Erlent

Til í að fórna borgum þar sem demó­kratar eru við völd

Kjartan Kjartansson skrifar
Donald Trump hefur ekki miklar mætur á ríkjum þar sem meirihluti kjósenda greiddi honum ekki atkvæði sitt í forsetakosningum. Hann hefur sýnt það í verki á ýmsan hátt undanfarin misseri.
Donald Trump hefur ekki miklar mætur á ríkjum þar sem meirihluti kjósenda greiddi honum ekki atkvæði sitt í forsetakosningum. Hann hefur sýnt það í verki á ýmsan hátt undanfarin misseri. AP/Charlie Riedel

Donald Trump Bandaríkjaforseti er til í að leyfa Írönum að „taka út“ stórborgir í Kaliforníu þar sem demókratar eru í meirihluta í stríði hans við Persaflóaríkið. Ríkisstjóri Kaliforníu segir forsetann „sturlaðan“.

Ummælin lét Trump falla á fundi með stuðningsmönnum sínum í Nebraska í gærkvöldi. Þar sagði hann meðal annars að hátt olíuverð væri lítið gjald fyrir að tryggja öryggi heimsbyggðarinnar og Bandaríkjanna með stríðsrekstrinum í Íran.

„Þeir gætu tekið út borg. Leyfið þeim að taka út Los Angeles. Leyfið þeim að taka út San Diego,“ sagði forsetinn og uppskar lófatak aðdáenda sinna.

Trump: "With the war, it's just artificial. It's a little bit high. It's a small price to pay ... let them take out Los Angeles, let them take out San Diego. This is a very small price to pay."

[image or embed]

— Aaron Rupar (@atrupar.com) October 5, 2026 at 11:44 PM

Bæði Los Angeles og San Diego er stýrt af demókrötum og ríkið sjálft sömuleiðis. Gavin Newsom, ríkisstjóri Kaliforníu, fordæmdi ummæli forseta landsins í samfélagsmiðlafærslu.

„Hann er sturlaður og hættulegur,“ sagði Newsom.

Það gæti ekki talist eðlilegt að forseti landsins hvetti til árása á tvær af fjölmennustu borgum eigin lands þar sem rúmlega tíu milljónir manna búa.

Trump hefur beitt sér á ýmsan hátt gegn ríkjum sem greiddu honum ekki atkvæði í forsetakosningunum árið 2024, meðal annars með því að meina þeim um stuðning alríkisstjórnarinnar eftir náttúruhamfarir. Þá sendi hann þjóðvarðliðið til Kaliforníu til þess að framfylgja innflytjendastefnu sinni í fyrra.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×