Skoðun

Læsisáætlun án bóka

Álfhildur Leifsdóttir og Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifa

Í samráðsgátt stjórnvalda liggja drög að þriðju aðgerðaáætlun menntastefnu til 2030. Markmiðin þar eru skýr er varðar læsi, að 65% fimmtán ára nemenda nái grunnhæfni í lesskilningi sem var 56% í PISA 2025. Gera á langtímaáætlun um læsi, sem ráðuneytið kallar „eitt brýnasta verkefni samfélagsins“. Þar segir að barn sem ekki les sér til gagns getur hvorki tileinkað sér vísindi, notið lista né tekið þátt í lýðræðislegri umræðu. Við tökum undir hvert orð en bendum á að á sama tíma er Bókasafnssjóður skorinn niður úr 224,5 milljónum króna í 142,3 milljónir sem er nærri 37% lækkun.

Lestur er lýðheilsa

Úr Bókasafnssjóði fá höfundar, þýðendur og myndhöfundar greitt fyrir hvert útlán á bókasöfnum, óháð lengd bókarinnar. Barnabækur eru frekar ódýrar, upplagið lítið og hljóðbókaveitur greiða eftir lengd bóka, sem skilar litlu til höfunda. Á bókasafninu stendur myndabók fyrir fjögurra ára barn hins vegar jafnfætis þykkasta doðranti hvað varðar greiðslu vegna útláns. Þetta er einn fárra liða íslensks bókmenntakerfis þar sem barnabókin er metin til jafns við aðrar bækur. Nú á að skera þann lið niður. Til samanburðar fær langtímaáætlun um læsi 30 milljónir króna á ári í viðbótarfé en niðurskurðurinn á Bókasafnssjóði er nærri þrefalt meiri. Ríkið gefur með annarri hendinni en tekur meira með hinni. Samkvæmt aðgerðaráætluninni á að efla skólasöfn og auka lestur heima. Kostnaðarmat vegna skólasafnanna liggur þó ekki fyrir og hvergi er því svarað hver eigi að skrifa bækurnar sem eiga að fara í hillurnar eða lesa á heima.

Tómar hillur

Skýrsla Félags íslenskra bókaútgefenda, Lestur er lýðheilsa, sýnir hvernig staðan er í raun:

Fjármagn er óljóst og naumt. Erfitt er að sjá hve miklu fé er í raun varið til bókakaupa, því það er fært milli bókhaldsliða. Starfsfólk kaupir af útsjónarsemi á bókamörkuðum og treystir á gjafir.

Leikskólar: Lesið er fyrir börn daglega, en bókakostur er misjafn og oft lúinn. Upphæðir eru allt niður í 30.000 kr. á ári fyrir 71 barn. Engin lestrarstefna er til fyrir leikskólastigið.

Grunnskólasöfn: Söfn hafa víða eyðilagst vegna myglu og uppbygging gengur hægt.

Í takmörkuðu framboði íslenskra bóka grípa börn enskar bækur sem vekja áhuga þeirra. Fræðafólk segir að hérlendis þyrfti fólk í fullu starfi við að skrifa fyrir börn, en að launasjóðurinn standi ekki undir því. Minni lestur veikir lesskilning og veikur lesskilningur dregur úr lestri. Þennan vítahring er ekki hægt að rjúfa með skimunum og mælikvörðum heldur rofnar hann þegar barn finnur bók sem það getur ekki lagt frá sér.

Læsið byrjar í kjöltunni

Við sem vinnum með ungum börnum vitum að læsi byrjar ekki á PISA-prófi. Það byrjar í samverustund, þegar barn heyrir sömu söguna í tíunda sinn og fer sjálft að botna setningarnar. Orðaforði, hugtakaskilningur og samkennd vaxa úr góðum barnabókum á íslensku. Fyrir fjöltyngd börn eru íslenskar barnabækur ein besta leiðin til að tileinka sér tungumálið. Án þeirra saman stendur framboðið af enskum bókum og vélrænum þýðingum. Íslenska er mál fárra og mikilvægt að gefnar séu út fjölbreytt úrval af gæða barnabókum. Þegar stoðunum er kippt undan höfundum hætta æ fleiri að skrifa og nýir komast ekki að með tilheyrandi kreppu í útgáfu barnabóka.

Stjórnvöld geta ekki krafist betri lesskilnings á sama tíma og þau veikja grundvöll íslenskra barnabóka. Það er eins og að ætla að efla sundkunnáttu þjóðarinnar með því að loka sundlaugunum. Við skorum á Alþingi að draga niðurskurðinn á Bókasafnssjóði til baka umsvifalaust. Langtímaáætlun um læsi verður að ná til þeirra sem skrifa og þýða fyrir börn og efling skólasafna og bókakost leikskólanna þarf að fjármagna með öðru en orðum á blaði. Eins og sakir standa hvílir lestrarmenning Íslendinga á útsjónarsemi bókasafnsvarða, góðvild foreldrafélaga og elju hugsjónafólks.

Álfhildur Leifsdóttir grunnskólakennari

Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir menntunarfræðingur




Skoðun

Skoðun

7 er ekki lengur 7

Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir skrifar

Sjá meira


×