Íran

Íran

Höfuðborg: Teheran. Mannfjöldi: 89,6 milljónir (2025). Flatarmál: 1.648.195 ferkílómetrar.


Fréttamynd

Ráð­gjafar á­hyggju­fullir og Trump gerði hlé á á­rásum

Bandaríkjamenn gerðu engar árásir á Íran í nótt, eftir tæplega tvær vikur af daglegum árásum. Donald Trump, forseti, hefur íhugað að auka umfang árása gegn Íran enn frekar en JD Vance, varaforseti, Dan Caine, formaður herforingjaráðs Bandaríkjanna, og aðrir ráðgjafar forsetans eru sagðir hafa lýst yfir áhyggjum vegna þeirra ætlana.

Erlent

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Ekkert lát á á­rásum Banda­ríkjanna og Íran

Bandaríkin gerðu árás á kaupskip sem reyndi að rjúfa hafnarbann íranskra hafna, að sögn Bandaríkjahers. Jafnframt beindu Íranir áfram spjótum sínum að bandarískum herstöðvum og mannvirkjum á Persaflóa. Sádi-Arabar gerðu hefndarárás á Jemen fyrir árásir Húta á sádi-arabísk olíuskip.

Erlent
Fréttamynd

Utan­ríkis­ráð­herrann lýsir á­rásunum sem urðu Khamenei að bana

Abbas Araghchi, utanríkisráðherra Íran, segir upplýsingar sem Ísraelar höfðu um fundi ráðamanna í Íran daginn sem Ali Khamenei var ráðinn af dögum benda til öryggisbrests sem líklega sé enn til staðar. Araghchi var í sömu byggingu og Khamenei þegar Ísraelar létu til skarar skríða og var dreginn úr rústunum. Síðan þá hefur hann verið á stöðugri hreyfingu til að forðast að verða sjálfur myrtur.

Erlent
Fréttamynd

Skoða að auka um­fang á­rása enn frekar

Bandaríkjamenn eru að fjölga herþotum og eldsneytisflugvélum í Mið-Austurlöndum og er til skoðunar að auka umfang árása gegn Írönum enn frekar. Í sama tíma boða bæði Bandaríkjamenn og Íranir að frekari viðræður komi enn til greina.

Erlent
Fréttamynd

Tveir banda­rískir her­menn látnir eftir á­rásir Írans

Tveir bandarískir hermenn eru látnir og sá þriðji er týndur eftir eldflaugaárás Írans í Jórdaníu í gær, föstudag. Fjórir hermenn til viðbótar voru fluttir til nánari aðhlynningar á sjúkrahúsi en hafa þegar verið útskrifaðir. Alls hafa sextán hermenn Bandaríkjanna nú látist í átökunum.

Erlent
Fréttamynd

Gerðu á­rásir á Íran sjötta daginn í röð

Bandaríkjaher hélt árásum sínum á Íran áfram í nótt, sjöttu nóttina í röð og fullyrða miðlar í Íran að nú hafi verið ráðist að borgaralegum innviðum á borð við brýr, lestarstöð og flugvöll.

Erlent
Fréttamynd

Trump boðar gjald­töku á Hormússundi

Bandaríkjamenn gerðu árásir á skotmörk í Íran í nótt, þriðju nóttina í röð. Donald Trump Bandaríkjaforseti sagði að árásirnar yrðu harðar og að Bandaríkjastjórn myndi í kjölfarið koma aftur á hafnarbanni gegn Írönum á Persaflóa.

Erlent
Fréttamynd

Íran og Banda­ríkin skiptast á á­rásum

Íranir gerðu árásir á bandarískar herstöðvar á Persaflóa í nótt og segja aðgerðirnar svar við árásum Bandaríkjanna fyrr í nótt. Íranski byltingarvörðurinn (IRGC) sagðist í gær hafa lokað fyrir alla umferð á Hormússundi. 

Erlent
Fréttamynd

Þúsundir fylgja æðsta­klerkinum til grafar í skugga á­rása

Þúsundir Írana fylgja fyrrum æðstaklerkinum Ali Khamenei til grafar á lokadegi útfarar hans í borginni Mashhad í norðaustur Íran í dag. Fjórtán létust í árásum Bandaríkjanna síðustu nótt og þá hafa Íranir svarað með árásum gegn herstöðvum Bandaríkjanna í Kúveit, Katar og Barein.

Erlent
Fréttamynd

Á­rásir á báða bóga og um­ferð um sundið dregst saman

Bandaríkjaher hélt áfram árásum á Íran í gær, eftir að Donald Trump Bandaríkjaforseti sagði að tímabundið vopnahlé væri úr sögunni. Samkvæmt írönskum miðlum heyrðust sprengingar í hafnarborgunum Bandar Abbas og Sirik, auk þess sem gerðar voru árásir á skotmörk í Bushehr héraði, þar sem er að finna kjarnorkuinnviði.

Erlent
Fréttamynd

Krist­rún um Trump: „Það er hlýtt á milli okkar“

Leiðtogafundi Atlantshafsbandalagsins í Tyrklandi lauk í dag en þar fór Bandaríkjaforseti mikinn og hélt áhuga sínum á Grænlandi til streitu. Forsætisráðherra segir mikla hlýju hafa einkennt fundinn og vel fór á milli hennar og Donalds Trump. 

Innlent
Fréttamynd

Boðar fleiri á­rásir

Bandaríkjaher ætlar að halda áfram árásunum sínum á Íran í kvöld. Þetta tilkynnti Donald Trump Bandaríkjaforseti á blaðamannafundi á leiðtogafundi Atlantshafsbandalagsins.

Erlent
Fréttamynd

Íranir svara fyrir sig með á­rásum á Kúveit og Barein

Íranir gerðu árásir á hernaðarinnviði Bandaríkjanna í Kúveit og Barein í nótt, í kjölfar árása Bandaríkjamanna á skotmörk í Íran í gærkvöldi. Yfirvöld í Bandaríkjunum sögðu árásir sínar svar við árásum Írana á flutningaskip á Hormuz-sundi.

Erlent