Enski boltinn

Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Erik ten Hag, þáverandi knattspyrnustjóri Manchester United, gefur Cristiano Ronaldo fyrirmæli áður en hann kemur inn á völlinn sem varamaður hjá United.
Erik ten Hag, þáverandi knattspyrnustjóri Manchester United, gefur Cristiano Ronaldo fyrirmæli áður en hann kemur inn á völlinn sem varamaður hjá United. EPA/VINCE MIGNOTT

Erik ten Hag, fyrrum knattspyrnustjóri Manchester United, ber Cristiano Ronaldo ekki góða söguna frá því að þeir unnu saman hjá enska félaginu.

Ten Hag telur að Ronaldo hafi hvorki verið í nógu góðu formi né nógu staðráðinn í að vera það á meðan þeir störfuðu saman hjá Manchester United. Hann bætti við að portúgalski framherjinn hafi ekki lengur getað skilað sínu á vellinum eftir að hann yfirgaf Juventus árið 2021.

Ten Hag sagði einnig að sú hugmynd heimsins um að eitt helsta einkenni Ronaldo sé eljusemi hans við að færa líkamlegu mörkin sín sé ekki alveg rétt, en þannig er ímyndin.

Ronaldo yfirgaf Juventus og sneri aftur á Old Trafford þar sem hann skoraði 27 mörk í 54 leikjum undir stjórn Ole Gunnar Solskjær og síðan Ten Hag.

Ten Hag átti ekki samleið með portúgölsku stjörnunni undir lok tíma hans við stjórnvölinn hjá United, þar sem hann kaus reglulega að velja Ronaldo ekki í byrjunarliðið.

Taldi sig svikinn

United rifti samningi Ronaldo í nóvember 2022 eftir að hann sagði í viðtali við Piers Morgan að hann hefði fundið fyrir „svikum“ af hálfu hollenska knattspyrnustjórans og gagnrýndi stjórnendur félagsins.

Ten Hag, sem er nú yfirmaður knattspyrnumála hjá hollenska félaginu FC Twente, var rekinn eftir níu leiki tímabilið 2023–24 þegar United var í fjórtánda sæti ensku úrvalsdeildarinnar.

Ten Hag leit yfir tíma sinn hjá félaginu og sagði í þættinum Goedemorgen Eredivisie á ESPN NL um helgina:

„Áskorunin er að fá liðið til að virka, eins og alltaf í raun. Allir leikmenn eru mikilvægir í því og maður þarf toppleikmenn til að geta unnið fyrir liðið. Sérhvert topplið verður að taka toppleikmanninum opnum örmum, en toppleikmaðurinn verður að vinna fyrir liðið. Og það var einfaldlega vandamálið með Ronaldo,“ sagði Ten Hag.

Litu upp til hans

„Leikmennirnir vildu vinna fyrir hann og þeir litu upp til hans, því það má ekki misskilja það. Hann er auðvitað frábær leikmaður, einn sá besti allra tíma. En það er líka raunveruleikinn að síðustu sjö, átta ár hefur hann einfaldlega ekki lengur getað skilað sínu. Frá Juventus og áfram var þetta einfaldlega búið hjá honum,“ sagði Ten Hag.

Ronaldo var orðinn 36 ára þegar hann sneri aftur í ensku úrvalsdeildina og var gagnrýndur af lýsendum og sérfræðingum fyrir meinta vangetu sína til að pressa varnarmenn andstæðinganna.

Í stað þess að rekja líkamlega hnignun Ronaldo til hækkandi aldurs sagði Ten Hag að fyrrverandi framherji Real Madrid „hefði ekki lengur getað fengið sig til að harka af sér sársaukann“ eins og hann orðaði það.

Útskýrði það fyrir honum

„Ég veitti honum að sjálfsögðu sérstaka stöðu. Ég fór líka til hans og ég ræddi við hann áður en ég tók við starfinu. Ég útskýrði fyrir honum hvernig við ætluðum að spila, hvert hlutverk hans yrði í því, hvers ég ætlaðist til af honum og hvers hann mætti vænta af mér og liðinu. En á endanum verður maður líka að skila sínu sjálfur og hann var ekki lengur fær um að keyra sig út að ystu mörkum,“ sagði Ten Hag.

„Ef maður er ekki í formi í ensku úrvalsdeildinni, Meistaradeildinni eða með portúgalska landsliðinu, þá á maður einfaldlega engan séns,“ sagði Ten Hag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×