Skrýtnir útreikningar og fjármálalæsi Ásgeir Daníelsson skrifar 3. nóvember 2026 12:46 Fjármálalæsi er mikilvægt. Það felst m.a. í sér að skilja muninn á milli nafnstærða og raunstærða. Ef laun hækka um 10% og verðlag hækkar líka um 10% eru raunlaun óbreytt. Það er líka mikilvægt að gera sér grein fyrir muninum á milli nafnvaxta og raunvaxta. Þegar verðbólga er mikil telst einungis hluti nafnvaxta óverðtryggðra samninga til raunvaxta en afgangurinn er í raun afborgun sem sést á því að raunvirði höfuðstóls (eftirstöðva) minnkar með verðbólgu. Stundum getur reynst flókið að reikna út raunstærðir. Hér á eftir fer ég yfir dæmi sem Björn Brynjúlfur Björnsson framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs ræðir í grein sem birtist á Vísi 10. október sl. Þar fær hann út að skattur á fjármagnstekjur af hlutafé verði 113,8% m.v. raunvirði ef verðbólga er 5,9%. Ég held að ef rétt er reiknað sé hlutfallið innan við 40% og jafnvel nær 35%. Ég ræði einnig sérkennilegt viðmið sem notað er í kynningu fjármála- og efnahagsráðuneytisins á fyrirhuguðu hámarki á lánstíma verðtryggðra lána. Skatthlutföll miðað við rauntekjur Í grein sinni bendir Björn réttilega á að skattur á fjármagnstekjur sem nemur 22% af nafnvirði teknanna geti reynst mun hærri þegar horft er til raunvirðis þeirra í verðbólgu. Ef t.d. nafnvextir eru 9% og verðbólga er 6% eru raunvextir, þ.e. vextir eftir að búið er að taka tillit til þess að verðbólgan rýrir virði höfuðstólsins, 9%-6% = 3%. Ef við viljum reikna út skatthlutfall m.v. raunvexti þurfum við að margfalda 22% hlutfallið með nafnvöxtunum og deila með raunvöxtunum og fáum út að 22%*9/3 = 66%.[1] Eftir því sem verðbólgan er meiri verður skatthlutfallið m.v. raunvexti hærra og er um 100% af raunvöxtunum þegar verðbólgan er 10%. Þessi röksemdafærsla Björns er rétt þegar um er að ræða fjármagnstekjur af óverðtryggðum inn- og útlánum og verðbréfum. Niðurstöðurnar gilda líka um fjármagnstekjur af verðtryggðum samningum af því að fjármagnstekjuskatturinn leggst ekki bara á raunvextina heldur líka á verðbæturnar, þ.e. á alla nafnávöxtun slíkra saminga. Næst snýr Björn sér að skatti á fjármagnstekjur af hlutabréfum. Fyrirtæki þurfa að greiða 20% af hagnaði í tekjuskatt og ef hluti af þeim 80% af hagnaðinum sem þá er eftir er nýttur til að greiða arð er tekinn 22% fjármagnstekjuskattur af þeirri fjárhæð. Þegar þessir tveir skattar eru lagðir saman fæst skatthlutfall upp á 20% + (100%-20%)*22% = 37,6%. Hér er allt rétt. Einhverjir hefðu stoppað þarna. Kannski borið þetta skatthlutfall saman við efsta skattþrepið fyrir laun sem er 46,3% og það næstefsta sem er 38,0%. En Björn heldur áfram og reiknar út skatthlutfall m.v. raunvirði fyrir fjármagnstekjur af hlutafé eins og höfuðstóllinn rýrni vegna verðbólgu með sama hætti og höfuðstóll í óverðtryggðum samningum. Hann gefur sér (án skýringa) að raunvextir af fjármagninu sem bundið er í hlutafénu séu 3%, verðbólga 5,9% og nafnvextir 9,1% og fær út að skatthlutfallið m.v. rauntekjur sé 37,6%*9,1/3 = 113,8%! Það er augljóst að verðbólgan rýrir ekki verðmæti höfuðstóls hlutafjár með sama hætti og hún rýrir verðmæti höfuðstóls í nafnvirðissamningum. Nærtækt er að ætla að verðbólgan hækki verð hlutabréfa þannig að raunverðið lækki ekki. Verðbólguleiðrétt reikningsskil Verðbólga veldur skekkjum í reikningsskilum þar sem litið er framhjá breytingum í verðgildi myntarinnar sem miðað er við. Ef verðbólga er lág er skekkjan lítil[2], en ef verðbólgan er yfir 10%, eins og hún var um og uppúr 1980, ekki bara hér á landi heldur víðar á vesturlönum, „varð ekki lengur unað við þau reikningsskil, sem svo lengi höfðu verið látin duga“, svo vitnað sé í orð Árna Vilhjálmssonar fyrrum prófessors í reikningsskilum við Háskóla Íslands. Á síðustu tveimur áratugum síðustu aldar var íslenskum fyrirtækjum skylt að verðbólguleiðrétta reikningsskil sín. Skekkjurnar sem verðbólgan veldur eru af ýmsum toga. Af því að kostnaður fellur oftast til á undan tekjum er meðalverðlag kostnaðarliðanna eldra og lægra en tekjuliðanna. Þetta veldur því að kostnaðarliðirnir eru vanmetnir miðað við tekjuliðina og þar með hagnaðurinn ofmetinn. Sama gildir um afskriftir þegar miðað er við fast hlutfall af kaupverði. Verðbólga veldur því að upphaflegt kaupverð verður of lágt viðmið fyrir útreikning á raunverulegum kostnaði sem frekar ætti að taka mið af því sem hluturinn kostar á reikningsárinu. Aftur er kostnaður vanmetinn og hagnaður ofmetinn. Það sama gildir um peningalegar eignir. Þegar kemur að færslu fjármagnskostnaðar vegna lána snýst dæmið við. Þá veldur verðbólga skekkju sem felst í því að nafnvirði vaxta og verðbóta sem er fært sem fjármagnskostnaður er umfram raunvexti af lánum. Þannig veldur verðbólga ofmati á vaxtakostnaði og vanmati á hagnaði.[3] Sá hluti nafnvaxta sem er umfram raunvexti er í raun niðurgreiðsla (afborgun) af skuldum og hefur áhrif á verðbólguleiðréttan efnahagsreikning en ekki á verðbólguleiðréttan rekstrarreikning. Af þessarri upptalningu má ljóst vera að áhrif verðbólgunnar á hagnað fyrirtækja er æði mismunandi og sennilegt að í einhverjum tilfellum (t.d. hjá fyrirtækjum sem skulda lítið) sé verðbólguleiðréttur hagnaður lægri en óleiðréttur og því mælist skatthlutfallið hærra en 37,6%, en í öðrum tilfellum sé verðbólguleiðréttur hagnaður hærri og skatthlutfallið lægra. Ég gerði tilraunir til að meta áhrifin út frá hlutföllum í töflu Hagstofunnar um rekstur og efnahag fyrirtækja. Það er mikil óvissa í ágiskunum út frá þessum gögnum um áhrif af 5,9% verðbólgu, en ég sannfærðist ekki um að þau atriði sem minnka leiðréttan hagnað og hækka leiðrétt skatthlutfall hafi meiri áhrif en leiðrétting vegna raunvaxta sem eykur leiðréttan hagnað og lækkar leiðrétt skatthlutfall. Ef bætt er við að skattur af hagnaði og arði greiðist eftir á en ekki samtímis eins og tekjuskatturinn í staðgreiðslunni lækkar 5,9% verðbólga skatthlutfallið um 2 prósentur til viðbótar. Rétt er að nefna að verðbólgan hefur áhrif á söluhagnað af hlutabréfum og þar með á skatt á fjármagnstekjur af hlutafé. Fjármálalæsi og verðbólga Það eru ákveðin þægindi fólgin í því að geta litið framhjá áhrifum verðbólgu á verð og verðmæti. Þau þægindi eru mikilvægur hluti af þeim ábata sem fylgir lágri og stöðugri verðbólgu. En það er líka mikilvægt að fólk þekki áhrif verðbólgunnar á efnahagsstærðir eins og laun og vexti. Það skýtur því óneitanlega skökku við þegar fjármála- og efnahagsráðuneytið birtir í Samráðsgátt (Mál: S-199/2026) að ráðgert sé að leggja fram frumvarp sem feli í sér „að hámarkslánstími verðtryggðra fasteignalána til neytenda verði 25 ár …“ og einu rökin eru að ef raunvextir eru 3,5%, verðbólga 2,5% og lánstíminn umfram 25 ár geti það gerst að höfuðstóll lánsins hækki í krónum. Það er reyndar ekki tekið fram að þetta gildir einungis um verðtryggð jafngreiðslulán. Ef lánið er með jöfnum afborgunum og sömu forsendur eru um verðbólgu og raunvexti hækkar höfuðstóll (eftirstöðvar), mælt í nafnkrónum, ekki fyrr en lánstíminn er komin yfir 40 ár. Í stað þess að útskýra að höfuðstóll verðtryggðra jafngreiðslulána lækki alltaf, sem sjáist ef leiðrétt er fyrir áhrifum verðrýrnunar krónunnar, og að hann hækki í krónum þótt greitt sé af lánunum einungis ef afborgun er minni en hækkun vegna verðrýrnunar krónunnar er reynt að spila á fákunnáttu lesandans í fjármálum. Að höfuðstóllinn hækki ekki í nafnkrónum miðað við forsendurnar er svo gert að viðmiði sem eitt og sér nægi til að réttlæta hámarkslánstíma verðtryggðra lána! Þótt þetta sé rétt reiknaður hámarkslánstími miðað við 3,5% raunvexti, 2,5% verðbólgu og jafngreiðslulán er auðvelt að sjá að örlítil frávik frá forsendunum geta valdið þeim ósköpum að höfuðstóllinn hækki í krónum! Eftir því sem ég best veit eru engin lögbundin hámörk á lánstíma í þeim löndum sem við miðum okkur helst við, hvorki fyrir óverðtryggð lán eða verðtryggð. Höfundur er eftirlaunaþegi en starfaði áður sem hagfræðingur hjá Seðlabanka Íslands og Þjóðhagsstofnun. [1] Það er sennilega vissara að nefna að ég veit um smávegis einföldun í þessum útreikningum. Hárrétta svarið hér er 70% en ekki 66%. [2]Rétt er að minna á að jafnvel lág verðbólga veldur stórum skekkjum ef horft er til langs tíma. Á 40 árum veldur verðbólga sem er jöfn verðbólgumarkmiði Seðlabanka Íslands (2,5%) 169% hækkun verðlags og 2% verðbólga (verðbólgumarkmið flestra annarra landa) veldur 121% hækkun. Bandaríski nóbelsverðlaunahafinn í hagfræði, Robert Shiller, hefur fjallað um mikilvægi aðferða sem auka vitund almennings um áhrif verðbólgu, t.d. hér. [3] Í ágætri grein í Vísbendingu 18. september 2026 fjallar Gylfi Magnússon prófessor um samsvarandi skekkju í reikningum ríkissjóðs. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Eineltið byrjar kannski við eldhúsborðið! Birta Róbertsdóttir Skoðun Þegar veikindaleyfi verður að fríi Gunnar Ármannsson Skoðun Icelandair undir verndarvæng ríkisins Kjartan Björgvinsson Skoðun Ég hata þessa manneskju út af lífinu! Hermann Stefánsson Skoðun Hvaða skilaboð erum við að senda framtíðarkennurum? Eyrún Ósk Hjartardóttir Skoðun Við erum rétt að byrja Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir Skoðun Útsæði á diskinn minn! Guðmundur Finnbogason Skoðun Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir Skoðun Hvað kostar samfélag? Orri Jónsson Skoðun Ríkisstjórnin ætlar að keyra ferðaþjónustufyrirtæki á Gullhringnum í gjaldþrot! Helgi Kjartansson,Ásta Stefánsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar Skoðun Látum Loftbrúna vera Sindri S. Kristjánsson skrifar Skoðun Öryggi í umferð framtíðarinnar Jón Gunnar Jónsson skrifar Skoðun „Við“ skiptaráð Dofri Hermannsson skrifar Skoðun Bláskógaskatturinn hefur áhrif víða Sveinn Ægir Birgisson skrifar Skoðun Skrýtnir útreikningar og fjármálalæsi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Er mynstrið þitt nægilega djúpt? Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Geimvera lendir á Íslandi Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Tvískinnungur ættjarðarástar Gunnlaugur Stefánsson skrifar Skoðun Íslenska Z-kynslóðin hefur hægt um sig Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Ég hata þessa manneskju út af lífinu! Hermann Stefánsson skrifar Skoðun Bandaríkin kjósa – en hver hefur eftirlit með forsetanum? Baldur Johnsen skrifar Skoðun Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Icelandair undir verndarvæng ríkisins Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Útsæði á diskinn minn! Guðmundur Finnbogason skrifar Skoðun Heimili á hjólum er líka heimili Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Almannaréttur er heilagur réttur Þórarinn Eyfjörð skrifar Skoðun Við erum rétt að byrja Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Að eldast er að lifa Halldór S. Guðmundsson,Sirrý Sif Sigurlaugardóttir skrifar Skoðun Hver ber ábyrgð á gervigreindinni? Kristján Logason skrifar Skoðun Draumsýn menntamála Álfhildur Leifsdóttir ,Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Hvað kostar samfélag? Orri Jónsson skrifar Skoðun Skipulögð brotastarfsemi kallar á nýja hugsun Heiðrún Jónsdóttir,Íris Björk Hreinsdóttir skrifar Skoðun Tvöfalt álag – frjósemi á vinnustað Sigríður Auðunsdóttir skrifar Skoðun Eineltið byrjar kannski við eldhúsborðið! Birta Róbertsdóttir skrifar Skoðun Þroskahjálp 50 ára: Að geta gert ráð fyrir góðu lífi Guðmundur Ármann Pétursson skrifar Skoðun Íslensk bókhaldsgögn eiga heima innan Evrópu Jóhann Tómas Sigurðsson skrifar Skoðun Enginn á að standa einn – sérstaklega ekki fyrir jólin Alexander M. Árnason skrifar Skoðun Stillum ekki íþróttum og menningu upp sem andstæðum pólum Gunnar M. Gunnarsson skrifar Skoðun Betri borg fyrir börn? Hópur fulltrúa í Ungmennaráði Vesturbæjar, Miðborgar og Hlíða skrifar Sjá meira
Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir Skoðun
Ríkisstjórnin ætlar að keyra ferðaþjónustufyrirtæki á Gullhringnum í gjaldþrot! Helgi Kjartansson,Ásta Stefánsdóttir Skoðun
Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar
Skoðun Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir skrifar
Skoðun Skipulögð brotastarfsemi kallar á nýja hugsun Heiðrún Jónsdóttir,Íris Björk Hreinsdóttir skrifar
Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir Skoðun
Ríkisstjórnin ætlar að keyra ferðaþjónustufyrirtæki á Gullhringnum í gjaldþrot! Helgi Kjartansson,Ásta Stefánsdóttir Skoðun