

Eldgos á Reykjanesskaga
Hrina eldgosa á Reykjanesskaga hófst í mars 2021 í Geldingadölum. Það tíunda varð norðan Grindavíkur í nóvember 2024.

Stríður straumur fólks í Geldingadal: Dæmi um að fólk mæti á gallabuxum og strigaskóm
Fólk hefur í dag lagt leið sína í stríðum straumum að eldgosinu í Geldingadal. Lokað er fyrir bílaumferð inn á svæðið en fólki hefur verið hleypt inn á svæðið fótgangandi. Dæmi eru um að fólk hafi lagt af stað á vettvang illa búið fyrir þær aðstæður sem blasa við á svæðinu.

Fögur gígaröð er að mótast í eldgosinu
Ný fögur gígaröð virðist ætla að verða til með eldgosinu í Geldingadölum við Fagradalsfjall. Sjón er sögu ríkari á meðfylgjandi myndskeiði sem tekið var í þyrluflugi fréttamanna Stöðvar 2, Vísis og Bylgjunnar um tíuleytið í morgun.

Eldsumbrotum á Reykjanesi eigi eftir að fjölga til muna
Einn reynslumesti jarðeðlisfræðingur landsins segir að gosið í Geldingadal sýni að runnið sé upp nýtt kvikuskeið á Reykjanesinu. Eldsumbrotin minni á upphaf Kröfluelda og faslega megi gera ráð fyrir fleiri eldgosum á Reykjanesskaganum í náinni framtíð.

Eitt minnsta gos sem sögur fara af og hraunflæðið á við Elliðaár
Ólíklegt er að mikil jarðskjálftavirkni verði í kjölfar eldgossins í Geldingadal en áfram er von á smáskjálftum. Engin hætta stafar af gasmengun í byggð að svo stöddu en mengunin gerir að að verkum að mjög hættulegt getur verið að fara upp að svæðinu við vissar aðstæður.

Svona var upplýsingafundurinn vegna eldgossins í Geldingadal
Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra og Veðurstofa Íslands munu halda upplýsingafund klukkan tvö í dag. Þar verður sagt frá stöðu mála varðandi eldgosið í Geldingadal á Reykjanesi.

Adrenalínfíklar í Geldingadal í nótt: „Maður lifir hvort eð er bara einu sinni“
Ævintýramaðurinn Steinn Alex Kristgeirsson fór alveg upp að gosinu í Geldingadal í nótt ásamt vinum sínum og náði af því sláandi nærmyndum. Hann segir að þeir hafi byrjað að ganga að gossvæðinu um klukkan 23:30 í gær og verið komnir þangað eftir yfir þrjár klukkustundir.

Fegurð eldgossins í gegnum linsu ljósmyndarans
Eldgosið í Geldingadal þykir ekki stórt en það þykir sjónrænt og jafnvel fallegt. Það hófst skömmu fyrir klukkan níu í gærkvöldi og síðan þá hefur dregið nokkuð úr virkni.

Víðir mælir með að vel búið göngufólk gangi frá Bláa lóninu
Víðir Reynisson yfirlögregluþjónn beinir þeim tilmælum til fólks sem ætlar að fara að virða fyrir sér gosið í Geldingadal að gera sér grein fyrir ákveðnum staðreyndum.

Sjáðu hádegisfréttir Stöðvar 2
Fréttastofa Stöðvar 2, Bylgjunnar og Vísi verða með aukafréttatíma í hádeginu í dag, þar sem fjallað verður um eldgosið í Geldingadal.

„Móðir náttúra gefur okkur stórkostlega náttúrusmíð“
Kristján Már Unnarsson, fréttamaður Stöðvar 2, segir eldgosið í Geldingadal líklega vera það minnsta sem hann hafi séð hingað til. Það sé þó mjög fallegt.

Ekki líklegt að gasmengun berist til Grindavíkur
Fannar Jónasson, bæjarstjóri Grindavíkur, segir að eldgosið í Geldingadal hafi létt á spennu á svæðinu og þess sé vænst að jarðskjálftum muni fækka. Enn sé þó mögulegt að þeim gæti fjölgað, þó það sé ólíklegra.

Almannavarnastig lækkað niður á hættustig
Almannavarnastig hefur verið lækkað niður á hættustig vegna eldgoss í Geldingadal. Þetta kemur fram í tilkynningu frá almannavörnum. Neyðtarstigi var lýst í gærkvöldi þegar ljóst var að byrjað var að gjósa.

Myndskeið af eldgosinu
Hraunið flæðir upp úr jörðinni í Geldingadal á Reykjanesi. Sérfræðingar Veðurstofunnar segja um lítið eldgos að ræða.

Þyrluferð á gosstað
Kristján Már Unnarsson, fréttamaður Stöðvar 2, er í þyrlu yfir eldgosinu í Geldingadal.

Sjáðu aukafréttatíma Stöðvar 2 klukkan tíu
Fréttastofa Stöðvar 2, Vísis og Bylgjunnar blés til aukafréttatíma klukkan tíu vegna jarðhræringanna á Reykjanesi.

Fjórtán gistu í fjöldahjálparstöð Rauða krossins
Rauði krossinn opnaði fjöldahjálparstöð í Hópsskóla í Grindavík í gærkvöldi þar sem fjórtán gistu í nótt vegna rýmingar í Krýsuvík. Enginn var í hættu.

Nýjar myndir af gosinu í Geldingadal
Áhöfn þyrlu Landhelgisgæslunnar tók í morgun nýjar myndir af eldgosinu í Geldingadal.

Næsta flug yfir gosstöðvarnar klukkan sjö
Aftur verður flogið yfir gosstöðvarnar í Geldingadal við Fagradalsfjall klukkan sjö. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Veðurstofu Íslands rétt í þessu.

Þetta vitum við um eldgosið í Geldingadal
Eldgos hófst í Geldingadal við Fagradalsfjall klukkan 20:45 í gærkvöldi. Klukkan 21:36 hringdi kona inn á fréttastofu Stöðvar 2, Vísis og Bylgjunnar og velti því upp hvort gos væri mögulega hafið á Reykjanesskaga. Hún taldi sig hafa séð rauðan bjarma á vefmyndavél sem hún var að fylgjast með.

Kristján Már fór yfir eldgos síðustu þriggja áratuga í beinni
„Ég heyrði að Páll Einarsson nefndi Kröfluelda, það var einmitt fyrsta gosið sem ég dekkaði sem fréttamaður,“ sagði Kristján Már Unnarsson, fréttamaður okkar, í beinni útsendingu frá Grindavík í kvöld þar sem hann fylgdist með eldgosinu í Geldingadal.

Boða til upplýsingafundar vegna eldgossins
Almannavarnir og Veðurstofa Íslands boða til upplýsingafundar klukkan 14 þann 20. mars vegna eldgossins í Geldingadal. Sýnt verður beint frá fundinum hér á Vísi.

Eldgosið í „Fagradals Mountain volcano“ vekur heimsathygli
Eldgosið sem nú stendur yfir í Geldingadal við Fagradalsfjall hefur vakið heimsathygli. Erlendir fjölmiðlar fjalla margir um gosið í kvöld og lýsa því að eldfjall sem legið hafi lengi í dvala hafi loks vaknað til lífsins.

Ráðleggingar um viðbrögð við gasmengun
Miðað við umfang gossins í Geldingadal nú virðist það ekki koma til með að ógna byggð eða mannvirkjum. Aftur á móti er möguleiki á því að gasmengun geti valdið óþægindum hjá fólki.

Sóttu þrjá illa búna í grennd við gosið
Björgunarsveitin Þorbjörn í Grindavík sótti í kvöld illa búið fólk í grennd við eldgosið í Geldingadal við Fagradalsfjall. Önnur verkefni sveitarinnar hafa meðal annars snúið að því að fylgja vísindamönnum um svæðið og loka vegum.

Sjáðu eldgosið úr þyrlu Landhelgisgæslunnar
Myndbönd frá Landhelgisgæslunni sýna vel eldgosið sem nú er í gangi í Geldingadal við Fagradalsfjall. Hraun spýtist upp úr sprungunni á nokkrum stöðum og glóandi hrauntungur renna frá sprungunni í tvær áttir.

„Það er engin bráðahætta í gangi“
Víðir Reynisson yfirlögregluþjónn hjá almannavörnum var ræstur út í húsakynni Almannavarna í Skógarhlíð á tíunda tímanum í kvöld þegar flest benti til þess að eldgos væri hafið á Reykjanesi. Sú reyndist raunin.

Gosið kom Kristínu á óvart
Gossprungan sem myndast hefur í eldgosinu í Geldingadal á Reykjanesskaga er 500 til 700 metra löng. Hraun rennur í tvær áttir, annars vegar til suðurs og hins vegar til vesturs.

Búið að opna fyrir umferð á Reykjanesbraut
Opið er fyrir umferð á Reykjanesbraut á ný eftir að henni var lokað um tíuleytið í kvöld vegna eldgossins í Geldingadal. Hjördís Guðmundsdóttir, samskiptastjóri almannavarna, ítrekar þó að fólk eigi ekki að vera á ferðinni nærri gossvæðinu að óþörfu.

Myndband sýnir hraunið renna úr sprungunni
Veðurstofa Íslands birti nú á tólfta tímanum myndband af eldgosinu sem hófst í kvöld í Geldingadal við Fagradalsfjall. Myndbandið sýnir hraun renna úr sprungunni sem talin er um 200 metra löng.

„Þetta er einhver heppilegasti staður á Reykjanesskaga fyrir hraungos“
Páll Einarsson, jarðeðlisfræðingur, segir að eldgosið sem hófst fyrr í kvöld í Geldingadal við Fagradalsfjall á Reykjanesskaga sé að koma upp á heppilegasta stað á skaganum. Svo virðist sem gosið sé lítið og að því fylgi lítill órói.