

Njarðvíkingar tóku á móti Íslandsmeisturum Tindastóls í Ljónagryfjunni í kvöld þegar sjöunda umferð Subway deildar karla hóf göngu sína.
Valur vann góðan ellefu stiga sigur er liðið tók á móti Hetti í Subway-deild karla í körfubolta í kvöld, 80-69.
Pétur Ingvarsson, þjálfari Keflavíkur, var afar ánægður með nítján stiga sigur gegn Álftanes 97-78.
Keflavík vann Álftanes afar sannfærandi 97-78 og komst aftur á sigurbraut. Keflavík átti gott áhlaup í öðrum leikhluta og heimamenn litu aldrei um öxl eftir það. Keflavík vann á endanum nítján stiga sigur.
Grindavíkurliðin spila bæði næsta heimaleik sinn í Subway-deildunum í körfubolta í Smáranum í Kópavogi á laugardaginn en það verður ekki spilað í Grindavík á næstunni enda bærinn í miðju umbrotanna á Reykjanesinu.
Halldór Karl Þórsson, þjálfari nýliða Hamars í Subway deild karla í körfubolta, gerði stórar breytingar á leikmannahópi sínum eftir að liðið tapaði sex fyrstu leikjum sínum. Hann segist hafa vilja semja við Jalen Moore um leið og hann var rekinn frá Haukum.
Þór Þorlákshöfn vann öruggan 16 stiga sigur er liðið tók á móti botnliði Breiðabliks í Subway-deild karla í körfubolta í kvöld, 120-104.
Jalen Moore var fljótur að finna sér annað félag á Íslandi eftir að Haukarnir létu hann fara fyrr í vikunni.
Körfuboltalið Grindavíkur eru byrjuð að æfa eftir að bærinn var rýmdur á föstudag vegna jarðhræringa á svæðinu.
Stöð 2 Sport blæs til körfuboltaveislu næstkomandi laugardag en þá verða tveir tvíhöfðar í beinni útsendingu.
Formaður körfuknattleiksdeildar Grindavíkur er óviss um framvindu starfs deildarinnar vegna óvissunar sem ríkir sökum jarðhræringa og mögulegs eldgoss á Reykjanesskaga. Hann er líkt og aðrir Grindvíkingar í áfalli eftir þróun mála síðustu daga.
Bandaríski bakvörðurinn Jalen Moore hefur leikið sinn síðasta leik fyrir Hauka í Subway deild karla í körfubolta. Hann er stigahæsti leikmaður deildarinnar þegar hann er látinn taka pokann sinn.
Næstu leikir karla- og kvennaliða Grindavíkur í körfubolta fara fram í Smáranum í Kópavogi á laugardaginn og það í opinni dagskrá á Stöð 2 Sport.
Úrslitakeppni karla í körfubolta var tekin upp árið 1984. Körfuboltakvöld ætlar að komast að því hvað er besta lið allra tíma. Að þessu sinni var viðureignin á milli Njarðvíkurliðsins frá 1995 og Keflavíkurliðsins frá 1997.
Hannes S. Jónsson, framkvæmdastjóri Körfuknattleikssambands Íslands, segir að líta verði framhjá öllum reglum sambandsins varðandi heimaleiki Grindvíkinga í þessum fordæmalausu aðstæðum.
Hannes Jónsson, framkvæmdastjóri KKÍ sendi frá sér tilkynningu fyrir hönd KKÍ og körfuknattleikshreyfingarinnar vegna ástandsins í Grindavík en það er nokkuð ljóst að Grindvíkingar eru ekki að fara að spila leiki í Subway deildunum á meðan staðan er svona.
Magnús Þór Gunnarsson þreytti frumraun sína sem sérfræðingur í setti á Subway Körfuboltakvöldi. Hann rifjaði þar upp góða sögu frá ferlinum þar sem sást til hans snúa baki í áhorfendur og háma í sig snakk á varamannabekk Keflavíkur.
Fögrum orðum var farið um Arnór Helgason, 17 ára leikmann Grindavíkur og eina skærustu vonarstjörnu Subway deildar karla, eftir frammistöðu hans gegn Þór Þorlákshöfn í 6. umferð.
„Segja hvað? Þetta var stórkostlegur leikur, sviptingar og stórir hlutir að gerast. Verður að koma með þægilegri spurningu en þetta,“ sagði Finnur Freyr Stefánsson eftir ótrúlegan þriggja stiga sigur Vals á Haukum í tvíframlengdum leik í Ólafssal.
Valsmenn unnu Hauka í ótrúlegum körfuboltaleik í Ólafssal í Subway-deild karla í kvöld. Leikurinn var tvíframlengdur eftir hreint út sagt ótrúlegar körfur undir lok leiks og lok fyrri framlengingar kvöldsins.
Þó Haukar hafi á endanum tapað með þriggja stiga mun gegn Val í Subway-deild karla þá skoraði Ville Tahvanainen eina flottustu körfu ársins sem tryggði Haukum framlengingu.
Breiðablik mátti þola sjötta tap sitt í röð þegar liðið tók á móti Njarðvík í Smáranum. Lokatölur í þessari viðureign 6. umferðar Subway deildar karla urðu 93-99. Blikarnir sitja því enn stigalausir í neðsta sæti deildarinnar.
Breiðablik mátti þola sjötta tap sitt í röð þegar liðið tók á móti Njarðvík í Smáranum. Lokatölur í þessari viðureign 6. umferðar Subway deildar karla urðu 93-99. Blikarnir sitja því enn stigalausir í neðsta sæti deildarinnar.Njarðvík endaði sína taphrinu með þessum sigri en liðið hafði tapað tvisvar í röð eftir að hafa unnið fyrsta þrjá deildarleikina.
Kári Jónsson er uppalinn Haukamaður en hann spilar í dag með Val. Kári hefur aldrei upplifað það að vera í tapliði í úrvalsdeildinni þegar þessi tvö lið mætast.
Bandaríkjamanninn Remy Martin vantaði í lið Keflavíkur þegar liðið tapaði 83-75 fyrir Hetti á Egilsstöðum í kvöld í úrvalsdeild karla í körfuknattleik. Það hafði engin áhrif á gleði Héraðsbúa sem fögnuðu góðum sigri.
Viðar Örn Hafsteinsson, þjálfari Hattar, var ánægður eftir 83-75 sigur á Keflavík á Egilsstöðum í kvöld. Frábær liðsheild Hattar, þar sem stigaskorið dreifðist mjög vel, lagði grunninn að sigrinum.
Stjarnan vann virkilega sterkan átta stiga sigur er liðið heimsótti Íslandsmeistara Tindastóls í framlengdum leik í Subway-deild karla í körfubolta í kvöld, 78-84.
Jóhann Þór Ólafsson var ánægður með þriðja sigur Grindavíkur í röð í Subway-deild karla. Grindvíkingar lögðu Þórsara frá Þorlákshöfn á heimavelli sínum í kvöld.
Grindavík vann sigur á Þór frá Þorlákshöfn í háspennuleik í Grindavík í kvöld. Heimamenn voru yfir nær allan leikinn en spennan undir lokin var mikil.
Andri Már Eggertsson, Nabblinn, skellti sér til Keflavíkur á leikdegi og drakk í sig stemmninguna.