Vinícius hrósaði Sevilla fyrir að reka rasískan aðdáanda af velli Vinícius Júnior, leikmaður Real Madrid, hefur hrósað Sevilla fyrir skjót og góð viðbrögð við meintu kynþáttahatri sem hann varð fyrir í leik liðanna. Hann sagði þetta vera nítjánda skiptið sem hann verði slíkum fordómum og biðlar til spænskra yfirvalda að athafna sig í þeim málaflokki. Fótbolti 22. október 2023 09:30
Stríðinu á Gaza mótmælt á fótboltavöllum víða um Evrópu Stuðningsmenn Osasuna virtu að vettugi bann spænsku deildarinnar og mættu með palestínska fána á leik liðsins gegn Granada í gær. Shon Weissman, leikmaður Granada, er frá Ísrael og hefur látið ýmis ófögur orð falla á samfélagsmiðlum um fólk frá Palestínu. Fótbolti 21. október 2023 23:30
Ten Hag sagði sigurinn verðskuldaðan Erik ten Hag, stjóri Manchester United, sagði að sigur hans manna hefði verið verðskuldaður í dag en fyrri hálfleikur hefði alls ekki verið góður. Diogo Dalot tryggði United sigurinn með draumamarki. Fótbolti 21. október 2023 22:21
Algjört grísamark hjá Griezmann sem færist nær markameti Atletico Atletico Madrid vann sinn fimmta deildarleik í dag þegar liðið lagði Celta Vigo örugglega á útivelli 0-3. Antoine Griezmann skoraði öll þrjú mörk liðsins en annað mark hans var sannkallað grísamark. Fótbolti 21. október 2023 21:51
Draumamark Diogo Dalot tryggði Manchester United sigur Manchester United vann tæpan sigur á nýliðum Sheffield United á Brammall Lane í kvöld þar sem Diogo Dalot bjargaði sigrinum með glæsilegu marki á 77. mínútu. Enski boltinn 21. október 2023 21:00
Arteta þögull sem gröfin um dómgæslu dagsins Mikel Arteta, knattspyrnustjóri Arsenal, var ekki á eitt sáttur við dómgæsluna í leik Arsenal og Chelsa í dag en heimamenn í Chelsea komust yfir með marki úr víti. Fótbolti 21. október 2023 19:48
Arsenal enn taplausir eftir endurkomujafntefli Arsenal björguðu stigi með frábærri endurkomu á Stamford Bridge í dag en Chelsea komust í 2-0 í upphafi síðari hálfleiks. Enski boltinn 21. október 2023 18:45
Fullyrðir að Ólafur Ingi sé að taka við KR Fótboltagúrúinn Hjörvar Hafliðason, einnig þekktur sem Dr. Football, greindi frá því á Twitter í dag Ólafur Ingi Skúlason verði næsti þjálfari KR. Í sömu færslu segir hann að Rúnar Kristinsson, fyrrum þjálfari KR, sé að taka við Fram. Fótbolti 21. október 2023 17:15
Enn vermir landsliðsmarkvörður Íslands bekkinn hjá Cardiff Rúnar Alex Rúnarsson, landsliðsmarkvörður Íslands í knattspyrnu bíður enn eftir að fá að sanna sig hjá enska B-deildarliðinu Cardiff þar sem hann er á láni frá Arsenal. Rúnar hefur aðeins leikið einn fyrir liðið hingað til. Fótbolti 21. október 2023 16:40
Leverkusen læðist á toppinn Fimm knattspyrnuleikir fóru fram síðdegis í þýsku úrvalsdeildinni og sviptingar urðu á toppi deildarinnar. Leverkusen náði sigri gegn Wolfsburg og fer upp í efsta sætið, Stuttgart vann öruggan sigur gegn Union Berlin og kemur sér í annað sætið. Fótbolti 21. október 2023 15:28
Goðsögnin Bobby Charlton látinn Heimsmeistarinn og fótboltagoðsögnin Sir Bobby Charlton lést í morgun, laugardag, 86 ára gamall. Enski boltinn 21. október 2023 15:06
Diljá Zomers orðin markahæst í Belgíu Diljá Ýr Zomers, íslensk landsliðskona í knattspyrnu og leikmaður OH Leuven í Belgíu er orðin markahæsti leikmaður úrvalsdeildarinnar þar í landi eftir að hafa skorað tvö mörk í 8-1 sigri liðsins gegn Charleroi. Fótbolti 21. október 2023 13:49
Gomez dæmdur í tveggja ára bann fyrir lyfjamisnotkun Argentínski landsliðsmaðurinn og leikmaður AC Monza í ítölsku úrvalsdeildinni, Papu Gómez, hefur verið dæmdur í tveggja ára bann frá knattspyrnuiðkun af FIFA vegna misnotkunar á astmalyfjum. Fótbolti 21. október 2023 10:01
Þarf að hugsa extra vel um mig og þá er þetta bærilegt Sævar Atli Magnússon ætlar að harka í gegnum meiðsli sín fram til áramóta en hann er að glíma við kviðslit. Hann nýtur sín vel í Íslendinganýlendunni í Lyngby í Danmörku. Fótbolti 21. október 2023 09:30
Nennir ekki að segjast vera hættur fyrr en það er staðfest Knattspyrnumaðurinn Óskar Örn Hauksson er mættur í þjálfarateymi Íslands- og bikarmeistara Víkings en er þó ekki viss um að skórnir séu farnir upp í hillu. Íslenski boltinn 21. október 2023 08:01
Félix má fara til Barcelona fyrir rúma tíu milljarða Atlético Madríd er tilbúið að selja portúgalska framherjann João Félix til Spánarmeistara Barcelona fyrir 70 til 80 milljónir evra eða rúmlega 10 milljarða íslenskra króna. Fótbolti 20. október 2023 22:45
Guðlaugur Victor skoraði í stóru tapi Belgíska knattspyrnufélagið Eupen tapaði 4-1 á útivelli gegn Royale Union í kvöld. Guðlaugur Victor Pálsson spilaði allan leikinn í hjarta varnarinnar hjá gestunum og skoraði eina mark þeirra. Fótbolti 20. október 2023 21:31
Freyja Karín framlengir í Laugardalnum Freyja Karín Þorvarðardóttir hefur framlengt samning sinn við Þrótt Reykjavík og mun því spila með liðinu í Bestu deild kvenna næstu tvö árin. Íslenski boltinn 20. október 2023 20:16
Andri Rúnar snýr heim Framherjinn Andri Rúnar Bjarnason mun spila með Vestra í Bestu deild karla í knattspyrnu á næstu leiktíð. Þessu greindi félagið frá í kvöld. Íslenski boltinn 20. október 2023 18:56
Hans Viktor í KA Miðvörðurinn Hans Viktor Guðmundsson er genginn í raðir KA og mun spila með liðinu í Bestu deild karla í knattspyrnu á næstu leiktíð. Samningur hans á Akureyri gildir til 2025. Íslenski boltinn 20. október 2023 17:21
Robertson undir hnífinn og verður lengi frá Skotinn Andrew Robertson, vinstri bakvörður Liverpool á Englandi, þarf að fara í aðgerð á öxl og verður frá í um þrjá mánuði. Þetta staðfesti Jürgen Klopp, knattspyrnustjóri Liverpool á blaðamannafundi í dag. Enski boltinn 20. október 2023 16:01
Riðlarnir í Meistaradeildinni: Íslendingaslagur í A-riðli Dregið var í riðla Meistaradeildar Evrópu kvenna í dag. Fimm Íslendingalið eru á meðal þeirra 16 sem taka þátt í riðlakeppninni. Fótbolti 20. október 2023 13:30
Bayern gæti losað Phillips úr City-prísundinni Kalvin Phillips gæti fylgt Harry Kane, félaga sínum í enska landsliðinu, til Þýskalandsmeistara Bayern München. Enski boltinn 20. október 2023 12:30
FIFA gæti þurft að borga Al-Hilal svimandi háa upphæð vegna meiðsla Neymars Meiðsli brasilíska fótboltamannsins Neymars gætu kostað FIFA 6,5 milljónir punda. Fótbolti 20. október 2023 08:30
UEFA hafnaði beiðni Blika og KSÍ: „Það eru ákveðin vonbrigði“ Evrópska knattspyrnusambandið (UEFA) hafnaði sameiginlegri beiðni knattspyrnudeildar Breiðabliks og KSÍ um að færa síðasta heimaleik liðsins í riðlakeppni Sambandsdeildar Evrópu út fyrir landsteinana. Formaður knattspyrnudeildar Breiðabliks, Flosi Eiríksson, segir höfnun UEFA vissulega vonbrigði. Hann treystir þó á að Laugardalsvöllur verði í leikhæfu ástandi er Breiðablik tekur á móti Maccabi Tel Aviv í lok nóvember. Fótbolti 20. október 2023 07:31
Sádarnir hafa augastað á HM kvenna árið 2035 Sádí-Arabía hyggst gera boð um að halda Heimsmeistaramót kvenna í fótbolta árið 2035 samkvæmt íþróttastjóra sambandsins. Mið-Austurlenska konungsdæmið hefur nú þegar lagt fram formlega beiðni um að halda HM karla árið 2034. Fótbolti 19. október 2023 22:12
Barcelona frumsýndi nýja treyju fyrir El Clásico einvígið Barcelona hefur gefið út nýjan búning fyrir 'El Clasico' einvígi sitt gegn Real Madrid þann 28. október. Kennimerki Rolling Stones hljómsveitarinnar mun myndskreyta búninginn en allt er þetta hluti af samstarfssamningi Barcelona við tónlistarstreymisveituna Spotify. Fótbolti 19. október 2023 19:33
Hermoso valin í landsliðið í fyrsta sinn frá kossinum óumbeðna Fótboltakonan Jennifer Hermoso hefur verið valin í spænska landsliðið í fyrsta sinn frá rembingskossinum óumbeðna sem Luis Rubiales, fyrrverandi forseti spænska knattspyrnusambandsins, rak henni eftir úrslitaleik HM. Fótbolti 19. október 2023 16:31
Hazard vildi ekki spila einhvers staðar einungis fyrir peningana Eden Hazard lagði skóna á hilluna því hann naut þess ekki lengur að spila og vildi ekki spila einhvers staðar bara fyrir peningana. Fótbolti 19. október 2023 15:31
UEFA grípur inn í og frestar leik hjá mótherjum Breiðabliks Evrópska knattspyrnusambandið hefur fresta leik ísraelska liðsins Maccabi Tel Aviv við Zorya Luhansk frá Úkraínu í Sambandsdeild Evrópu vegna ólgunnar í Ísrael og Palestínu. Fótbolti 19. október 2023 13:49