Norskur fótboltamaður flýr Rússland og Rússarnir hóta málsókn Norski fótboltamaðurinn Mathias Normann fórnaði norska landsliðinu fyrir það að spila í rússneska boltanum en nú hefur hann yfirgefið Rússland af öryggisástæðum. Fótbolti 10. ágúst 2023 09:30
Langelsti stjóri ensku úrvalsdeildarinnar fagnaði 76 ára afmæli sínu í gær Roy Hodgson, stjóri Crystal Palace í ensku úrvalsdeildinni, hélt upp á 76. afmælisdaginn sinn í gær. Aðeins fimm stjórar hafa stýrt liði í efstu deild á Englandi á áttræðisaldri. Fótbolti 10. ágúst 2023 07:00
John Andrews: Þakklátur KSÍ fyrir leikjaálagið Breiðablik og Víkingur mætast í sögulegum bikarúrslitaleik á föstudaginn en þetta verður í fyrsta sinn sem lið Víkings nær alla leið í úrslitaleikinn í bikarkeppni kvenna. Fótbolti 9. ágúst 2023 22:57
„Við vitum að verkefnið er erfitt en það eru alltaf einhverjir möguleikar“ Sigurður Ragnar Eyjólfsson, þjálfari Keflavíkur, var augljóslega mjög svekktur eftir dramatískt tap gegn HK þegar hann mætti í viðtal til Gunnlaugs Jónssonar strax eftir leik. HK tryggði sér sigurinn með tveimur mörkum á lokamínútu leiksins og í leiðinni stigin þrjú. Fótbolti 9. ágúst 2023 22:18
„Þetta eru tvö lið sem bera virðingu hvort fyrir öðru“ Kristján Guðmundsson, þjálfari Stjörnunnar, var nokkuð sáttur með frammistöðu sinna kvenna í 1-1 jafntefli þeirra gegn Val. En hann gaf dómara leiksins einnig mikið hrós fyrir sína frammistöðu Fótbolti 9. ágúst 2023 22:00
Coventry úr leik í deildarbikarnum Fyrsta umferð enska deildarbikarins, Carabao Cup, hélt áfram í kvöld og bar þar helst til tíðinda að 3. deildarlið Wimbledon sló 1. deildarlið Coventry út í dramatískum leik þar sem sigurmarkið kom í uppbótartíma. Fótbolti 9. ágúst 2023 21:34
Panathinaikos nýtti færin illa en fer með 1-0 sigur í farteskinu til Frakklands Hörður Björgvin Magnússon og félagar í Panathinaikos eru í ágætri stöðu eftir fyrri viðureign liðsins gegn Marseille í forkeppni Meistaradeildar Evrópu, en naga sig þó mögulega í handabökin að hafa ekki nýtt færin betur í leiknum. Fótbolti 9. ágúst 2023 20:07
Reece James tekur við fyrirliðabandinu hjá Chelsea Reece James mun taka við fyrirliðabandinu hjá Chelsea í ensku úrvalsdeildinni en staða fyrirliða hefur verið laus síðan í vor þegar César Azpilicueta yfirgaf liðið og gekk í raðir Atlético Madrid. Fótbolti 9. ágúst 2023 19:03
Júlíus Magnússon og félagar enn taplausir á toppnum Lið Fredrikstad situr áfram taplaust á toppi norsku 1. deildarinnar eftir leiki dagsins en liðið lagði Bryne 2-1. Fótbolti 9. ágúst 2023 18:06
Ronaldo og félagar í úrslit Meistaradeilarinnar Cristano Ronaldo og félagar í Al-Nassr eru komnir í úrslitaleik Meistaradeildar Arabaríkja. Ronaldo skoraði eina mark leiksins þegar Al-Nassr lagði Íraksmeistara Al-Shorta í fyrri leik undanúrslitanna í dag. Fótbolti 9. ágúst 2023 17:31
Miðaverð á leikina hækkað um átta hundruð prósent Það var frekar lítið mál að kaupa miða á leiki Inter Miami fyrir stuttu en eftir að Lionel Messi klæddist Inter treyjunni þá eru þetta heitustu miðarnir í bandarísku deildinni. Fótbolti 9. ágúst 2023 17:01
Dagný á von á sínu öðru barni og nýjum „Hamri“ Dagný Brynjarsdóttir, landsliðskona í fótbolta, tilkynnti um það á samfélagsmiðlum í dag að hún ætti von á sínu öðru barni. Fótbolti 9. ágúst 2023 16:32
Birkir snýr aftur í ítalska boltann Birkir Bjarnason ferðast til Ítalíu í dag og mun samkvæmt heimildum Vísis skrifa formlega undir samning við sitt gamla knattspyrnufélag Brescia í kvöld. Fótbolti 9. ágúst 2023 13:31
Heiðrar móður sína á keppnistreyjunni Carlos Borges er nýr leikmaður hollenska félagsins Ajax frá Amsterdam en hann ruglaði einhverja í ríminu þegar allt annað nafn stóð aftan á treyju hans. Fótbolti 9. ágúst 2023 13:00
Árni pítsusali sem tryggt hefur KÍ hundruð milljóna Stærsta hetjan í mögnuðu Evrópuævintýri færeysku meistaranna í KÍ frá Klaksvík er án vafa 31 árs gamli „pítsusalinn“ Árni Frederiksberg. Þökk sé honum er enn mögulegt að KÍ spili með Real Madrid, Manchester City, Bayern München og öðrum bestu liðum álfunnar í Meistaradeild Evrópu í haust. Fótbolti 9. ágúst 2023 12:00
Atvinnumannalið samdi við þrettán ára strák Bandaríska USL liðið Sacramento Republic samdi í gær við kornungan leikmann og gerði hann um leið að yngsta leikmanni í atvinnumannaliðsíþróttunum í Bandaríkjunum. Fótbolti 9. ágúst 2023 11:31
Ísak Bergmann staðfestur hjá Fortuna Düsseldorf Íslenski landsliðsmaðurinn Ísak Bergmann Jóhannesson er kominn til þýska b-deildarfélagsins Fortuna Düsseldorf en félagið staðfestir þetta á miðlum sínum. Fótbolti 9. ágúst 2023 08:48
Lauren James full iðrunar og fékk líka kveðju frá þeirri sem hún steig á Enska landsliðskonan Lauren James hefur beðist afsökunar á framkomu sinni í leiknum á móti Nígeríu í sextán liða úrslitum HM kvenna í fótbolta þar sem hún fékk rautt spjald fyrir að stíga á mótherja. Fótbolti 9. ágúst 2023 08:01
Enska úrvalsdeildin rannsakar meint brot Chelsea á fjárhagsreglum Enska úrvalsdeildin í knattspyrnu rannsakar nú hvort Chelsea hafi brotið fjárhagsreglur deildarinnar. Meint brot áttu sér stað á meðan Roman Abramovich var eigandi félagsins. Fótbolti 9. ágúst 2023 07:01
Tottenham fær argentínskan framherja Tottenham Hotspur hefur fengið argentínska framherjan Alejo Veliz frá Rosario Central í heimalandinu. Fótbolti 8. ágúst 2023 23:00
Lopetegui hættur sem þjálfari Wolves sex dögum fyrir fyrsta leik Spánverjinn Julen Lopetegui hefur látið af störfum sem þjálfari Wolves, aðeins tæpri viku fyrir fyrsta leik liðsins í ensku úrvalsdeildinni. Fótbolti 8. ágúst 2023 22:31
Umfjöllun og viðtöl: Fram - Fylkir 1-1 | Pétur bjargaði stigi fyrir Fylki Fram og Fylkir gerðu 1-1 jafntefli er liðin mættust í Bestu-deild karla í knattspyrnu í kvöld. Pétur Bjarnason reyndist hetja Fylkismanna er hann jafnaði metin fyrir liðið þegar um stundarfórðungur lifði leiks og kom um leið í veg fyrir að Fylkir færi niður í fallsæti. Fótbolti 8. ágúst 2023 22:14
„Man ekki hvort helvítis fylgdi með eða ekki“ Arnar Bergmann Gunnlaugsson missti stjórn á skapi sínu í eitt augnablik þegar lið hans, Víkingur, vann 3-1 sigur gegn FH í leik liðanna í Bestu deild karla í fótbolta á Kaplakrikavelli í kvöld. Arnar Bergmann þurfti þar af leiðandi að horfa á lærisveina sína úr stúkunni frá því um miðbik fyrri hálfleiks. Fótbolti 8. ágúst 2023 21:53
Færeyingarnir fara með forystu til Noregs eftir endurkomusigur Færeysku meistararnir í KÍ Klaksvík unnu magnaðan 2-1 endurkomusigur er liðið tók á móti Noregsmeisturum Molde í forkeppni Meistaradeildar Evrópu í kvöld. Fótbolti 8. ágúst 2023 21:28
Skagamenn aftur upp í annað sætið ÍA vann öruggan 3-1 útisigur er liðið heimsótti Gróttu í seinasta leik 15. umferðar Lengjudeildar karla í kvöld. Með sigrinum komu Skagamenn sér aftur upp í annað sæti deildarinnar. Fótbolti 8. ágúst 2023 21:15
Orri kom inn af bekknum í Meistaradeildarjafntefli Orri Steinn Óskarsson lék síðustu tuttugu mínúturnar fyrir FCK er liðið gerði markalaust jafntefli gegn Sparta Prague í forkeppni Meistaradeildar Evrópu í kvöld. Fótbolti 8. ágúst 2023 20:23
Vestri batt enda á sigurgöngu Selfyssinga Vestri vann góðan 2-1 sigur er liðið tók á móti Selfossi í Lengjudeild karla í kvöld. Selfyssingar höfðu unnið þrjá leiki í röð í deildinni og sigur hefði komið þeim upp í umspilssæti. Fótbolti 8. ágúst 2023 19:51
Fresta leik eftir að stuðningsmaður var stunginn til bana Leik AEK Athens frá Grikklandi og Dinamo Zagreb frá Króatíu sem fram átti að fara í kvöld í forkeppni Meistaradeildar Evrópu hefur verið frestað eftir að stuðningsmaður varstunginn til bana í grísku höfuðborginni. Fótbolti 8. ágúst 2023 17:45
39 ára Iniesta fær nýjan samning með möguleika á framlengingu Andrés Iniesta spilaði ekki síðasta fótboltaleikinn sinn í Japan því Spánverjinn hefur skrifað undir nýjan samning hjá Emirates Club. Fótbolti 8. ágúst 2023 17:01
Í fjórða sæti yfir þá markahæstu í sögu félagsins eftir aðeins fjóra leiki Lionel Messi er bara búinn að spila fjóra leiki fyrir Inter Miami í Bandaríkjunum en er þegar kominn upp í fjórða sæti yfir markahæstu leikmenn félagsins. Fótbolti 8. ágúst 2023 16:01