Akureyri

Akureyri

Mannfjöldi: 20.050 (2025). Flatarmál: 136 ferkílómetrar. Stærstu byggðakjarnar: Akureyri, Hrísey, Grímsey.

Fréttamynd

Starfs­maður leik­skóla rekinn vegna at­viks en for­eldrar ekki látnir vita

Akureyrarbær hefur ákveðið að fara yfir verklag sitt og innri ferla vegna máls sem kom til kasta lögreglu haustið 2024 og lýtur að meintri óviðeigandi framkomu starfsmanns á leikskólanum Tröllaborgum gagnvart barni í skólanum. Starfsmanni var vikið frá störfum í kjölfar þess að málið kom upp en foreldrar voru ekki látnir vita. Málið var á sínum tíma rannsakað af lögreglu en látið niður falla. Bærinn hefur óskað eftir því að rannsókn verði hafin á ný.

Innlent

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Skálm­öld gæddi sér á hrá­efni sögu­legs „ógeðs­drykkjar“

Skálmaldar­mönnunum Snæbirni Ragnars­syni og þó helst Þráni Árna Baldurs­syni leiðist ekki að borða mat sem fólki býður oftar en ekki við. Þeir komust því heldur betur í feitt þegar þeim var boðið til al­vöru „súr­strömming-veislu“ á Akur­eyri. Þar sporðrenndu þeir glaðir aðal­hráefninu í sögu­legasta ógeðs­drykk 70 mínútna.

Lífið
Fréttamynd

„Per­sónu­legir þættir koma hér hvergi nærri“

Alma Möller heilbrigðisráðherra segir persónulega þætti koma hvergi nærri ákvörðun um skipun næsta forstjóra Sjúkrahússins á Akureyri. Hún segist hæf til sjá um málið þó svo að hún hafi lýst sig vanhæfa til að fjalla um uppsögn ferliverksamninga á spítalanum. Alma segir þó að úrvinnsla málsins muni fara eftir því hverjir umsækjendur verða.

Innlent
Fréttamynd

Segist sak­laus

Kristján Einar Sigurbjörnsson, betur þekktur sem Kleini, segist saklaus af öllum ásökunum sem hafa komið fram varðandi kynferðisbrot sem lögreglan a Akureyri rannsakar. Samkvæmt heimildum fréttastofu er Kristján grunaður í málinu.

Innlent
Fréttamynd

Lýsir yfir stuðningi við Haf­dísi

Svala Björgvinsdóttir hefur stigið fram til stuðnings Hafdísi Björgu Kristjánsdóttur en báðar áttu þær í sambandi við Kristján Einar Sigurbjörnsson, betur þekktur sem Kleini. Hann er sagður hafa verið handtekinn á Akureyri grunaður um nauðgun ásamt tveimur öðrum mönnum.

Lífið
Fréttamynd

Fagráðið harmar brott­hvarf Hildi­gunnar

Fagráð Sjúkrahússins á Akureyri harmar skyndilegt brotthvarf Hildigunnar Svavarsdóttur, fyrrverandi forstjóra spítalans, úr starfi. Hildigunnur sagði upp eftir að ráðherra greindi frá því að staða hennar yrði auglýst við lok fimm ára skipunartíma hennar.

Innlent
Fréttamynd

Haf­dís stígur fram vegna Kleina

„Mér þykir ótrúlega erfitt að fylgjast með fréttum í dag og erfitt að kenna ekki sjálfri mér um að hafa ekki stigið fram og varað aðrar stelpur við ofbeldinu sem fylgir þessum manni,“ segir einkaþjálfarinn Hafdís Björg Kristjánsdóttir um fyrrverandi kærasta sinn, Kristján Einar Sigurbjörnsson, eða Kleina, sem sagður er hafa verið handtekinn á Akureyri grunaður um nauðgun ásamt tveimur öðrum mönnum.

Lífið
Fréttamynd

Sunna Hlín leiðir lista Fram­sóknar á­fram

Sunna Hlín Jóhannsdóttir skipar efsta sæti lista Framsóknarflokksins á Akureyri. Hún er þegar sitjandi bæjarfulltrúi fyrir hönd flokksins og sömuleiðis Gunnar Már Gunnarsson, sem skipar annað sæti listans.

Innlent
Fréttamynd

Ekki nóg af sætum, salernum, mat eða upp­lýsingum

Hafsteinn Karlsson var á leið til Íslands frá Kaupmannahöfn með konu sinni á fimmtudaginn þegar stefnan var óvænt tekin á Akureyri vegna veðuraðstæðna á Keflavíkurflugvelli. Við tóku um átta klukkustundir af óvissu í komusalnum á Akureyrarflugvelli þar sem mörghundruð manns var gert að bíða í fleiri klukkutíma. 

Innlent
Fréttamynd

Á­fengis­sala í brekkunni hafi reynst vel

Lögreglan þurfti að grípa inn í við Hlíðarfjall síðustu helgi þegar örtröð myndaðist við bílastæðið. Forstöðumaður skíðasvæðisins segir áfengissölu í brekkunni hafa reynst einkar vel og tekur fram að fjöldi erlendra ferðamanna á svæðinu hafi aukist verulega á síðustu árum.

Innlent
Fréttamynd

Missti tökin og hengdur á loft í beinni

Leikfélag Akureyrar frumsýndi í kvöld Birting, klassíska stórsýningu úr smiðju Voltaire. Níels Thibaud Girerd, aðalleikari sýningarinnar, lofaði flugeldasýningu þegar Tómas Arnar Þorláksson sótti meðlimi leikfélagsins heim fyrir frumsýninguna í kvöld, þar sem hann endaði á því að vera hengdur upp í beinni útsendingu.

Lífið
Fréttamynd

Metfjöldi gesta tvo daga í röð

Um 3.400 manns lögðu leið sína í Hlíðarfjall á Akureyri í dag og nánast jafnmargir í gær. Stjórnendur telja aðsóknina þá mestu frá upphafi talninga og reikna með að helgin verði sú stærsta í sögu skíðasvæðisins.

Innlent
Fréttamynd

Þórsarar fá nýtt í­þrótta­hús

Bæjarráð Akureyrar samþykkti á fundi í morgun samkomulag um byggingu nýs íþróttahúss á félagssvæði Þórs. Íþróttahúsinu eru áætlaðir 4.600 fermetrar og þar af verður íþróttasalur með um 2.400 fermetra gólfflöt. Gert er ráð fyrir að það muni kosta á bilinu 3 til 4,5 milljarða króna.

Sport
Fréttamynd

Verra að vera í bíl en gangandi í svif­rykinu

Í mikilli svifryksmengun er betra að fara labbandi í vinnuna en keyrandi, að sögn formanns Félags lækna gegn umhverfisvá. Erlendar rannsóknir sýna að tíðni hjartaáfalla og heilablóðfalla aukist þá daga sem mengun er mikil. 

Innlent