Atkvæðagreiðsla verði haldin á næstu mánuðum
Utanríkisráðherra kynnir þingsályktunartillögu um þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður við Evrópusambandið á fundi ríkisstjórnar á morgun.Tímasetning atkvæðagreiðslunnar liggur ekki fyrir en dagblaðið Politico hefur eftir heimildarmönnum að atkvæðagreiðslan gæti farið fram í ágúst. Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra sagði á blaðamannafundi í Póllandi í síðustu viku að atkvæðagreiðsla verði haldin á næstu mánuðum.