Sport

Slagur um starfið hjá Blikum og verður enginn í vörn hjá KR?

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
BlixBezta
vísir/guðmundur

Umhverfissóðar sem kasta rusli út um gluggann fá að heyra það í Besta sætinu í dag og einhverjir þeirra fengu raunverulega að heyra það frá meðlimi Besta sætisins í gær.

Sindri Sverrisson elti þá uppi unga menn sem köstuðu rusli út um gluggann. Þeir hugsa sig vonandi tvisvar um áður en þeir endurtaka þann leik. Meira um það í þætti dagsins.

Þjálfaraleit Blika teygir anga sína víða og ljóst að margir hafa áhuga á starfinu. Eðlilega enda eitt eftirsóttasta þjálfarastarf landsins.

KR fékk Omar Sowe frá ÍBV í dag og heldur áfram að sanka að sér sóknarmönnum. Besta sætið spyr hvort KR ætli að spila með tvo varnarmenn næsta sumar?

Orri Steinn Óskarsson er svo orðaður við Everton og vitað mál að margir Íslendingar myndu fagna því að sjá landsliðsfyrirliðann í enska boltanum.

Besta sætið er aðgengilegt á öllum helstu hlaðvarpsveitum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×