

Dómsmál
Fréttir af málum sem rata fyrir dómstóla.

Segir málið hið sérkennilegasta og krefst svara
Dómsmálaráðherra hefur óskað eftir gögnum frá Þjóðskrá vegna nafnabreytingar Mohammad Kourini sem fékk nafni sínu breytt í Mohamad Th. Jóhannesson. Hún væntir svara frá stofnuninni og ítrekar að sveigjanleiki í lögum um nafnabreytingar sé ekki ætlaður að auðvelda brotamönnum að fela sig í samfélaginu.

Ráðherra hyggst skoða nafnabreytingu Mohamad Th. Jóhannessonar
Guðrún Hafsteinsdóttir dómsmálaráðherra hefur óskað eftir upplýsingum frá Þjóðskrá um það hvernig lagaákvæði um kenninafnabreytingar var túlkað þegar Mohamad Kourani fékk nafni sínu breytt í Mohamad Thor Jóhannesson.

Dagbjört dæmd í tíu ára fangelsi fyrir líkamsárás
Dagbjört Guðrún Rúnarsdóttir var dæmd í tíu ára fangelsi fyrir líkamsárás í Bátavogsmálinu svokallaða. Dómur var kveðinn upp í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær.

Kona grunuð um að verða sex ára syni sínum að bana sögð sakhæf
Kona sem er grunuð um að hafa orðið syni sínum að bana og sögð hafa reynt að veita öðrum syni sínum bana á Nýbýlavegi í Kópavogi fyrr á þessu ári er sakhæf að mati matsmanna.

Kæra vararíkissaksóknara vegna ummæla um innflytjendur
Stjórn Solaris, hjálparsamtaka fyrir hælisleitendur og flóttafólk á Íslandi hefur lagt fram kæru á hendur Helga Magnúsi Gunnarssyni vararíkissaksóknara vegna ummæla sem hann lét falla um innflytjendur frá Mið-Austurlöndum og um Solaris-samtökin í síðustu viku.

Kourani tekur upp íslenskt nafn
Sakamaðurinn sem áður gegndi nafninu Mohamad Kourani hefur ákveðið að breyta um eftirnafn. Hann vill fella niður nafnið Kourani og taka upp millinafnið Thor og eftirnafnið Jóhannesson.

Solaris fordæmir ummæli vararíkissaksóknara
Stjórn Solaris, hjálparsamtaka fyrir hælisleitendur og flóttafólk á Íslandi, fordæmir ummæli Helga Magnúsar Gunnarssonar vararíkissaksóknara um samtökin sem hann lét falla í færslu á Facebook síðu sinni í gær.

Gerir ættar- og meint hagsmunatengsl Odds að umtalsefni
Helgi Magnús Gunnarsson vararíkissaksóknari gerir ættar- og meint hagsmunatengsl Odds Ástráðssonar lögmanns að umtalsefni í færslu á Facebook, þar sem hann bregst við gagnrýni Odds.

Ákærð vegna amfetamínsbasa í áfengisflöskum og snyrtivörum
Þrír karlmenn og ein kona hafa verið ákærð fyrir innflutning á samtals 6,8 lítrum af amfetamínbasa sem er talin hafa verið ætlaður til söludreifingar hér á landi.

„Maður sem tjáir sig svona getur ekki farið með þetta vald“
Oddur Ástráðsson, lögmaður og einn eigenda á lögmannsstofunni Rétti, gerir alvarlegar athugasemdir við orðræðu Helga Magnúsar Gunnarssonar vararíkissaksóknara um innflytjendur.

Dæmdur í fangelsi á grundvelli úrelts sakavottorðs
Endurupptökudómur hefur fallist á endurupptökukröfu karlmanns sem hlaut þrjátíu daga fangelsisdóm fyrir umferðarlagabrot. Við ákvörðun refsingar hans var tekið mið af sakavottorði sem útbúið hafði verið áður en Landsréttur sneri við dómi yfir honum.

Grunaðir um kókaíninnflutning í gegnum kaffikönnu og útvarp
Þrír karlmenn hafa verið ákærðir fyrir stórfelld fíkniefnalagabrot vegna innflutnings á kókaíni sem var falið annars vegar í kaffikönnu og hins vegar í útvarpstæki.

Óvenjulegi tölvupósturinn birtur: Spurði dómarann hvaða starfsmann hann ætti að reka fyrir jólin
Ómar Valdimarsson lögmaður hefur verið hirtur af úrskurðarnefnd lögmanna fyrir tölvupósta sem hann sendi dómara við Héraðsdóm Reykjavíkur, dómstjóra sama dómstóls og 26 öðrum lögmönnum. Ómar sendi dómaranum bréf þar sem hann kvartaði undan lágri dæmdri málsvarnarþóknun og sagðist þurfa að segja upp starfsmanni vegna hennar.

„Það eina sem stoppar þá er hnefinn, valdbeiting“
Helgi Magnús Gunnarsson vararíkissaksóknari segir marga fegna því að sjá Mohamad Kourani bak við lás og slá. En þó hann sé ýkt dæmi erum við að flytja inn í stórum stíl menn sem gefa ekki mikið fyrir okkar samfélagsgerð og sáttmála.

Fallist á áframhaldandi gæsluvarðhald
Héraðsdómur hefur fallist á áframhaldandi gæsluvarðhald til 9. ágúst næstkomandi yfir manni á sjötugsaldri, sem grunaður er um að hafa banað eiginkonu sinni á Akureyri í apríl.

„Við erum bara að segja þeim að vinna vinnuna sína“
Embætti ríkissaksóknara hefur skipað Lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu að ljúka rannsókn á fjársöfnun Semu Erlu Serdoglu, stofnanda Solaris, og Maríu Lilju Ingveldar Þrastardóttur Kemp, sjálfboðaliða samtakanna.

Ætlar að áfrýja til Landsréttar
Mohamad Kourani, sem var í dag dæmdur í átta ára fangelsi fyrir tilraun til manndráps í OK Market, og fjölda annarra brota, ætlar að áfrýja dómi Héraðsdóms Reykjaness til Landsréttar.

Hefur aldrei verið í vinnu en hefur verið iðinn við afbrot
Mohamad Kourani, sem var í dag dæmdur í átta ára fangelsi fyrir tilraun til manndráps og fjölda annarra brota, á enga fjölskyldu hér á landi, hefur aldrei verið í vinnu og hefur þegið opinbert fé til framfærslu. Innan við ári eftir komu til landsins hlaut hann sinn fyrsta refsidóm af þónokkrum.

Kæra MAST vegna rekstrarleyfis til Arnarlax
Fjöldi einstaklinga og samtaka hefur lagt fram kæru á hendur Matvælastofnun – MAST – vegna útgáfu á rekstrarleyfi til fiskeldis í Óshlíð, Drangsvík og Eyjahlíð sem dagsett er 13. júlí til Arnarlax.

Ákærður vegna andlátsins í Naustahverfi
Karlmaður á sjötugsaldi hefur verið ákærður í tengslum við andlát eiginkonu hans að heimili þeirra að Kjarnagötu á Akureyri í apríl. Ákæran hefur ekki verið birt manninum og því getur Héraðssaksóknari ekki gefið upp fyrir hvað maðurinn er ákærður nákvæmlega.

Kourani dæmdur í átta ára fangelsi
Mohamad Kourani hefur verið dæmdur í átta ára fangelsi fyrir tilraun til manndráps í OK Market í mars og fjölda annarra brota.

Lögregla látin skila milljónum sem dómurinn telur líklega illa fengið fé
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu þarf að láta af hendi 7,13 milljónir króna í reiðufé sem hún lagði hald á árið 2021 í tengslum við rannsókn á skipulagðri brotastarfsemi. Maður, sem er eigandi peninganna, er ásamt öðrum grunaður í máli sem varðar innflutning, framleiðslu og dreifingu fíkniefna, sem og ýmis auðgunarbrot, stórfelldan þjófnað og peningaþvætti.

Klessti bíl og eigandinn kom í jakka einum fata á vettvang
Maður sem ók bíl undir áhrifum áfengis, klessti honum á kyrrstæðan aftanívagn, og kom sér af vettvangi hlaut dóm í Héraðsdómi Reykjavíkur á dögunum. Honum er gert að greiða 240 þúsund króna sekt til ríkissjóðs eða sæta átján daga fangelsi. Jafnframt var hann sviptur ökuréttindum.

Skipstjórinn dæmdur í tólf mánaða skilorðsbundið fangelsi
Skipstjóri og stýrimaður fraktskipsins Longdawn voru sakfelldir í Héraðsdómi Reykjaness í dag fyrir að skilja skipstjóra strandveiðibátsins Höddu HF eftir í sjávarháska, eftir að hafa siglt skipinu á bátinn.

Skipstjórinn var drukkinn og skipaði stýrimanni að sigla á brott
Skipstjóri og stýrimaður fraktskipsins Longdawn játuðu sök þegar mál ákæruvaldsins á hendur þeim var þingfest í dag. Þeim var gefið að sök að hafa skilið skipstjóra strandveiðibátsins Höddu HF eftir í sjávarháska, eftir að hafa siglt skipinu á bátinn. Þá játaði skipstjórinn að hafa verið drukkinn.

Jón Einar sakfelldur fyrir umfangsmikla sjónræningjastarfsemi
Jón Einar Eysteinsson, athafnamaður á Spáni, hefur verið dæmdur til að sæta fangelsi í 60 daga – skilorðsbundið. Og fallist er á bótakröfu á hendur honum af hálfu Stöðvar 2. Þetta er fyrir að hafa gegn betri vitund selt ótilgreindum fjölda fólks aðgang að læstri dagskrá sjónvarpsstöðva í gegnum streymisveitu sína.

Ætlar að leggja til málshöfðun á hendur íslenska ríkinu
Íslenska ríkið hefur hafnað miska- og skaðabótagreiðslu til handa ekkju Andemariams Beyene sem lést 30. janúar 2014 í kjölfar plastbarkaígræðslu á Karólínska háskólasjúkrahúsinu í júní árið 2011. Lögmaður ekkjunnar er Sigurður G. Guðjónsson mun að öllum líkindum leggja til við skjólstæðing sinn að hún höfði mál á hendur íslenska ríkinu.

Sýslumaður hótar því að taka aðventista af skrá
Sýslumaðurinn á Norðurlandi eystra hefur ritað stjórn Kirkju sjöunda dags aðventista bréf þar sem hann krefst þess að ef stjórnin ljúki ekki aðalfundi sem staðið hefur í tvö ár fyrir 10. ágúst næstkomandi þá muni hann grípa til þess að fella félagið af skrá sem trúfélag.

Fleygði lögreglumanni í jörðina eftir hlaup um miðbæ Akureyrar
Karlmaður á fertugsaldri hlaut þriggja mánaða fangelsisdóm, skilorðsbundinn til þriggja ára, í Héraðsdómi Norðurlands eystra fyrir að veitast að lögreglumanni í miðbæ Akureyrar í júlí í fyrra.

Páll Winkel segir slæma hegðun fanga hafa færst í aukana
Páll Winkel fangelsismálastjóri segir slæma hegðun fanga hafa aukist uppá síðkastið. Hann kýs að tjá sig ekki sérstaklega um mál Mohamed Kourani en almennt megi segja þetta um stöðu mála. Páll segir nauðsynlegt að fjölga fangavörðum.