Sport

Ís­land náði fram hefndum og fagnaði titlinum

Sindri Sverrisson skrifar
Landslið Íslands sem landaði sigrinum sæta í Færeyjum í dag.
Landslið Íslands sem landaði sigrinum sæta í Færeyjum í dag. Badmintonsamband Íslands

Íslenska landsliðið í badminton vann Færeyjar í úrslitaleik í dag, 3-1, og tryggði sér þannig sigur á Smáþjóðameistaramótinu í badminton. Ísland náði þar jafnframt fram hefndum eftir tap gegn Færeyingum í riðlakeppni mótsins.

Mótið fór fram í Færeyjum og voru mótherjar Íslands í úrslitaleiknum því á heimavelli.

Davíð Bjarni Björnsson og Arna Karen Jóhannsdóttir unnu leik Íslands í tvenndarleik eftir spennandi viðureign sem fór 15-11, 12-15 og 15-12.

Gustav Nilsson vann í einliðaleik karla, 15-11 og 15-10, en Hrafnhildur Edda Ingvarsdóttir tapaði sínum leik, 4-15 og 4-15. Ísland tryggði sér svo sigur þegar Davíð Bjarni og Kristófer Darri Finnsson unnu af miklu öryggi í tvíliðaleik karla, 15-0 og 15-5, og því kom ekki til þess að tvíliðaleikur kvenna væri spilaður.

Ísland hafði áður unnið Grænland og Kýpur í gær, 3-1 í bæði skiptin, eftir 5-0 sigur á Gíbraltar og 3-2 tapið gegn Færeyjum í riðlakeppninni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×