Ákæra gefin út
Hin franska, Ming Ting Mancel, hefur verið ákærð fyrir að hafa myrt dóttur sína, Catherine Mancel, á Edition hótelinu í Reykjavík síðasta sumar. Eiginmaður konunnar, Emeric Mancel, fannst einnig látinn á hótelherberginu en konan er ekki ákærð fyrir aðkomu að dauða hans.