Golf

Golf

Fréttir og úrslit úr heimi golfsins.

Fréttamynd

Guðmundur Ágúst, Haraldur Franklín og Axel keppa á Spáni

Ísland á þrjá kylfinga á Evrópumóti einstaklinga í golfi sem fer fram dagana 7.-10. ágúst á Real Club de Golf el Prat á Spáni. Mótið er eitt sterkasta áhugamannamót sem fram fer í heiminum á ári hverju þar sem allir bestu áhugakylfingar Evrópu mæta til leiks.

Golf
Fréttamynd

Tiger Woods í banastuði um helgina

Kylfingurinn Tiger Woods lék óaðfinnanlega á Bridgestone-mótinu í Ohio um helgina og vann mótið með miklu öryggi en hann lauk keppni á fimmtán höggum undir pari.

Golf
Fréttamynd

Systkini keppa í Einvíginu á Nesinu í ár

Árlegt góðgerðarmót Nesklúbbsins og DHL, Einvígið á Nesinu, verður nú haldið í sautjánda skipti á Nesvellinum á mánudaginn 5. ágúst næstkomandi. Í ár mun DHL styrkja Dropann, styrktarfélag barna með sykursýki, um eina milljón króna.

Golf
Fréttamynd

Með sterkustu taugarnar

Birgir Leifur Hafþórsson og Sunna Víðisdóttir stóðu uppi sem sigurvegarar á Íslandsmótinu í höggleik þrátt fyrir að hafa ekki verið í forystu fyrr en á lokadeginum. Sunna vann eftir spennandi umspil og bráðabana.

Golf
Fréttamynd

Haraldur: Hafði ekki áhyggjur

Haraldur Franklín Magnús, Íslandsmeistari í golfi, segir að mestu máli skiptir að vera í góðri stöðu fyrir lokadaginn á Íslandsmótinu.

Golf
Fréttamynd

Valdís Þóra: Kom á óvart

Valdís Þóra Jónsdóttir deilir forystunni með Guðrúnu Brá Björgvinsdóttur eftir þrjá fyrstu keppnisdagana á Íslandsmótinu í höggleik.

Golf
Fréttamynd

Guðmundur Ágúst: Ég vildi meira

Guðmundur Ágúst Kristjánsson spilaði vel á Íslandsmótinu í höggleik í dag og var nálægt dagsgömlu vallarmeti Ólafs Björns Loftssonar.

Golf
Fréttamynd

Fannar Ingi stendur sig vel

Fannar Ingi Steingrímsson úr Golfklúbbi Hveragerðis er í sjöunda sæti af 124 keppendum í flokki 14 ára og yngri að loknum fyrsta hring á Teen World Championship-mótinu.

Golf
Fréttamynd

Spilaði verr en jók forskotið

Guðrún Brá Björgvinsdóttir úr GK hefur fjögurra högga forystu að loknum öðrum hring á Íslandsmótinu í höggleik á Korpúlfsstaðavelli.

Golf
Fréttamynd

Haraldur Franklín óstöðvandi

Fátt virðist geta komið í veg fyrir að Haraldur Franklín Magnús úr GR verji Íslandsmeistaratitil sinn í höggleik að loknum tveimur hringjum.

Golf
Fréttamynd

Vallarmet hjá Ólafi Birni

Ólafur Björn Loftsson úr Nesklúbbnum var heldur betur í stuði í dag á öðrum hring Íslandsmótsins í höggleik sem leikið er á Korpúlfsstaðavelli.

Golf
Fréttamynd

Titilvörnin hafin með stæl

Haraldur Franklín Magnús úr GR spilaði fyrsta hringinn á Íslandsmótinu í höggleik á Korpu á þremur höggum undir pari vallarins.

Golf
Fréttamynd

Eins og að spila á alvöru móti erlendis

Íslandsmótið í höggleik hefst á Korpúlfsstaðavelli í dag en völlurinn skartar sínu fegursta eftir að nýjar holur voru nýlega teknar í notkun. Allir okkar bestu kylfingar taka þátt í mótinu að þessu sinni og eru áhorfendur sérstaklega boðnir velkomnir í Korpuna.

Golf
Fréttamynd

Jimenez efstur á Opna breska

Spánverjinn Miguel Angel Jimenez leiðir á Opna breska meistaramótinu eftir tvo hringi en hann er samtals á þremur höggum undir pari á Muirfield-vellinum í Skotlandi.

Golf
Fréttamynd

Zach Johnson leiðir á Opna breska

Bandaríkjamaðurinn Zach Johnson er efstur eftir fyrsta hring á Opna breska meistaramótinu í golfi sem fer fram á á Muirfield vellinum í Skotlandi.

Golf