Ísa­fjarðar­bær

Ísa­fjarðar­bær

Mannfjöldi: 3.832 (2025). Flatarmál: 2.380 ferkílómetrar. Stærstu byggðakjarnar: Ísafjörður, Suðureyri, Flateyri, Þingeyri, Hnífsdalur.


Fréttamynd

Gul við­vörun eftir stóra skriðu­

Gul viðvörun er í gildi vegna skriðuhættu á norðanverðum Vestfjörðum en skriður og grjóthrun hafa fallið á svæðinu síðustu daga. Mjög úrkomusamt hefur verið víða um land og er gert ráð fyrir áframhaldandi úrkomu fram yfir helgi. Stór skriða féll á Hnífsdalsveg á norðanverðum Vestfjörðum í gær.

Innlent

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Höfnuðu ráð­gjöf um að göng undir Klettsháls yrðu í for­gangi

Vestfirskir sveitarstjórnarmenn höfnuðu í september í fyrra tillögu ráðgjafarfyrirtækis sem setti jarðgöng undir Klettsháls efst á forgangslista yfir næstu göng í fjórðungnum. Þess í stað ákvað Fjórðungsþing Vestfirðinga að setja ekki fram neina forgangsröðun með þeim rökum að slík forgangsröðun myndi ekki hljóta samstöðu sveitarstjórna á Vestfjörðum.

Innlent
Fréttamynd

Dóu ekki ráða­laus þegar Dýra­fjarðar­dagar döguðu uppi

Þegar ljóst var að Dýrafjarðardagar yrðu ekki haldnir í ár tóku tvö systkini frá Þingeyri málin í eigin hendur og stofnuðu fjölskylduhátíðina Litla Dýra. Hátíðin stendur yfir 9. til 12. júlí og á dagskrá verður strandblaksmót, grillveisla, fjórhjólaferðir, glersmiðja, uppistand með Gísla Einarssyni, björgunarbátaferðir, gusuganga og ýmislegt.

Lífið
Fréttamynd

Hulda Hákon, Jón Óskar og Krassasig á ListaVestrinu

Menningarhátíðin ListaVestrið verður haldin í fimmta skiptið í ár og fer fram dagana 11. til 19. júlí á Flateyri. Fimmtán listamenn taka þátt í hátíðinni í ár og má þar nefna hjónin Huldu Hákon og Jón Óskar, Einar Örn Benediktsson og svo sýna börn Jóns Sigurpálssonar heitins verk hans.

Menning
Fréttamynd

Eigi von á tæp­lega 200 þúsund gestum

Íbúar Ísafjarðarbæjar eiga von á tveimur skemmtiferðaskipum í dag með allt að 8000 farþegum. Annað skipanna er það stærsta sem hefur komið til hafnar á Ísafirði en skipið kom þangað í sína fyrstu heimsókn árið 2023. Gylfi Ólafsson, nýkjörinn bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar, segir fjölda bókana vera að taka við sér eftir lækkun innviðagjalds. Bærinn eigi von á tæplega 200 þúsund ferðamönnum í sumar. 

Innlent
Fréttamynd

Brúin yfir Djúpa­fjörð boðin út

Vegagerðin hefur boðið út nýbyggingu Vestfjarðavegar á um 4,6 kílómetra kafla yfir Djúpafjörð og Gufufjörð. Bygging 210 metra langrar bogabrúar yfir Djúpafjörð er innifalin í verkinu. Verkinu skal að fullu lokið 1. október 2028.

Innlent
Fréttamynd

Sér­sveitar­menn flugu til Ísa­fjarðar vegna vopnaðs manns

Sérsveitarmenn flugu með þyrlu Landhelgisgæslunnar á Ísafjörð á fimmtudagskvöld til þess aðstoða lögregluna í útkalli vegna vopnaðs manns í andlegu ójafnvægi í heimahúsi. Aðgerðin gekk vel, að sögn yfirlögregluþjóns, sem bætir við að taka þurfi á geðheilbrigðismálum fastari tökum.

Innlent
Fréttamynd

Bar­átta sem skiptir sköpum

Það er auðvelt að taka þeim réttindum sem við eigum sem sjálfsögðum hlut, svo sem að vinna á mannsæmandi launum, að eiga rétt á fríi og að geta treyst á veikindarétt, fæðingarorlof, atvinnuleysisbætur eða stuðning þegar lífið fer úr skorðum.

Skoðun
Fréttamynd

Flug með for­tíð og fram­tíð

„Áætlunarflug á milli Reykjavíkur og Ísafjarðar, Bíldudals og Gjögurs eru mikilvægustu almenningssamgöngur Vestfirðinga og lífæð byggðanna stóran hluta ársins. Brýnt er að standa vörð um þá þjónustu og öryggi sem flugsamgöngur veita íbúum á Vestfjörðum.”

Skoðun
Fréttamynd

Samningur um Ísa­fjörð tryggir rekstur Q200-véla Icelandair

Ráðamenn Icelandair hafa fallið frá þeirri ákvörðun að hætta rekstri styttri Dash 8-innanlandsvéla sinna eftir að samningar tókust við Vegagerðina um framhald Ísafjarðarflugs. Samið var um nærri helmings lækkun frá upphaflegu tilboði Icelandair en á móti verður dregið úr tíðni flugferða.

Innlent
Fréttamynd

Varnarsigur segir for­maður bæjar­ráðs Ísa­fjarðar

Vegagerðin hefur samið við Icelandair um flug til Ísafjarðar gegn 1,7 milljarða króna niðurgreiðslu næstu fjögur ár. Það er ríflega helmings lækkun frá tilboði Icelandair, sem var upp á 3,5 milljarða króna, en á móti kemur að flugferðum er fækkað um 28 prósent. Formaður bæjarráðs Ísafjarðarbæjar kveðst líta á þetta sem varnarsigur.

Innlent