Höfundatal

Höfundatal

Viðtöl við höfunda um verk þeirra.

Fréttamynd

„Ég var al­veg skelfingu lostinn“

Myndlistarmaðurinn Tolli Morthens skefur ekki af því frekar en fyrri daginn. Hann skautar yfir litríkan ferilinn, segir af Íkarusi og samstarfinu við Megas, því að hann hafi ekki haft taugar í að feta glæpabrautina og segist hafa orðið skelfingu lostinn þegar hann greindist með krabbamein.

Lífið

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Boxar til að halda sjúk­dómnum í skefjum

Nóbelsverðlaunahafinn Anne Carson segist hafa slysast út í skrifin og geti ekki hætt úr þessu. Ekkert sem hún geri sé úthugsað og yfirleitt rambi hún á góðar hugmyndir. Hún og maður hennar keyptu sér íbúð á Ægisíðu og urðu íslenskir ríkisborgarar árið 2022 eftir að hafa heimsótt landið reglulega frá árinu 2008. Íslendingar hafi tekið þeim opnum örmum en því fylgir einmanaleiki að tala ekki tungumálið. Carson greindist með Parkinsons-sjúkdóm fyrir þremur árum og heldur honum í skefjum með boxi, sundi og spinning-tímum.

Menning
Fréttamynd

Gerði leigu­samning við krabba­meinið

Allir sem komnir eru til vits og ára þekkja Magnús Þór Sigmundsson. Maðurinn er goðsögn. Tónlistarmaðurinn síungi er nú 78 ára gamall og þótt hann segist vanda sig við að vinna alls ekki neitt stenst það illa skoðun því Magnús Þór er sískapandi. Magnús Þór er með krabbamein en hefur gert leigusamning við meinið, svo framarlega sem það hefur hægt um sig má það vera.

Lífið
Fréttamynd

„Mér finnst gaman að láta sjokkera mig“

Katrín Júlíusdóttir, fyrrverandi fjármálaráðherra með meiru, hefur verið að hasla sér völl sem rithöfundur. Katrin var að senda frá sér sérlega vel út færða glæpasögu sem ber forvitnilegan titil: Þegar hún hló.

Lífið
Fréttamynd

„Sat í átta klukku­tíma á dag og horfði út um gluggann“

Eftir að hafa tekist á við pólitískan samtíma í fyrstu skáldsögu sinni horfir Fríða Ísberg til fortíðar og vinnur upp úr þjóðsagnaarfinum í þeirri nýjustu. Brjóstaþoka eftir barneignir smitaðist inn í bókina en í marga mánuði sat Fríða föst í sögunni, komst ekki áfram í skrifunum og starði bara út í loftið.

Menning
Fréttamynd

Að gluða tómat­sósu yfir sushi-ið

Staðreyndirnar eftir Hauk Má Helgason eru meðal þeirra verka sem tilnefnd eru til hinna Íslensku bókmenntaverðlauna, og maklega svo, þetta er afar athyglisverð og vel heppnuð saga.

Menning
Fréttamynd

„Djúp menning sem hefur átt sér stað og enginn telur sig á­byrgan“

Bókin Jötunsteinn eftir Andra Snæ Magnason er viðbragð við yfirstandandi uppbygingarskeiði sem höfundur lýsir sem „stóra lúffinu“.  Fólk sé ekki stolt af byggingum sem rísi á Íslandi líkt og áður fyrr heldur skammist sín ef eitthvað er. Ekki sé hægt að benda á sökudólga heldur sé ástandið afleiðing djúpstæðrar menningar. Jötunsteinn er hróp til fólks um að beygja af þessari leið.

Menning
Fréttamynd

Munur er á manviti og mann­viti

Helstu tíðindi fyrir þessi bókajól koma á óvart. Rímur! Svo það sé sagt þá hafa kvæði ekki beinlínis verið minn tebolli. En út er komin bókin Láka rímur eftir Bjarka Karlsson sem fara langt með að umturna minni afstöðu til kveðskapar.

Menning
Fréttamynd

Stór saga í litlum um­búðum: „Barnæskan mín er greypt í minnið“

Í sínu fyrsta útgefna verki kafar unga skáldið Fríða Þorkelsdóttir ofan í hugarfylgsni æskunnar og tekst á við tímamót, breytingar og sorg eins og fáum er lagið. Bókin ber nafnið Fjölskyldusaga og óhætt er að segja að um sé að ræða stóra sögu í litlum umbúðum, enda kemst bókin öll fyrir í meðalstóran brjóstvasa.

Lífið
Fréttamynd

Lista­maðurinn sem gleymdist gjör­sam­lega

Það er í raun stórmerkilegt hvernig listamaður sem var jafn atkvæðamikill í íslensku menningarlífi á sínum tíma og Kristján H. Magnússon vissulega var, það er á fjórða áratug síðustu aldar, geti nánast og svo gott sem gleymst með öllu.

Menning
Fréttamynd

„Ekkert gengið að casha út á pabba“

Júlía Margrét Einarsdóttir var að senda frá sér sína þriðju skáldsögu sem heitir Dúkkuverksmiðjan. Blaðamaður áttar sig ekki á því hvort hann er að verða svona hrifnæmt gamalmenni eða hvað, en þessi bók er algjörlega glimrandi. Ég gef henni fimm stjörnur.

Menning
Fréttamynd

Ekki smart að amman skipti sér af getnaðinum

„Maður reynir að endurtaka sig ekki því það er agalegt,“ segir rithöfundurinn Yrsa Sigurðardóttir. Yrsa er einhver farsælasti og þekktasti rithöfundur landsins og hefur haldið lesendum víða um heim á tánum í fjölda ára. Blaðamaður ræddi við Yrsu um lífið, skrifin og sjónvarpsseríuna Reykjavík 112 sem er byggð á bók hennar DNA.

Lífið
Fréttamynd

Snorri þurfti að veiða sögurnar upp úr Gumma Google

Slík ferð hefur verið á hinum 27 ára gamla Snorra Mássyni að ýmsum þykir nóg um. Hann hafði ungur (yngri) vakið nokkra athygli sem hlaðvarpsstjóri ásamt bróður sínum Bergþóri en þeir voru með hlaðvarpið Skoðanabræður.

Lífið
Fréttamynd

Hefur smekk fyrir lé­legum B-myndum, braski og sorpi

Friðsemd fyrsta skáldsaga Brynju Hjálmsdóttur hlýtur að teljast ein af uppgötvunum þessa árs. Bókin er sprúðlandi af frásagnargleði og lesandinn uppgötvar fljótlega að hann má ekki missa af einni einustu setningu. Hér dugar ekki að skima.

Lífið
Fréttamynd

Tengdó hringdi og vildi vita hvort Sunnu Dís hefði í al­vöru liðið svona

Sunna Dís Másdóttir var að senda frá sér sína fyrstu bók, en samt ekki. Kul. Ekkert í þessari bók ber þess merki að um byrjendaverk sé að ræða. Þvert á móti ætlar blaðamaður Vísis að ganga svo langt að fullyrða að þessi bók sé uppgötvun ársins. Söguhetjan heitir Una sem er bæði viðkvæm og grjóthörð. Eins og Sunna. Er Una Sunna? Nei, auðvitað ekki. En samt…

Lífið
Fréttamynd

„Svona getur þetta reynst smásálarlegt hérna“

Prófessor Eiríkur Bergmann hefur sent frá sér bókina Óvæntur ferðafélagi en þar gengur hann nær sjálfum sér en hann hefur áður gert. Hann segir frá svæsnu einelti sem hann varð fyrir og óboðnum gesti, fyrirbæri sem heitir Severe Tinnitus Disorder og er ólæknandi suð í eyrum.

Lífið
Fréttamynd

Niðurgangurinn á Þing­völlum þaggaður niður

Halldór Armand Ásgeirsson er að senda frá sér sína fimmtu skáldsögu um þessar mundir,  Mikilvægt rusl, auk þess gaf hann út pistlasafn fyrir Storytel 2022. Talsverð tímamót eru nú hjá Halldóri, bæði er skáldsagan hans sérstök að efni til og svo gefur hann hana út sjálfur. Sem er talsvert stórt skref að stíga. Halldór dregur ekki af sér í höfundatali.

Lífið
Fréttamynd

Sið­laus maður étur skít og öðlast sam­kennd

Bragi Páll var að senda frá sér sína fjórðu bók; Næstsíðasta líf Jens Ólafssonar Olsen. Þrándur Þórarinsson málar myndina á kápuna en þar má sjá söguhetjunni eftir að nokkur umskipti hafa átt sér stað. Hann étur skít og öðlast samkennd.

Lífið