Íslenskukunnátta er sameiginleg ábyrgð Helga Rósa Másdóttir og Wendill Galan Viejo skrifa 4. nóvember 2026 16:00 Á sama tíma og íslenskt heilbrigðiskerfi glímir við viðvarandi skort á hjúkrunarfræðingum hafa yfirvöld heimilað innheimtu skólagjalda af nemendum utan Evrópska efnahagssvæðisins (EES) við opinbera háskóla. Skólagjöld við Háskóla Íslands, sem geta numið nokkrum milljónum króna á ári, geta haft veruleg áhrif á nýliðun erlends heilbrigðisstarfsfólks og gæði og öryggi heilbrigðisþjónustunnar. Íslenska á að vera gæðaviðmið í heilbrigðiskerfinu Fyrir marga hjúkrunarfræðinga utan EES hefur íslenskunám við Háskóla Íslands verið mikilvæg leið inn í íslenskt samfélag og störf í heilbrigðiskerfi. Þeir hafa þegar lokið hjúkrunarfræðinámi í heimalandi sínu en nýta vandað íslenskunám til að undirbúa sig fyrir störf hér á landi. Erlendir hjúkrunarfræðingar eru nú 11% félagsfólks Fíh og langflestir þeirra koma frá ríkjum utan EES. Tungumálakunnátta er grundvallarþáttur í gæðum og öryggi heilbrigðisþjónustunnar. Rannsóknir á inngildingu erlends heilbrigðisstarfsfólks hafa ítrekað sýnt að tungumálakunnátta er einn mikilvægasti þátturinn í farsælli aðlögun, festu í starfi, faglegum samskiptum og þátttöku í samfélaginu. Fíh hefur lengi kallað eftir því að íslenskukunnátta verði skilyrði fyrir starfsleyfi hjúkrunarfræðinga, líkt og tíðkast á hinum Norðurlöndunum. Yfirvöld hafa tekið undir mikilvægi íslenskukunnáttu en verið treg til að gera hana að skilyrði og notað mönnunarvandann sem rök gegn slíkri kröfu. Stefnumótun og aðgerðir þurfa að fara saman Í lögum um heilbrigðisþjónustu er kveðið á um hlutverk stjórnvalda við stefnumótun og skipulag heilbrigðisþjónustunnar. Í mönnunarstefnu í heilbrigðisþjónustu til ársins 2030, sem heilbrigðisráðuneytið gaf út árið 2025, er lögð áhersla á fjölgun heilbrigðisstarfsfólks og gæði og öryggi heilbrigðisþjónustunnar. Þar er sérstaklega kveðið á um að vinnustaðir heilbrigðisstarfsfólks af erlendum uppruna skuli stuðla að því að starfsfólkið læri íslensku. Jafnframt er lögð áhersla á að vinnustaðir tryggi að erlent heilbrigðisstarfsfólk öðlist þekkingu á íslensku heilbrigðiskerfi, lögum, reglugerðum og siðareglum sem gilda um störf þess. Þessi markmið undirstrika ábyrgð opinberra vinnustaða á að styðja við íslenskunám og aðlögun erlends heilbrigðisstarfsfólks. Þrátt fyrir það er ekki að finna neinar sérstakar aðgerðir til að hrinda þeim í framkvæmd í aðgerðaáætlun heilbrigðisráðuneytisins fyrir árin 2026–2027. Þar kemur hvorki fram hvernig stuðla eigi að íslenskunámi, hvernig fræðslu um íslenskt heilbrigðiskerfi verði háttað né hvernig fylgst verði með árangri. Á sama tíma og stjórnvöld leggja áherslu á íslenskunám í mönnunarstefnu sinni torvelda há skólagjöld stórum hópi erlendra hjúkrunarfræðinga aðgang að háskólanámi í íslensku. Það vekur spurningar um hvernig stjórnvöld hyggjast tryggja að markmið um íslenskunám, farsæla aðlögun og sjálfbæra mönnun heilbrigðisþjónustunnar náist. Ábyrgð á gæðum og öryggi heilbrigðisþjónustunnar er sameiginlegt verkefni Lög um heilbrigðisþjónustu, lög um heilbrigðisstarfsmenn og lög um réttindi sjúklinga mynda lagalegan grundvöll fyrir gæðum og öryggi heilbrigðisþjónustunnar. Ábyrgðin er sameiginleg en hlutverk aðila ólík. Margar heilbrigðisstofnanir hafa lagt sitt af mörkum með íslenskukennslu og stuðningi við erlent starfsfólk, en þó ekki allar. Fjöldi erlendra hjúkrunarfræðinga hefur einnig sótt hagnýtt íslenskunám til að undirbúa sig fyrir störf í heilbrigðiskerfinu. Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hefur stofnað sérstaka deild fyrir hjúkrunarfræðinga með erlendan bakgrunn, heldur reglulega námskeið fyrir hópinn og hefur beitt sér fyrir því að þau fái íslenskukunnáttu metna til starfsþróunar. Þrátt fyrir þetta framlag skortir samræmingu í aðgerðum og skýran ramma stjórnvalda um stuðning við íslenskunám og aðlögun erlends heilbrigðisstarfsfólks. Misræmi milli stefnu og framkvæmdar yfirvalda birtist meðal annars í háum skólagjöldum, sem torvelda aðgengi að íslenskunámi fyrir þau sem vilja læra íslensku áður en þau hefja störf á íslenskum vinnumarkaði. Öll ríki, þar á meðal Ísland, bera ábyrgð á að byggja upp sjálfbær heilbrigðiskerfi og mennta nægilega marga hjúkrunarfræðinga. Hjúkrunarfræðingar flytjast milli landa að eigin frumkvæði og íslenskt heilbrigðiskerfi nýtur góðs af þekkingu þeirra og reynslu. Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga skorar á yfirvöld að fylgja eftir markmiðum um íslenskukunnáttu og aðlögun erlendra hjúkrunarfræðinga að íslensku heilbrigðiskerfi með skýrum og samræmdum aðgerðum. Veita þarf undanþágur frá skólagjöldum eða finna aðrar raunhæfar leiðir til að tryggja hjúkrunarfræðingum sem hingað koma til starfa aðgang að vönduðu íslenskunámi og viðurkenndu námsmati. Það er mikilvægt bæði fyrir erlenda hjúkrunarfræðinga og gæði og öryggi íslenskrar heilbrigðisþjónustu. Höfundar eru Helga Rósa Másdóttir, hjúkrunarfræðingur og formaður Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga, og Wendill Galan Viejo, hjúkrunarfræðingur, stjórnarmaður í Félagi íslenskra hjúkrunarfræðinga og formaður deildar erlendra hjúkrunarfræðinga. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Kristrún: Rektu Daða Má fjármálaráðherra Einar Steingrímsson Skoðun Götu hvað? Ebba Margrét Magnúsdóttir Skoðun Viðskiptaráð stimplar sig út Andri Snær Magnason Skoðun Hver gætir að réttindum þeirra sem gæta barnanna okkar? Jenný Þórunn Stefánsdóttir,Kári Sigurðsson Skoðun Þegar einn múslimi talar, hvers vegna þurfa allir múslimar að svara? Mansoor Ahmad Malik Skoðun Ég er hugsi – hvar er farsæld barnanna? Herdís Þórsteinsdóttir Skoðun Icelandair – Tíminn til að bregðast við er núna Kjartan Björgvinsson Skoðun Ert þú gervigreindarsóði? Marín Jónsdóttir Skoðun Afmælisdagur á ekki að tefja skólagöngu Hrönn Stefánsdóttir Skoðun Vegna eða „vegna“ ferðamanna Ragnar Lúðvík Jónsson Skoðun Skoðun Skoðun Fiskeldi – best heppnaða byggðaaðgerð Íslands Daníel Jakobsson skrifar Skoðun Haltu bara í þér Lára G. Sigurðardóttir skrifar Skoðun Íslenskukunnátta er sameiginleg ábyrgð Helga Rósa Másdóttir,Wendill Galan Viejo skrifar Skoðun Öfgar og ófagleg vinnubrögð Tryggvi Felixson skrifar Skoðun Þegar einn múslimi talar, hvers vegna þurfa allir múslimar að svara? Mansoor Ahmad Malik skrifar Skoðun Icelandair – Tíminn til að bregðast við er núna Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Ég er hugsi – hvar er farsæld barnanna? Herdís Þórsteinsdóttir skrifar Skoðun Hver gætir að réttindum þeirra sem gæta barnanna okkar? Jenný Þórunn Stefánsdóttir,Kári Sigurðsson skrifar Skoðun Viðskiptaráð stimplar sig út Andri Snær Magnason skrifar Skoðun Kristrún: Rektu Daða Má fjármálaráðherra Einar Steingrímsson skrifar Skoðun Götu hvað? Ebba Margrét Magnúsdóttir skrifar Skoðun Afmælisdagur á ekki að tefja skólagöngu Hrönn Stefánsdóttir skrifar Skoðun Fimm mýtur um vændi Drífa Snædal skrifar Skoðun Hvað kostar að gera vinnustað mannlegri? Ragnhildur Bjarkadóttir skrifar Skoðun Líknarslæving, dánaraðstoð og rétturinn til að velja Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Vegna eða „vegna“ ferðamanna Ragnar Lúðvík Jónsson skrifar Skoðun Gervigreind, til góðs? Ketill Berg Magnússon skrifar Skoðun Ert þú gervigreindarsóði? Marín Jónsdóttir skrifar Skoðun Smjörklípa Þorgerðar Hjörvar Sigurðsson skrifar Skoðun Þegar undantekningarnar verða að stefnu Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Foreldraupplifun Sólný Pálsdóttir skrifar Skoðun Til varnar tímanum Eva Harðardóttir,Katrín Ólína Pétursdóttir skrifar Skoðun Forsætisráðherra endurskrifar söguna og snýr staðreyndum á hvolf Pétur Óskarsson skrifar Skoðun Það á að vera gott að eldast á Íslandi Ólafur Þór Gunnarsson,Regína Ásvaldsdóttir skrifar Skoðun Hver reiknar raunverulegan kostnað hagræðingar? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Einkunnakvarði er ekki námsmat! Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Áframhaldandi skilningsleysi nýliða Kristín Helga Schiöth skrifar Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar Skoðun Er að eignast barn samfélagsleg busun? Stefnir Húni Kristjánsson skrifar Skoðun Jöfn laun eiga ekki að ráðast af tilviljun Kolbrún Halldórsdóttir skrifar Sjá meira
Hver gætir að réttindum þeirra sem gæta barnanna okkar? Jenný Þórunn Stefánsdóttir,Kári Sigurðsson Skoðun
Skoðun Þegar einn múslimi talar, hvers vegna þurfa allir múslimar að svara? Mansoor Ahmad Malik skrifar
Skoðun Hver gætir að réttindum þeirra sem gæta barnanna okkar? Jenný Þórunn Stefánsdóttir,Kári Sigurðsson skrifar
Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar
Hver gætir að réttindum þeirra sem gæta barnanna okkar? Jenný Þórunn Stefánsdóttir,Kári Sigurðsson Skoðun