! vöktu verðskuldaða athygli. Viðbrögð létu ekki á sér standa því sannleikanum verður hver sárreiðastur. Kröfur um afsökunarbeiðni komu strax frá pakkinu. Forseti, sem reyndi að bera smyrsl á sárin, baðst strax afsökunar opinberlega, og endurtók afsökunarbeiðni sína í þinginu síðar.

Það var kannski ekki umræðan um fundarstjórn forseta sem fyllti mælinn og leysti orðræðu forseta úr læðingi. Kannski var það málþófið í lok vorþingsins 2025 sem skapaði þetta "helvítis, djöfulsins, andskotans pakk?" Málþóf sjálfstæðisflokksmanna, framsóknarflokksmanna og miðflokksmanna stóð í 160 klukkutíma. Eitthundraðogsextíu klukkutíma! Það eru fullar 4 vinnuvikur venjulegs fólks. Alþingismennirnir 63 unnu ekki fyrir kaupi sínu þessar fjórar vikur. En þjóðin borgaði.

Afleiðingarnar urðu að mörg góð og gagnleg mál sem fullunnin voru í þinginu og átti bara eftir að samþykkja formlega féllu dauð. Öll þessi mál þarf að vinna að nýju, frá byrjun, með 1. umræðu, umfjöllun nefndar, söfnun og úrvinnslu utanaðkomandi álita, áður en málið kemst til 2. umræðu þar sem venjulega er tekist á um efnisatriði málanna. Loks er 3. umræða þar sem lögin eru samþykkt eða felld, ef pakkið býður ekki til málþófs.

Málþófið 2025 í fjórar vikur eyðilagði alla þessa vinnu sem við frumvörpin sem fyrir lágu tilbúin til afreiðslu. Það var þesssu helvítis, djöfulsins, andskotans pakki að þakka. Enginn úr þeim hópi hefur sýnt hina minnstu iðrun, hvað þá að þetta pakk hafi beðið þjóðina afsökunar.

Það var einungis forseti alþingis sem baðst afsökunar á fleygum orðum sínum, tvívegis.

Nú bíðum við bara eftir því að fleyg orð orð forseta komist í kennslubækur.

PS: Hér má minna á að haustþingið 2025 stóð í 320 klukkutíma. Málþóf helvítis, djöfulsins, andskotans pakksins stóð í 160 tíma, helming þess tíma sem haustþingið stóð.

Steingrímur Jónsson, cand.mag




Skoðun

Sjá meira


×