Erlent

„Svívirði­leg svik“

Smári Jökull Jónsson skrifar
Haley Stevens lýsti í gær yfir stuðningi við Mike Rogers sem sést í bakgrunninum.
Haley Stevens lýsti í gær yfir stuðningi við Mike Rogers sem sést í bakgrunninum. Vísir/AP

Þingkona demókrata í Michigan-ríki í Bandaríkjunum hefur lýst yfir stuðningi við frambjóðanda Repúblikana í öldungadeildarkosningunum í ríkinu. Ákvörðunin kemur í kjölfar harðvítugra deilna við frambjóðanda eigin flokks en spennan fyrir þingkosningarnar í Bandaríkjunum á morgun nálgast nú suðupunkt.

Þingkonan Haley Stevens tapaði í forvali demókrata fyrir Abdul El-Sayed og í gær birti hún óvænt myndband á samfélagsmiðlinum X þar sem hún sagðist ekki eiga heima í framboði Al-Sayed.

„Það sem einkennir okkur sem íbúa Michigan er ekki hatur og það er heldur ekki það sem við sjáum frá frambjóðanda demókrata. Þess vegna ætla ég að styðja Mike Rogers,“ sagði Stevens í myndbandinu en Rogers er frambjóðandi Repúblikanaflokksins.

Stevens er nær miðjunni innan Demókrataflokksins en El-Sayed tilheyrir vinstri væng hans. Deilur þeirra hafa harðnað síðustu daga og meðal annars krafðist Stevens þess að El-Sayed fordæmdi auglýsingu frá utanaðkomandi samtökum frá vinstri vængnum þar sem stuðningur Bandaríkjanna við Ísrael var tengdur við hátt verðlag. El-Sayed gagnrýndi auglýsinguna og kvaðst ekki hafa komið nálægt gerð hennar.

Áætlað var að Stevens myndi koma fram með El-Sayed í gær til að sýna samstöðu innan flokksins en samkvæmt fréttum bað hann hana um að mæta ekki. Þess í stað fór hún í kirkju með Rogers og sagði við fréttamenn fyrir utan kirkjuna að El-Sayed hefði gert henni ljóst að hún væri ekki velkomin í framboðið.

El-Sayed sagði henni hins vegar að einbeita sér að vandamálum íbúa Michigan.

„Ekkert af þessu skiptir máli,“ sagði El-Sayed við fjölmiðla.

Lykilríki og niðurstaðan gæti ráðið úrslitum

Margir demókratar hafa brugðist illa við útspili Stevens. Chuch Schumer, leiðtogi demókrata í öldungadeildinni, kallaði ákvörðunina „svívirðileg svik“ og formaður flokksins í Michigan-ríki sagði hana sýna að Steven hefði snúið baki við því sem hún sagðist standa fyrir. Fregnir herma að margir starfsmenn hennar hafi sagt upp störfum strax eftir að tilkynningin var gerð opinber.

Rogers hefur aftur á móti fagnað stuðningi Stevens og sagði hann bera vott um hugrekki. Þá tók Donald Trump forseti í sama streng á kosningafundi í Iowa. Hann sagðist þó ekki þekkja Stevens að sagði hana mjög hugrakka. Hann bætti við að hann vildi gjarnan fá hana í Repúblikanaflokkinn.

Kosningin í Michigan er talin ein sú tvísýnasta í þingkosningunum á morgun og gæti ráðið úrslitum um hvor flokkurinn fær meirihluta í öldungadeildinni. Sætið er nú í höndum fulltrúa demókrata sem er að láta af störfum og síðast var repúblikani kjörinn í það árið 1994. Michigan-ríki er jafnframt svokallað sveifluríki í forsetakosningum en Joe Biden vann sigur þar árið 2020 en Donald Trump árið 2024.

Klofningur sem boðar ekki gott

Demókratar þurfa að bæta við sig fjórum sætum til að ná meirihluta í öldungadeildinni. Tapi þeir í Michigan þurfa þeir að vinna fimm önnur sæti.

Forvalið og deilur þeirra Stevens og El-Sayed hafa varpað ljósi á ágreining innan Demókrataflokksins um stefnuna fyrir forsetakosningarnar eftir tvö ár. 

El-Sayed, sem er fyrrverandi embættismaður í heilbrigðismálum og sonur egypskra innflytjenda, hefur höfðað til óánægju almennings með stefnu stjórnvalda í Washington og samskipti Bandaríkjanna við Ísrael.

Stevens er hins vegar hófsamari og naut stuðnings flokksleiðtoga á borð við Gretchen Whitmer ríkisstjóra í forvalinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×