Sport

Dag­skráin: Suðurnesjaslagur og Körfuboltakvöld

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Deandre Kane í leik með Grindvíkingum en það gekk mikið á í Njarðvíkurleikjunum. 
Deandre Kane í leik með Grindvíkingum en það gekk mikið á í Njarðvíkurleikjunum.  Vísir/Anton

Það eru beinar útsendingar á sportstöðvunum í dag og kvöld eins og vanalega á föstudögum og körfuboltinn á kvöldið

Fjórðu umferð Bónus deildar karla í körfubolta lýkur í kvöld með tveimur leikjum og á eftir mun Körfuboltakvöld fara yfir alla leikina á skemmtilegan hátt.

Stórleikur kvöldsins er þegar Grindavík tekur á móti Njarðvík í Suðurnesjaslag en Valsmenn fá líka Ármenninga í heimsókn.

Við fáum líka golfmót á LPGA-mótaröðinni og þá eru æfingar hafnar fyrir Formúlu 1 í Mexíkó.

Hér fyrir neðan má sjá yfirlit yfir beinar útsendingar á sportstöðvunum í dag.

Sýn Sport Ísland

Klukkan 19.15 hefst bein útsending frá leik Grindavíkur og Njarðvíkur í Bónus deild karla í körfubolta.

Klukkan 21.25 hefst Bónus Körfuboltakvöld þar sem farið verður yfir alla leikina í fjórðu umferð Bónus deildar karla í körfubolta.

Sýn Sport Ísland 2

Klukkan 18.50 hefst bein útsending frá leik Vals og Ármanns í Bónus deild karla í körfubolta.

Sýn Sport Ísland 3

Klukkan 18.50 hefst bein útsending frá leik Sindra og Tindastóls í Bónus deild karla í körfubolta.

Sýn Sport 4

Klukkan 03.00 hefst bein útsending frá Maybank Championship-golfmótinu á LPGA-mótaröðinni.

Sýn Sport Viaplay

Klukkan 18.25 hefst bein útsending frá fyrstu æfingu fyrir Formúlu 1-kappaksturinn í Mexíkó í Bandaríkjunum.

Klukkan 21.25 hefst bein útsending frá annarri æfingu fyrir Formúlu 1-kappaksturinn í Mexíkó í Bandaríkjunum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×