Sport

„Jóla-Paul er á leiðinni og ein­hver verður rotaður“

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Jake Paul valdi aðfangadag fyrir næsta bardaga sinn og nú er að finna sér andstæðing.
Jake Paul valdi aðfangadag fyrir næsta bardaga sinn og nú er að finna sér andstæðing. EPA/CAROLINE BREHMAN

Hnefaleikamaðurinn og samfélagsmiðlastjarnan Jake Paul snýr aftur í hringinn nánast ári upp á dag eftir að hann endaði boxbardaga kjálkabrotinn.

Jake Paul hefur samþykkt að berjast í Dúbaí í Sameinuðu arabísku furstadæmunum en hann verður aðalnúmerið á viðburði á aðfangadag. Andstæðingur hans verður hins vegar kynntur síðar.

Þetta verður fyrsti bardagi Pauls síðan Anthony Joshua sló hann niður í sjöttu lotu í bardaga þeirra 19. desember í fyrra í Miami. Paul fór mjög illa út úr því höggi þar sem hann kjálkabrotnaði og þetta voru meiðsli sem kölluðu á fleiri en eina skurðaðgerð bæði í desember og febrúar.

„Ég hef eytt árum í að sanna að fólk hafi rangt fyrir sér, taka áhættu og etja kappi við andstæðinga sem enginn hélt að ég myndi mæta,“ sagði Paul í yfirlýsingu. 

„Ekkert af því sem hefur gerst hefur breytt trú minni á sjálfan mig eða því sem ég stefni að. Ég er hungraðri en nokkru sinni fyrr og fimmtudaginn 24. desember sný ég aftur í hringinn í Dúbaí til að hefja næsta kafla ferðalags míns,“ sagði Paul

„Við erum með fullt af nöfnum á listanum; sjáum hver skrifar undir samninginn. Gleðileg jól, Dúbaí. Jóla-Paul er á leiðinni og einhver verður rotaður,“ sagði Paul.

Hinn 29 ára gamli Paul fékk grænt ljós á að hefja æfingar með fullri snertingu fyrr í þessum mánuði. Hann birti lista yfir óskaandstæðinga sína, þar á meðal núverandi og fyrrverandi heimsmeistara í hnefaleikum á borð við Canelo Alvarez, Ryan Garcia og Deontay Wilder, auk MMA-bardagakappanna Conor McGregor, Nate Diaz, Francis Ngannou og Darren Till, svo einhverjir séu nefndir.

Fyrir tapið gegn Joshua hafði Paul unnið sex bardaga í röð, þar á meðal stórviðburð á Netflix gegn fyrrverandi heimsmeistaranum í þungavigt Mike Tyson í nóvember 2024.

Box



Fleiri fréttir

Sjá meira


×