Rússar herða sultarólina Verðlag hefur hækkað hratt í Rússlandi á árinu en Seðlabanki landsins hefur hækkað vexti fjórum sinnum til að reyna að sporna gegn henni. Þegar árið byrjaði voru að stýrivextir 7,5 prósent en nú eru þeir fimmtán. Viðskipti erlent 24. nóvember 2023 17:01
Færanlega neyðarsjúkrahúsið komið í notkun í Úkraínu Færanlega neyðarsjúkrahúsið sem Alþingi ákvað í vor að gefa úkraínsku þjóðinni, er komið til Úkraínu og hefur verið tekið í gagnið. Innlent 24. nóvember 2023 12:56
Stúlkubarn frá Úkraínu endaði hjá pólitískum stuðningsmanni Pútín Blaðamenn á vegum BBC hafa komist að því að stúlkubarn sem fæddist í Kherson í Úkraínu var flutt til Rússlands að undirlagi konu sem nú er gift einum helsta pólitíska stuðningsmanni Vladimir Pútín Rússlandsforseta. Erlent 23. nóvember 2023 07:33
Rýnt í stöðuna í Úkraínu: „Við höfum ekki næg skotfæri en þeir hafa nóg af fólki“ Harðir bardagar eiga sér enn stað á víglínunum í Úkraínu, þó byrjað sé að hægja á þeim vegna blautveðurs í aðdraganda vetrar. Í austri gera Rússar enn umfangsmiklar árásir á þreytta úkraínska hermenn við bæinn Avdívka og líkja Úkraínumenn Rússum við uppvakninga sem sækja fram í bylgjum. Erlent 22. nóvember 2023 11:04
Pútín náðaði djöfladýrkanda sem myrti fjóra táninga Vladimír Pútín, forseti Rússlands, hefur náðað djöfladýrkanda sem dæmdur var í tuttugu ára fangelsi árið 2010 fyrir að myrða og búta niður fjóra táninga. Maðurinn, sem heitir Nikolaí Oglobljak, var náðaður eftir að hafa verið í svokölluðum fangasveitum Rússa í Úkraínu í hálft ár. Erlent 21. nóvember 2023 16:46
Róbert Spanó kjörinn í stjórn tjónaskrár fyrir Úkraínu Róbert Spanó var í dag kjörinn í stjórn alþjóðlegar tjónaskrár fyrir Úkraínu. Skráin mun taka til eignaskemmda, manntjóns og meiðsla af völdum stríðs Rússlands í Úkraínu. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Stjórnarráðsins. Innlent 16. nóvember 2023 19:39
Dæmd í sjö ára fangelsi vegna límmiða Rússnesk kona hefur verið dæmd í sjö ára fangelsi fyrir að mótmæla innrás Rússa í Úkraínu. Sasha Skochilenko var handtekinn í Pétursborg í apríl 2022, eftir að hún setti límmiða með slagorðum gegn innrásinni yfir verðmerkingar í verslun. Erlent 16. nóvember 2023 15:31
Hið forna Garðaríki er mikið hitamál þessa dagana Salka gengst fyrir einkar spennandi bókakvöldi, umræðum sem tengjast átökunum í Úkraínu. Íslendingasögur eru komnar í deigluna í deilunni um Úkraínu. Menning 16. nóvember 2023 10:14
Niinistö segir aukinn fjölda hælisleitenda hefndaraðgerð Rússa Sauli Niinistö, forseti Finnlands, hefur heitið því að grípa til afdráttarlausra aðgerða vegna aukins fjölda hælisleitenda sem kemur til landsins frá Rússlandi. Segir hann um að ræða hefndaraðgerðir Rússa vegna samstarfs Finna og Bandaríkjamanna. Erlent 16. nóvember 2023 09:58
Hafa náð fótfestu á austurbakka Dnipro Úkraínskir landgönguliðar vinna nú hörðum höndum að því að stækka fótfestu þeirra á austurbakka Dnipro-ár í Kherson-héraði. Harðir bardagar hafa geisað á svæðinu en Úkraínumenn vilja koma bryndrekum yfir ánna. Erlent 15. nóvember 2023 22:42
Einn af morðingjum Politkovskayu náðaður eftir herþjónustu í Úkraínu Einn af mönnunum sem var dæmdur í fangelsi fyrir morðið á rússnesku blaðakonunni Önnu Politkovskayu árið 2006 hefur verið náðaður eftir að hafa barist í Úkraínu. Erlent 14. nóvember 2023 12:06
Andspyrnumenn felldu þrjá rússneska leyniþjónustumenn Að minnsta kosti þrír rússneskir leyniþjónustumenn voru drepnir í úkraínsku borginni Melitopol í gær. Erlent 13. nóvember 2023 07:57
Selenskí varar Úkraínumenn við auknum árásum á innviði Vólódímír Selenskí Úkraínuforseti hefur varað Úkraínumenn við auknar árásir Rússa á innviði í landinu nú þegar vetur gengur í garð. Hann segir herinn búinn undir sókn Rússa á austurvígstöðvunum. Erlent 13. nóvember 2023 03:16
Rússar gefa út handtökuskipun á hendur íslenskum ríkisborgara Yfirvöld í Rússlandi hafa gefið út handtökuskipun á hendur Liudmilu „Lucy“ Shtein, 27 ára meðlimi hljómsveitarinnar og aðgerðahópsins Pussy Riot. Erlent 8. nóvember 2023 08:53
Dó þegar afmælisgjöfin sprakk Aðstoðarmaður yfirmanns herafla Úkraínu dó í gær þegar handsprengja sem hann fékk í afmælisgjöf sprakk. Þrettán ára sonur mannsins, sem hét Gennadiy Chastyakov og var majór, særðist alvarlega en fyrst var talið að um banatilræði hefði verið að ræða. Erlent 7. nóvember 2023 23:41
Salúsjní segir þrátefli á víglínunni Valerí Salúsjní, yfirmaður herafla Úkraínu, segir ólíklegt að Úkraínumenn muni ná að brjóta sér leið í gegnum varnir Rússa og að stríðið í Úkraínu sé að færast í nýjan fasa staðbundins hernaðar og þreytistríðs (e: attritional warfare). Hann segir nýja tækni lykilinn að því að gera Úkraínumönnum kleift að sigra Rússa. Erlent 3. nóvember 2023 08:01
Fengu gervihnattatækni í skiptum fyrir sprengikúlur Sérfræðingar Leyniþjónustu Suður-Kóreu telja að nágrannar þeirra í norðri séu að undirbúa þriðju tilraunina til að skjóta gervihnetti á braut um jörðu. Geimvísindamenn Norður-Kóreu eru sagðir hafa fengið tæknilega aðstoð frá Rússum. Erlent 1. nóvember 2023 13:54
Carlsberg í hart við Pútín og Rússland Danski bruggrisinn Carlsberg hefur stigið fyrstu skrefin í átt að því að sækja bætur frá Rússlandi eftir að Pútín Rússlandsforseti skrifaði undir tilskipun sem kom dótturfyrirtæki Carlsberg undir Rússa. Viðskipti erlent 31. október 2023 23:00
Úkraínsk Rússahækja skotin á Krímskaga Oleg Tsarev, fyrrverandi þingmaður í Úkraínu, er á sjúkrahúsi og sagður í alvarlegu ástandi eftir að hann var skotinn á Krímskaga síðustu nótt. Tsarev er sakaður um að hafa svikið Úkraínu og gengið til liðs við Rússa. Erlent 27. október 2023 17:01
Segja Rússa taka eigin hermenn af lífi Yfirmenn í rússneska hernum taka eigin hermenn sem neita að fylgja skipunum af lífi og hafa hótað því að myrða heilu hersveitirnar, hörfi þær af víglínunum í Úkraínu. Þykir það til marks um lélegan baráttuanda rússneskra hersveita. Erlent 27. október 2023 13:37
Gengur illa að auka framleiðslu skotfæra Ætlanir Evrópusambandsins varðandi sendingar skotfæra til Úkraínu virðast ekki ætla að ganga eftir. Vandræði Evrópuríkja við að auka framleiðslu skotfæra gæti komið niður á vörnum Úkraínumanna og veitt Rússum ákveðið forskot. Erlent 26. október 2023 13:18
Slóvakía hættir hernaðaraðstoð við Úkraínu Nýskipaður forsætisráðherra Slóvakíu, Robert Fico, tilkynnti fyrr í dag að stjórnvöld þar í landi muni stöðva hernaðaraðstoð til Úkraínu og hætta þátttöku landsins í viðskiptabanni gagnvart Rússlandi. Erlent 26. október 2023 13:15
Rússar sækja hart fram í austri Undanfarna daga hafa gífurlega harðir bardagar átt sér stað í austurhluta Úkraínu. Þar hafa Rússar reynt að umkringja víggirta úkraínska hermenn við bæinn Avdívka og hafa þeir náð einhverjum árangri. Sókninni hefur þó fylgt gífurlegur kostnaður fyrir Rússa. Erlent 24. október 2023 23:30
Njósnarar þjálfaðir af CIA heyja skuggastríð gegn Rússum Hópar úkraínskra njósnara sem hafa náin tengsl við Leyniþjónustu Bandaríkjanna (CIA) og hafa jafnvel verið þjálfaðir í Bandaríkjunum eru sagðir heyja eigið stríð gegn Rússlandi í skuggunum. Þeir eru meðal annars sagðir hafa myrt Daríu Dugina í sprengjuárás, samverkamenn Rússa í austurhluta Úkraínu og rússneska hermenn. Erlent 24. október 2023 10:56
Sex létust þegar flugskeyti hæfði pósthús í Kharkiv Sex eru látnir og fjórtán særðir eftir að flugskeyti hæfði póstdreifingarmiðstöð í borginni Kharkiv í austurhluta Úkraínu í kvöld. Erlent 21. október 2023 22:43
Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Erfiður vetur í vændum hjá Úkraínumönnum Úkraínumönnum tókst ekki að brjóta sér leið í gegnum varnir Rússa í suðurhluta Úkraínu í sumar. Eftir fimm mánaða átök er vetur að skella á, sem mun gera frekari sóknir erfiðar. Þá eiga Rússar enn í umfangsmiklum árásum við bæinn Avdívka í austurhluta Úkraínu, sem hafa skilað litlum árangri og kostað Rússa mikið. Erlent 21. október 2023 09:01
Evrópskir leiðtogar í uppnámi vegna fundar Pútín og Orbán Leiðtogar og sendiherrar í Evrópu eru ósáttir við fund leiðtoga Rússlands og Ungverjalands í vikunni. Talsmaður Ungverjalands segir það þó alltaf hafa verið skýrt að forsetinn vildi halda samtalinu opnu. Erlent 20. október 2023 08:55
Stuðningurinn við Ísrael og Úkraínu sé skynsamleg fjárfesting til framtíðar Joe Biden Bandaríkjaforseti ávarpaði Bandaríkjamenn frá skrifstofu sinni í Hvíta húsinu í gær og biðlaði til þeirra um að hverfa ekki frá hlutverki sínu sem „leiðarljós“ heimsins. Erlent 20. október 2023 06:32
Fyrsta símtal Bjarna í embætti til Úkraínu Fyrsta símtal Bjarna Benediktssonar í embætti utanríkisráðherra var til Dmytro Kuleba, utanríkisráðherra Úkraínu. Innlent 18. október 2023 18:39
Sagðar meðal verstu árása sem Rússar hafa orðið fyrir Úkraínumenn segjast hafa grandað minnst níu herþyrlum Rússa, loftvarnarkerfi, skotfærum og öðrum hergögnum í árásum á tvo flugvelli í nótt. Rússneskir herbloggarar segja árásirnar meðal þeirra alvarlegustu sem Rússar hafa orðið fyrir í stríðinu. Erlent 17. október 2023 11:32
Leynilega upptakan á Edition-hótelinu: „Ef ég á að taka fimmta sætið vil ég verða þinn maður í þessu“ Innlent