Utan vallar: Fólk með ADHD má spila íþróttir Valur Páll Eiríksson skrifar 26. október 2026 10:02 Veigar Páll Alexandersson féll á lyfjaprófi í vor og er í banni fram í maí á næsta ári. Bann hans þýðir aftur á móti ekki að allir sem taki inn ADHD-lyf eigi á hættu á leikbanni. vísir/Guðmundur Borið hefur á misskilningi í umræðu um leikbann Veigars Páls Alexanderssonar, leikmanns Njarðvíkur í körfubolta, vegna brots hans á lyfjareglum. Veigar Páll tók inn ADHD-lyf sem urðu til þess að hann var sendur í bann.
Sú staðreynd að Veigar hafi farið í bann fyrir notkun ADHD-lyfja þýðir ekki að allir þeir sem eru með ADHD fái bann fyrir slíkt. Veigar tók inn lyf án þess að vera með greiningu og án þess að hafa undanþágu frá Lyfjaeftirliti Íslands. Raunar eru fjölmargir íþróttamenn á Íslandi, og víða um heim, með ADHD-greiningu og taka inn lyf sem innihalda efni á bannlista lyfjastofnunarinnar WADA (World Anti-Doping Agency). Flestöll ADHD-lyf teljast til stimúlanta sem almennt eru bannaðir sökum þess að þeir bæti frammistöðu í íþróttum. Efnin methylphenidate (sem er í ADHD-lyfjunum Ritalin, Concerta og Daytrana), amfetamín og dextroamphetamine (sem eru í Adderall og Dexedrine) og lisdexamfetamine (sem er í Vyvanse) eru allt dæmi um efni á bannlista WADA sem eru í ADHD-lyfjum sem fjölmargir víða um heim taka inn dagsdaglega. Íþróttamenn sem taka þau efni inn þurfa að skila inn læknisvottorði og fá sér til gerða undanþágu frá Lyfjaeftirliti Íslands og færu því ekki í bann ef viðkomandi efni finnst í sýni þeirra, innan þeirra marka sem undanþágan segir til um. Önnur dæmi um slíkar undanþágur gætu verið íþróttamenn sem glíma við blóðþrýstingsvandamál, eða æða- eða hjartasjúkdóm og þurfa að taka inn beta-blockera sem lækka blóðþrýsting og hægja á hjartslætti. Slík lyf eru einnig á bannlista WADA en íþróttamenn geta tekið inn ef þeir hafa til þess undanþágu.
Lyf Utan vallar Mest lesið Heppinn að vera á lífi eftir rosalegan 15 bíla árekstur Sport Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því Enski boltinn Hver gæti tekið við af Carrick? Enski boltinn Ræddu bann Veigars: „Hræðilegur tími“ en „heppinn með dóminn“ Körfubolti Utan vallar: Fólk með ADHD má spila íþróttir Sport „Guð morning!“ Enski boltinn Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Enski boltinn „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Fótbolti Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar Enski boltinn Það er ekki hægt að reka allar þessar pissudúkkur Sport Fleiri fréttir Treyja Gylfa fór á milljón Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Það er ekki hægt að reka allar þessar pissudúkkur Utan vallar: Fólk með ADHD má spila íþróttir Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Heppinn að vera á lífi eftir rosalegan 15 bíla árekstur Ræddu bann Veigars: „Hræðilegur tími“ en „heppinn með dóminn“ Sætir gagnrýni fyrir ummæli helgarinnar Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Njarðvíkingar sömdu við David Okeke og kveðja Fotios Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Mbappé með bæði mörkin í sigri á Barcelona Kimi vann í Texas en þarf að bíða í viku til að verða heimsmeistari „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Orri skoraði í þriðja leiknum í röð Martin öflugur þegar Alba Berlin endaði taphrinuna Katla tryggði Fiorentina sigur Stýrði Gummersbach til sigurs á einu af toppliðunum „Þetta snýst ekki um mig“ Hákon Arnar meiddist Guðlaugur Victor lagði upp mark í stórsigri í Íslendingaslag „Við verðum að líta í eigin barm“ Newcastle vann í London og sanngjarn jafntefli í Hull Siggi Raggi gerði NSÍ Runavík að meisturum Varð markahæstur í deildinni gegn bróður sínum. Sjá meira