Hraðhleðslustöðvar settar upp við verslanir Samkaupa Samkaup hefur opnað fyrstu rafhleðslustöðina við verslun Nettó í Borgarnesi. Fyrirtækið gerði fyrr á árinu samning við Írosku og mun bjóða upp á rafhleðslustöðvar við verslanir sínar um land allt. Viðskipti innlent 22. júlí 2021 13:34
Kia með flesta selda tengiltvinnbíla á árinu Sala á tengiltvinnbílum (Plug-in Hybrid) þ.e. bílum með rafmótor og bensínvél hefur verið góð á fyrstu sex mánuðum ársins. Alls hafa 1.675 tengiltvinnbílar hér á landi selst það sem af er ári en á fyrstu sjö mánuðum ársins 2020 voru þeir aðeins 967 talsins. Tengiltvinnbílar þykja gott fyrsta milliskref fyrir þá sem vilja skipta yfir í rafbíl og keyra mikið langkeyrslu inn á milli og finnst þægilegt að geta skipt yfir í bensín- eða díselvélina þegar rafmagnið minnkar. Bílar 21. júlí 2021 07:00
70 prósent hleðslustöðva í Evrópusambandinu eru í þremur löndum Flestar hleðslustöðvar fyrir rafbíla eru innan Hollands, Frakklands og Þýskalands, eða um 70%. Þrátt fyrir að mikil áhersla hafi verið lögð á að minnka umferð brunahreyfilsbíla, sérstaklega í borgum, virðist samkvæmt nýrri skýrslu um hleðslustöðvar, vanta talsvert upp á innviði. Bílar 19. júlí 2021 07:01
Peugeot e-208 sigraði keppni í nákvæmnisakstri annað árið í röð Rafbíllinn Peugeot e-208 sigraði í nákvæmnisakstri (Regularity Rally) en dagana 9-10. júlí fór fram Ísorka eRally Iceland 2021. Það voru Didier Malaga og Valérie Bonnel sem tryggðu sér fyrsta sætið í nákvæmnisakstri á Peugeot e-208 frá Brimborg. Didier og Valérie urðu heimsmeistarar árið 2018, í fyrsta mótinu hér á landi, og í öðru sæti árið 2019. Í öðru sæti í nákvæmnisakstri í ár voru Gunnlaugur og Patrekur á VW ID4 og í því þriðja Hákon og Hinrik á Tesla Model 3. Bílar 18. júlí 2021 07:01
Stefnubreyting hjá Volkswagen Group Volkswagen kynnti á dögunum nýja stefnu fyrir Volkswagen samsteypuna. Volkswagen skilgreinir sig nú sem hugbúnaðardrifið ferðalausna fyrirtæki með áherslu á vörumerkin sín og tækni grundvöll sem með samlegðaráhrifum eflir og opnar nýjar leiðir í átt að nýjum tekjustraumum. Bílar 16. júlí 2021 07:01
Stórlaxinn fyrrverandi lýsir dramatískum flótta frá Japan Carlos Ghosn, fyrrverandi forstjóri bílaframleiðandans Nissan, hefur nú stigið fram og lýst því í smáatriðum hvernig honum tókst að flýja undan yfirvöldum í Japan. Hann faldi sig meðal annars í hljóðfærakassa til að komast undan eftirliti á flugvelli þar sem einkaþota beið hans. Viðskipti erlent 14. júlí 2021 10:52
Lewis Hamilton setur upp grasrótarverkefni Sjöfaldi heimsmeistarinn Lewis Hamilton hefur sett upp grasrótarverkefni sem er ætlað að auka þátttöku svartra í tæknilegum störfum sérstaklega innan Formúlu 1. Bílar 14. júlí 2021 07:00
Rafvæðing framundan hjá Jaguar Framkvæmdastjóri Jaguar Land Rover, Thierry Bolloré hefur uppi miklar áætlanir um að breyta Jaguar í lúxus rafbílaframleiðanda. Bílar 12. júlí 2021 07:01
Ljónheppinn að fá bílaleigubíl Örtröð hefur verið á Keflavíkurflugvelli undanfarna daga, bæði við komuna til landsins og einnig í röðinni á leiðinni út. Í dag fóru tæplega 100 flugvélar um völlinn. Þrátt fyrir að bið geti verið nokkur við komuna til landsins báru ferðamenn sem fréttastofa ræddi við í dag öllum aðbúnaði á flugvellinum vel söguna. Innlent 11. júlí 2021 21:01
Tesla Model Y - fyrstu bílar í september Hönnunarumhverfið fyrir Tesla Model Y er nú aðgengilegt á íslenska vefsvæði Tesla. Bíllinn er fáanlegur í tveimur útfærslum, Long Range AWD og Performance. Verðið er frá 8.069.170kr. Bílar 11. júlí 2021 07:00
Myndband: Fjölskyldurúntur á Tesla Model S Plaid Meðal fjölskylda fer á rúntinn á Tesla Model S Plaid. Model S er fjölskyldubíll sem hefur alltaf verið þekktur fyrir góða hröðun. Bílar 9. júlí 2021 07:00
Öryggi og notkun rafbíla Fjölbreyttir fararmátar standa nú fólki til boða. Horft er til vistvænni og hagkvæmari fararmáta og rafbílar hafa rutt sér til rúms hér á landi. Þeir henta íslenskum aðstæðum vel og eru þjóðhagslega hagkvæmir þar sem allt rafmagn á Íslandi er framleitt innanlands. Skoðun 7. júlí 2021 08:01
Bugatti og Rimac þróa næstu kynslóð ofurbíla saman Nýstofnað félag Bugatti Rimac mun vera með höfuðstöðvar í Króatíu en Bugatti mun áfram vera í Molsheim verksmiðjunni sinni. Verkefnið er búið að vera í gangi í þónokkurn tíma en fyrst núna gert opinbert. Bílar 7. júlí 2021 07:00
Nýskráningar ökutækja aukast um 69% á milli ára Alls voru nýskráð 2203 ný ökutæki í júní sem er aukning um tæp 260 ökutæki á milli mánaða, í maí voru 1947 ökutæki nýskráð. En á milli ára er aukningin nærri því 900 bílar, eða 69% aukning. Flestar nýskráningar bifreiða voru af Toyota gerð í júní. Bílar 5. júlí 2021 07:01
Uppgjör rafborgarbílanna Undanfarið hafa birst hér á Vísi umfjallanir um rafborgarbílana Renault Zoe og Volkswagen e-Up!. Þeir verða bornir saman hér með það markmið að gera upp á milli þeirra og ákveða hvor sé betri. Bílar 4. júlí 2021 07:01
Júní stærsti mánuður Peugeot á Íslandi Júní mánuður var sá stærsti í sögu Peugeot á Íslandi með 80 selda bíla. Rafmagns- og tengiltvinntækni (PHEV) Peugeot leikur þar einnig lykilhlutverk ásamt nýjum fjórhjóladrifnum PHEV bíl. Bílar 2. júlí 2021 07:01
Tesla opnar tvær nýjar ofurhleðslustöðvar Tesla mun opna tvær nýjar ofurhleðslustöðvar á Íslandi. Báðar stöðvar munu vera búnar V3 ofurhleðslutækninni sem getur náð allt að 250kW. Stöðvarnar eru á Kirkjubæjarklaustri og við sölustað Tesla við Vatnagarða í Reykjavík. Bílar 29. júní 2021 07:01
„Menn eru ekki á eitt sáttir um þessa niðurstöðu“ Straumur var tekinn af 156 hleðslustöðvum fyrir rafbíla í Reykjavík í morgun og býst skrifstofustjóri borgarinnar við því að slökkt verði á stöðvunum út vikuna. Formaður Rafbílasambands Íslands segir þetta hafa töluverð áhrif á rafbílaeigendur og harmar að úrskurðurinn hafi valdið því að slökkva þurfti á stöðvunum. Innlent 28. júní 2021 12:16
Scania með bestu eldsneytisskilvirknina Fjögur ár í röð hefur Scania unnið hin virtu „Green Truck“ verðlaun. Nú staðfesta tölur frá framkvæmdastjórn ESB að Scania stendur sig best meðal stórbílaframleiðenda í að draga úr losun koltvísýrings. Bílar 28. júní 2021 07:01
Borgarstjóri segir bagalegt að slökkva þurfi á hleðslustöðvunum Straumur verður tekinn af 156 hleðslustöðvum fyrir rafbíla í Reykjavík á morgun. Óvissa ríkir um hvenær hægt verður að taka stöðvarnar, sem telja meirihluta stöðva sem borgin rekur, aftur í notkun. Borgarstjóri segir málið bagalegt. Viðskipti innlent 27. júní 2021 20:30
Volkswagen e-Up - Ekki snobbað fyrir einhverjum óþarfa Volkwagen e-Up er fimm dyra fjögurra manna rafborgarbíll sem er alveg eins og hefðbundinn Up, nema rafdrifinn. Það er meira að segja raunverulegur lykill sem þarf að snúa í einhverskonar sviss til að „setja í gang“ eða virkja bílinn. Hann er hressilega einfaldur og aðgengilegur. Bílar 27. júní 2021 07:00
Ísorka minnti kærunefnd á sektarheimildir vegna hleðslustöðva Lögmaður Ísorku sendi kærunefnd útboðsmála bréf með athugasemdum við að rafmagn væri áfram veitt í hleðslustöðvum Orku náttúrunnar í Reykjavík þrátt fyrir að nefndin hefði úrskurðað samning um þær óvirkan. Framkvæmdastjóri Ísorku fullyrti í gær að engin samskipti hefðu átt sér stað við kærunefndina. Viðskipti innlent 26. júní 2021 18:23
Ísorka hafnar ábyrgð á að slökkt verði á hleðlustöðvum Framkvæmdastjóri Ísorku hafnar því að kvörtun fyrirtækisins sé orsök þess að Orka náttúrunnar ætlar að taka straum af á annað hundrað hleðslustöðvum fyrir rafbíla í Reykjavík. Hann segir Reykjavíkurborg rót vandans. Viðskipti innlent 25. júní 2021 18:01
Slökkva á 156 götuhleðslum í borginni og kenna Ísorku um Orka náttúrunnar hyggst taka strauminn af þeim 156 götuhleðslum sem fyrirtækið hefur sett upp um víða borg. Félagið sér sig knúið til þess í kjölfar kvörtunar Ísorku yfir að hleðslurnar væru opnar hverjum sem er og það gjaldfrjálst. Slökkt verður á stöðvunum 28. júní. Neytendur 25. júní 2021 14:32
Nýtt bílasölusvæði rís við Krókháls 7 Framkvæmdir eru hafnar að nýju bílasölusvæði að Krókhálsi 7. Um er að ræða nýtt og fullkomið bílasölusvæði sem mun bjóða upp á úrval af notuðum bílum frá öllum helstu bílamerkjum. Bílar 25. júní 2021 07:01
Hvað með trukkana? Trukkur, samkvæmt orðabók, er stór og kraftmikill vörubíll. Trukkar eru okkur mikilvægir þó flest okkar leiði hugann sjaldnast að þeim. Skoðun 24. júní 2021 15:30
Hleðsla rafbíla í áskrift Orka náttúrunnar hefur kynnt til sögunnar nýja lausn á Íslandi þegar kemur að hleðslu rafbíla við heimahús, hvort sem er einbýli eða fjölbýli. Bílar 23. júní 2021 07:01
McLaren F1 ekinn um 400 km, verð 1,9 milljarðar króna Ofurbíllinn McLaren F1 er táknmynd ofurbíla frá tíunda áratugnum. Það er einn slíkur til sölu á uppboði og áætlað verð er 15 milljónir dollara hjá uppboðshúsinu Gooding & Company. Bílar 21. júní 2021 07:01
Renault Zoe - eins og félagsheimilið í Með allt á hreinu Renault Zoe er fimm manna rafdrifinn borgarbíll. Hann er smekklega hannaður og staða ökumanns er afburðagóð. Drægnin er í ofanálag mjög fín. Zoe er meiri bíll en svo að hægt sé að kalla hann borgarsnattara, eins og flokkunin gefur til kynna. Hann er þéttur og góður og því vel hæfur til langkeyrslu. Bílar 20. júní 2021 07:00
BMW prófar vetnis-hlaðinn X5 BMW hefur hafið prófanir á „næstum staðal útgáfu“ af X5 sem er knúinn áfram með rafmangi, unnu úr vetni. Hann verður prófaður í Evrópu í „raunverulegum aðstæðum“ en BMW ætlar að koma FCEV bíl á markað jafnvel á árinu 2025. Bílar 18. júní 2021 07:00