Ný sveit njósnara leiðir skuggastríð Rússa Skuggastríð Rússa gegn Vesturlöndum er leitt af nýju teymi njósnara hjá leyniþjónustu rússneska hersins (GRU). Þessi hópur er meðal annars talinn hafa sent eldsprengjur um borð í fragtflugvélar og reynt að ráða forstjóra stærsta hergagnaframleiðanda Evrópu af dögum, svo eitthvað sé nefnt. Erlent 15. febrúar 2025 13:06
Orðið samstaða sé á allra vörum Forsætisráðherra sækir öryggisráðstefnu í München. Hún segir mikið rætt um samstöðu þrátt fyrir að fulltrúar á fundinum hafi skiptar skoðanir. Leiðtogar Norðurlandanna og Eystrasaltsríkjanna ítrekuðu stuðning sinn við Úkraínu. Innlent 14. febrúar 2025 21:18
Hótar hertum aðgerðum neiti Pútín að semja JD Vance, varaforseti Bandaríkjanna, segir að neiti Vladimír Pútin, forseti Rússlands, að semja um frið í Úkraínu og tryggja sjálfstæði Úkraínumanna til lengri tíma, muni Bandaríkin herða refsiaðgerðir og þvinganir gegn Rússlandi. Þá kæmi einnig til greina að senda bandaríska hermenn til Úkraínu. Erlent 14. febrúar 2025 11:55
Segir Úkraínu enn á leið í NATO Úkraína mun að endingu ganga í Atlantshafsbandalagið. Þetta sagði Keir Starmer, forsætisráðherra Bretlands, við Vólódímír Selenskí, forseta Úkraínu, þegar þeir töluðu saman í síma í morgun en þá sagði Starmer einnig að engar viðræður um Úkraínu gætu átt sér stað án Úkraínu. Erlent 14. febrúar 2025 10:53
Sprengjudróni flaug á steinhvelfingu Tsjernobyl-versins Skemmdir urðu á steinhvelfingu utan um Tsjernobyl-kjarnorkuverið í Úkraínu og eldur kviknaði eftir að dróni flaug á hana í nótt. Forseti Úkraínu fullyrðir að dróninn hafi verið rússneskur og að hann hafi verið öflugan sprengiodd. Erlent 14. febrúar 2025 08:51
Krafa á Evrópuríkin um aukin framlög og fjárfestingar muni aðeins aukast Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, utanríkisráðherra segir ljóst að öll bandalagsríki þurfi að efla sína getu og varnarviðbúnar og að krafa á Evrópuríki um aukin framlög muni aukast. Þorgerður Katrín sótti fund varnarmálaráðherra NATÓ í Brussel í dag. Innlent 13. febrúar 2025 22:59
Líklegra að komið verði á vopnahléi en friðarsamningum Albert Jónsson sérfræðingur í alþjóðastjórnmálum og fyrrverandi sendiherra Íslands í Rússlandi og Bandaríkjunum telur líklegra að vopnahlé taki gildi á milli Úkraínu og Rússlands en að gerðir verði friðarsamningar þeirra á milli. Innlent 13. febrúar 2025 22:23
Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Sýndi á spilin fyrir viðræður Vladimír Pútín, forseti Rússlands, vann líklega stóran sigur í gær. Hann gerði það ekki á víglínunni í Úkraínu eða í Kúrsk, heldur á alþjóðasviðinu og hafa málpípur hans fagnað ákaft. Erlent 13. febrúar 2025 14:11
Danir telja Rússa geta hafið stórstríð í Evrópu á allra næstu árum Rússar gætu verið tilbúnir að hefja stórstríð á meginlandi Evrópu á næstu fimm árum telji þeir Atlantshafsbandalagið veiklað eða sundrað, að mati dönsku leyniþjónustunnar. Bandaríkjastjórn hefur sagt að varnir Evrópu séu henni ekki efst í huga. Erlent 13. febrúar 2025 09:12
Ráðamenn í Evrópu uggandi vegna viðræðna Trump og Pútín Stjórnvöld í sjö Evrópuríkjum sendu frá sér yfirlýsingu í gær þess efnis að þau þyrftu að eiga aðild að viðræðum um endalok átaka í Úkraínu, sem og ráðamenn þar í landi. Erlent 13. febrúar 2025 06:57
Trump segir samningaviðræður um Úkraínustríðið hefjast strax Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, ræddi við forseta Rússlands, Vladimír Pútín í dag í síma um Úkraínu, Miðausturlönd, orkumál, gervigreind og peningamál. Trump segir símtalið hafa verið langt og mjög árangursríkt í færslu á samfélagsmiðli sínum Truth Social. Erlent 12. febrúar 2025 18:02
Útilokar aðild Úkraínu að NATO og krefur Evrópu um meira Pete Hegseth, varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, segir ríkisstjórn Donalds Trump, forseta, ekki telja að aðild Úkraínu af Atlantshafsbandalaginu vera raunsæja að svo stöddu. Hann sagði Bandaríkjamenn þó fylgjandi því að Úkraína haldi fullveldi sínu og mikilvægt væri að tryggja frið sem fyrst og ríki Evrópu þyrftu að spila stærri rullu. Erlent 12. febrúar 2025 14:49
Skotflaugar féllu á Kænugarð Að minnsta kosti einn er látinn og þrír sagðir eftir skotflaugaárás á Kænugarð í nótt. Nokkrir eldar kviknuðu vegna árásarinnar en Rússar eru sagðir hafa kostið sjö skotflaugum að Kænugarði og Kryvyi Rog og einnig notast við 123 sjálfsprengidróna til árása í Úkraínu. Erlent 12. febrúar 2025 12:01
Bandaríkin og öfgahægrið efst á baugi hjá þýsku kanslaraefnunum Samskiptin við Bandaríkin undir stjórn nýs forseta og uppgangur hægriöfgaflokksins Valkosts fyrir Þýskalands var efst á baugi í fyrstu sjónvarpskappræðum kanslaraefnanna fyrir þingkosningarnar í Þýskalandi í gær. Erlent 10. febrúar 2025 09:55
Selenskí segir nauðsynlegt að tryggja varanlegan frið Vólódímír Selenskí Úkraínuforseti segist reiðubúin til að ganga til hvers konar viðræðna um endalok átaka að því gefnu að Evrópa og Bandaríkin skuldbindi sig til að styðja áfram við Úkraínu. Erlent 10. febrúar 2025 08:15
Sóttu fimm kílómetra inn fyrir varnir Rússa Úkraínskir hermenn gerðu í gær nokkrar tiltölulega umfangsmiklar gagnárásir gegn Rússum í Kúrsk-héraði. Eru þeir sagðir hafa brotið sér leið gegnum varnir Rússa og sótt fram allt að fimm kílómetra. Erlent 7. febrúar 2025 11:35
Skotflaugar frá Norður-Kóreu orðnar nákvæmari Norðurkóreskar skotflaugar sem Rússar skjóta nú reglulega að Úkraínu eru orðnar töluvert nákvæmari. Rússar hafa skotið þessum eldflaugum að skotmörkum í Úkraínu í rúm tvö ár en Úkraínumenn segja þær orðnar töluvert betri. Erlent 6. febrúar 2025 15:37
Þórdís Kolbrún gætir úkraínskra barna Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, fyrrverandi utanríkisráðherra og nú þingmaður Sjálfstæðisflokksins, hefur verið skipuð sérstakur sendifulltrúi um stöðu barna í Úkraínu. Um er að ræða ólaunað starf sem hún mun sinna meðfram þingmennsku. Innlent 5. febrúar 2025 11:39
Skotmark sprengingar í Moskvu herforingi frá Austur-Úkraínu Rússnesk yfirvöld segja að skotmark banatilræðis í Moskvu í morgun hafi verið leiðtogi vopnaðrar sveitar sem er hliðholl Rússum í Austur-Úkraínu. Hann og lífvörður hans féllu þegar sprengja sprakk í anddyri lúxusblokkar. Erlent 3. febrúar 2025 10:51
Segir Selenskí ólögmætan og ófæran um að skrifa undir eitt né neitt Vladimir Pútín Rússlandsforseti virðist útiloka að koma sjálfur að viðræðum við Vólódímír Selenskí Úkraínuforseta, sem hann segir „ólögmætan“. Erlent 29. janúar 2025 09:08
Segir Rússa hafa ætlað að ráða fleiri iðnaðarleiðtoga af dögum Einn forsvarsmanna Atlantshafsbandalagsins staðfesti í dag að Rússar hafi lagt á ráðin með að myrða Armin Papperger, framkvæmdastjóra þýska hergagnaframleiðandans Rheinmetall. Rússneskir útsendarar hefðu staðið að baki fjölmörgum skemmdarverkum og tilraunum til skemmdarverka í Evrópu á undanförnum árum, auk fleiri banatilræða. Erlent 28. janúar 2025 20:45
Svíar leggja hald á skip vegna skemmda á sæstreng Herskip á vegum Atlantshafsbandalagsins komu í gær að þremur skipum sem fluttu farm frá Rússlandi nálægt stað þar sem enn einn sæstrengurinn fór í sundur á Eystrasalti. Sænskir saksóknarar segja að eitt skipanna hafi verið kyrrsett en öll þrjú skipin eru til rannsóknar. Erlent 27. janúar 2025 23:24
Eldhaf við stóra olíuvinnslu í Rússlandi Úkraínumenn gerðu í nótt umfangsmikla drónaárás á nokkur skotmörk í Rússlandi. Árásin beindist að mestu gegn skotmörkum í Ryazan og þá sérstaklega olíuvinnslu þar og orkuveri. Árás var einnig gerð á verksmiðju í Bryansk, þar sem íhlutir í rafmagnstæki og vopn eru framleiddir. Erlent 24. janúar 2025 13:53
Með áhyggjur af stöðu hagkerfisins Vladimír Pútín, forseti Rússlands, hefur sífellt meiri áhyggjur af stöðu hagkerfis Rússlands. Skortur á vinnuafli, verðbólga og háir stýrivextir hafa gert stöðuna erfiða, þó hagvöxtur mælist í Rússlandi. Erlent 23. janúar 2025 14:57
Fleiri Kimdátar væntanlegir í Kúrsk: „Það er bara áfram og áfram“ Úkraínskir hermenn í Kúrskhéraði í Rússlandi segja dáta Kims Jong Un, einræðisherra Norður-Kóreu, hafa lært mikið af reynslu síðustu vikna. Þeir sækja fram í stærri hópum en Rússar og án stuðnings skrið- og bryndreka og stoppa þeir ekki eða hörfa vegna mikils mannfalls. Erlent 23. janúar 2025 08:02
Trump ætlar að skattleggja Pútín svo hann hætti stríðsrekstri í Úkraínu Donald Trump Bandaríkjaforseti, sem undanfarna daga hefur hótað því að beita refsitollum gegn Kínverjum, Mexíkóum og Kanadamönnum hefur nú snúið sér að Rússum. Erlent 23. janúar 2025 07:31
Nord Stream-skemmdarverkin stærsti metanlekinn sem sést hefur Skemmdarverkin sem voru unnin á Nord Stream-gasleiðslunum tveimur í Eystrasalti árið 2022 voru umfangsmesti leki gróðurhúsalofttegundarinnar metans sem um getur. Losunin var margfalt meiri en vísindamenn áætluðu fyrst eftir sprengingarnar. Erlent 20. janúar 2025 10:57
Þrír látnir eftir loftárás Rússa Þrír eru látnir eftir að Rússar gerðu loftárás á höfuðborg Úkraínu. Ekki er vitað hvert skotmark Rússa var. Erlent 18. janúar 2025 11:29
Hótar hörðum viðbrögðum hafi Rússar tekið Ástrala af lífi Anthony Albanese, forsætisráðherra Ástralíu, sagði í gær að ríkisstjórn hans myndi grípa til harðra aðgerða ef í ljós kæmi að ástralskur sjálfboðaliði sem barðist með Úkraínumönnum hafi verið tekinn af lífi í haldi Rússa. Oscar Jenkins var handsamaður í Úkraínu í desember. Erlent 16. janúar 2025 16:01
Gerðu umfangsmikla árás á vesturhluta Úkraínu Rússar gerðu umfangsmikla dróna og eldflaugaárás á Úkraínu í nótt. Árásin beindist að mestu leyti að orkuinnviðum í vestanverðu landinu en Úkraínumenn segja að Rússar hafi notast við 43 eldflaugar af mismunandi gerðum og 74 Shahed sjálfsprengidróna við árásina. Erlent 15. janúar 2025 11:44