Galopið ávísanahefti skattgreiðenda í Hafnarfirði Heimildin, DV og Vísir sögðu frá því fyrir helgi að Hafnarfjarðarbær hafi samið við mig um bætur vegna þeirrar ólöglegu ákvörðunar skólastjóra Hraunvallaskóla að afturkalla ráðningu mína í starf deildarstjóra tómstundamiðstöðvar skólans. Skoðun 23.2.2026 12:02
Voru í þann mund að slökkva eldinn þegar það barst tilkynning um annan Í þann mund sem slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu var að ráða niðurlögum elds við Elliðavatn barst tilkynning um annan eld við Krýsuvíkurleiðina. Innlent 22.2.2026 19:57
Milljónir farið í sáttagreiðslur í Hafnarfirði Hafnarfjarðarbær hefur greitt þremur fyrrverandi starfsmönnum alls vel rúmlega fimm milljónir króna í sáttagreiðslur á yfirstandandi kjörtímabili. Þá hafa verið gerðir sextán starfslokasaminga sem eru umfram þriggja mánaða uppsagnarfrest. Innlent 20.2.2026 13:32
Hefjast handa á rúmlega hundrað íbúðum fyrir fyrstu kaupendur Ráðamenn og verktakar tóku í dag fyrstu skóflustungu að nýju uppbyggingarverkefni í Hafnarfirði þar sem reistar verða tæplega fjögur hundruð íbúðir, þar á meðal þriðjungur fyrir fyrstu kaupendur sem fá hlutdeildarlán. Innlent 10. febrúar 2026 17:42
Metnaðarfull Mamma Mia í Hafnarfirðinum Nemendur Víðistaðaskóla í Hafnarfirði frumsýna uppsetningu á söngleiknum Mamma Mía á föstudaginn með fimmtíu manna leikhópi. Foreldrar, kennarar og nemendur hafa setið sveittir við að smíða leikmynd og búninga. Menning 10. febrúar 2026 11:02
Hættir í Samfylkingunni og gengur til liðs við nýjan flokk fyrir kosningar Kolbrún Magnúsdóttir, varabæjarfulltrúi Samfylkingarinnar í Hafnarfirði og fulltrúi í fræðsluráði bæjarins, hefur sagt skilið við flokkinn og hyggst færa sig yfir í Framsókn og bjóða sig fram fyrir flokkinn í komandi sveitarstjórnarkosningum. Kolbrún segist hafa eftir vandlega íhugun komist að þeirri niðurstöðu að hún finni meiri samhljóm með áherslum Framsóknar í Hafnarfirði. Innlent 10. febrúar 2026 09:59
Þetta eru launin sem frambjóðendur geta vænst með kjöri í vor Borgarfulltrúar í Reykjavík eru með langhæstu grunnlaunin meðal kjörinna fulltrúa á höfuðborgarsvæðinu en bæjarstjórar sveitarfélaganna sex eru með á bilinu tvær til þrjár milljónir króna í laun og aðrar fastar greiðslur á mánuði. Almennir bæjarfulltrúar á höfuðborgarsvæðinu eru flestir með á bilinu 350 til 420 þúsund krónur í föst grunnlaun á mánuði, en ofan á það leggjast ýmsar greiðslur fyrir formennsku og setu í ráðum og nefndum, og jafnvel er greitt fyrir setu á einstaka fundum, sem geta togað launin upp um nokkra hundraðþúsundkalla til viðbótar á mánuði. Innlent 9. febrúar 2026 06:47
Orri oddviti Sjálfstæðismanna í Hafnarfirði Orri Björnsson, bæjarfulltrúi, mun leiða lista Sjálfstæðisflokksins í Hafnafirði í vor og tekur þannig við oddvitasætinu af Rósu Guðbjartsdóttur sem er farin á þing. Kristín María Thoroddsen, bæjarfulltrúi, er í öðru sæti listans og Viktor Pétur Finnsson í því þriðja. Innlent 7. febrúar 2026 22:04
Einn handtekinn fyrir þjófnað í Skeifunni Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók einn fyrir þjófnað í Skeifunni í dag. Í dagbók lögreglunnar kemur fram að öryggisvörður hafi elt mann sem stal vörum úr verslun. Lögreglan hafði uppi á þessum einstaklingi og handtók hann. Fram kemur að málið sé í rannsókn. Innlent 7. febrúar 2026 17:35
Forvarnir eru ekki kostnaður – þær eru fjárfesting í framtíðinni Forvarnir meðal ungs fólks er eitt mikilvægasta verkefni sem samfélagið stendur frammi fyrir í dag. Þegar ungir einstaklingar leiðast út af brautinni er það sjaldnast vegna skorts á vilja eða hæfileikum, heldur vegna skorts á stuðningi, tilgangi og öruggu umhverfi. Skoðun 6. febrúar 2026 13:00
Þetta snýst um Hafnarfjörð Niðurstöður árlegrar þjónustukönnunar Gallup eru skýr skilaboð frá Hafnfirðingum um að hér sé gott að búa. 91% Hafnfirðinga eru ánægðir með Hafnarfjörð sem stað til að búa á. Skoðun 6. febrúar 2026 07:45
Aldrei eins lítið í læknum og fuglunum er tekið að fækka Dýravinir hafa miklar áhyggjur af aðstæðum fugla í miðbæ Hafnarfjarðar þar sem framkvæmdir hafa orðið til þess að verulega hefur grynnkað í Hamarskotslæk. Bæjarstjóri segir framkvæmdirnar hafa verið nauðsynlegar. Innlent 5. febrúar 2026 21:01
Vetrarhátíðin sjaldan verið stærri Árleg vetrarhátíð hefst í kvöld á höfuðborgarsvæðinu þegar kveikt verður á ljóslistaverkum í miðborg Reykjavíkur. Viðburðarstjóri segir hátíðina aldrei hafa verið stærri, 150 viðburðir fara fram þar til á sunnudag en hátíðin samanstendur meðal annars af Safnanótt og Sundlauganótt. Menning 5. febrúar 2026 12:03
Myndi kosta sveitarfélögin 300 milljónir á ári Áætlað er að það myndi kosta sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu aukalega um 300 milljónir króna á ári að gera Strætó gjaldfrjálsan fyrir grunnskólabörn, þar af 167 milljónir fyrir borgina. Borgarstjóri segir að boðaðar breytingarnar séu til þess fallnar að auka frelsi reykvískra barna. Innlent 3. febrúar 2026 21:10
„Koma einhverjir strákar og svo fer allt í háaloft“ Tvenn ungmenni réðust á karlmann á fimmtugsaldri við strætóbiðstöð við Hafnarfjarðarveg til móts við Aktu taktu skömmu fyrir miðnætti í gær. Málið er rannsakað sem stórfelld líkamsárás. Brotaþoli var fluttur á slysadeild en lítið er vitað um líðan mannsins. Innlent 31. janúar 2026 11:42
Maður hlotið stórfellt líkamstjón eftir árás ungmenna Hópur ungmenna veittist að manni sem hlaut stórfellt líkamstjón af árásinni, að sögn lögreglu. Eitt ungmennið var handsamað í kjölfarið og er málið nú til rannsóknar. Innlent 31. janúar 2026 09:54
Bærinn er fólkið Um samtal, traust og framtíð HafnarfjarðarHafnarfjörður er einstakur bær. Hér mætast saga og framtíð, náttúra og bæjarbragur. Líkt og önnur sveitarfélög stöndum við frammi fyrir krefjandi verkefnum. Íbúar kalla eftir lausnum í húsnæðismálum, bættri þjónustu, ábyrgri fjármálastjórn og skýrri framtíðarsýn um hvernig bæjarfélagið eigi að þróast – fyrir börnin okkar, eldri borgara og alla þar á mill Skoðun 31. janúar 2026 09:02
Játaði brot sín og sleppur ekki aftur við fangelsisvist Karlmaður sem sætir ákæru fyrir að hafa beitt dóttur sambýliskonu sinnar ítrekuðu kynferðislegu ofbeldi í Hafnarfirði hefur að mestu leyti játað brot sín fyrir dómi. Þetta staðfestir Karl Ingi Vilbergsson varahéraðssaksóknari í samtali við Vísi. Aðeins er óvíst um fjölda skipta sem brotin áttu sér stað. Innlent 30. janúar 2026 10:16
Fimm handteknir grunaðir um skipulagðan þjófnað Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók fimm einstaklinga sem grunaðir eru um þjófnað í fjölda verslana. Innlent 29. janúar 2026 18:46
Skipulag á að þjóna fólki, ekki pólitískum prinsippum Skipulagsmál eru samofin lífsgæðum íbúa og hafa áhrif á daglegt líf fólks, heilsu þess og samfélagslega velferð. Ákvarðanir um hvernig land er nýtt, hvar byggt er, hvernig samgöngum er háttað og hversu mikið rými er fyrir græn svæði móta ekki aðeins daginn í dag heldur einnig framtíð komandi kynslóða. Því er brýnt að skipulagsákvarðanir byggi á þekkingu, raunhæfum sjónarmiðum og virðingu fyrir ólíkum þörfum íbúa. Skoðun 29. janúar 2026 13:30
Flótti ríkisstjórnarinnar frá Flóttamannavegi Flóttamannavegur, sem svo er kallaður, liggur eins og perlufesti yfir Kópavog, Garðabæ og Hafnarfjörð og tengir sveitarfélögin saman. Við hann liggja nýbyggð sístækkandi hverfi sem gera hann að ákjósanlegri tengingu þessara bæjarfélaga. Einnig er hann eina leiðin að fjölsóttum útivistarperlum í Heiðmörk og á tvo golfvelli, Odd og Setbergsvöll. Skoðun 28. janúar 2026 19:31
Helgi Bjartur einnig ákærður fyrir vændiskaup Helgi Bjartur Þorvarðarson, sem sætir ákæru fyrir að nauðga tíu ára dreng í Hafnarfirði, er einnig ákærður fyrir að hafa greitt fyrir vændi sama kvöld. Innlent 28. janúar 2026 12:54
Snýr aftur í álverið en nú sem forstjóri Sunna Björg Helgadóttir hefur verið ráðin forstjóri Rio Tinto á Íslandi. Hún mun taka við starfinu í vor af Rannveigu Rist, sem gegnt hefur starfinu frá árinu 1997. Hún mun einnig taka sæti Rannveigar í framkvæmdastjórn Aluminium Atlantic deildarinnar innan Rio Tinto. Viðskipti innlent 27. janúar 2026 14:15
Þrjú dæmd fyrir að flytja inn BMW fullan af kókaíni Þau Eivydas Laskauskas, Kamile Radzeviciute og Egidijus Dambraukskas, sem öll eru frá Litáen, hafa þriggja ára og sex mánaða fangelsisdóma fyrir innflutning á miklu magni kókaíns, sem komið hafði verið fyrir inni í BMW-bíl. Innlent 26. janúar 2026 13:39