Flugumferðarstjórar fresta verkfallsaðgerðum Félag flugumferðarstjóra hefur ákveðið að hætta við verkfallsaðgerðir næstkomandi miðvikudag í ljósi tíðinda af eldgosinu. Innlent 18. desember 2023 23:22
Setur áherslu á auknar fjárfestingar erlendis en minnkar vægi ríkisbréfa Einn stærsti lífeyrissjóður landsins boðar litlar breytingar á hlutfalli sínu í fjárfestingum í innlendum hlutabréfum á komandi ári á meðan stefnan er sett á að auka áfram nokkuð vægi erlendra eigna í eignasafninu. Útlit er fyrir töluverða endurfjárfestingarþörf hjá Gildi í náinni framtíð og á árinu 2024 er áætlað að hún verði vel yfir fimmtíu milljarðar króna. Innherji 18. desember 2023 11:19
Icelandair semur um rekstur flugeldhúss félagsins til tólf ára Icelandair hefur gert tólf ára samning við fyrirtækið Newrest Group um rekstur flugeldhúss Icelandair á Keflarvíkurflugvelli. Newrest tekur við rekstrinum 1. febrúar næstkomandi. Flugeldhúsið er eitt stærsta framleiðslueldhús á Íslandi en þar eru framleiddar veitingar sem flugfélagið býður upp á í flugi. Viðskipti innlent 18. desember 2023 11:14
Ekki nóg að merkja bjórauglýsingu með „léttöl“ Fjölmiðlanefnd hefur sektað Sýn um 1,5 milljónir króna vegna áfengisauglýsingar sem birt var hér á Vísi. Nefndin taldi að um áfengisauglýsingu hafi verið að ræða þrátt fyrir að auglýsing á Víking Gylltum hafi verið merkt með orðinu „léttöl“. Viðskipti innlent 18. desember 2023 10:57
Fyrstu brottfarir klukkan ellefu Verkfallsaðgerðir Félags íslenskra flugumferðarstjóra héldu áfram í nótt þegar flugumferðarstjórar lögðu niður störf í þriðja skiptið. Verkfallið hefur áhrif á alla umferð um Keflavíkurflugvöll og fjölda flugferða hefur verið frestað. Innlent 18. desember 2023 09:13
Ólöf kveður Kviku og heilsar Íslandsbanka Ólöf Jónsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri Einstaklingssviðs Íslandsbanka. Hún hefur undanfarið verið framkvæmdastjóri viðskiptabankasviðs Kviku banka. Viðskipti innlent 18. desember 2023 08:20
Líkur á að fólk komist ekki heim fyrir jól að aukast talsvert Forstjóri Icelandair segir að líkurnar á að farþegar komist ekki á sinn áfangastað fyrir jól aukist talsvert milli vikna í ljósi þeirrar stöðu sem upp er komin í kjaraviðræðum flugumferðarstjóra og sáttasemjara. Slæmt sé að vita til þess að fólk geti ekki einu sinni talað saman. Innlent 17. desember 2023 22:31
Þakklátur fyrir fagmennsku og góðvild Sundkappinn söngelski Már Gunnarsson segist gríðarlega ánægður með þjónustu Play í flugi sínu heim til landsins í dag. Hann og hundurinn hans Max voru kampakátir og segja það hafa verið besta flug þeirra til þessa. Lífið 17. desember 2023 11:15
Flugumferðarstjórar bjóði upp á gula viðvörun Forstjóri Icelandair líkir verkfallsaðgerðum flugumferðarstjóra við óveður sem olli félaginu um eins milljarðs króna tjóni fyrir sléttu ári. Aðgerðirnar valdi félaginu miklu tjóni en bitni fyrst og fremst á fólki sem stefnir á ferðalög í kringum hátíðirnar. Innlent 17. desember 2023 08:50
Gular viðvaranir í boði flugumferðarstjóra Nú eru rúmlega tvö ár liðin frá því að Icelandair tók á flug á ný eftir að hafa verið í híði í 18 mánuði vegna Covid faraldursins. Sem betur fer hefur Icelandair og ferðaþjónustan á Íslandi náð sér vel á strik og á fyrstu níu mánuðum þessa árs námu útflutningstekjur Íslendinga vegna flugs og ferðaþjónustu 35% af heildarútflutningstekjum þjóðarinnar. Skoðun 16. desember 2023 22:01
Play breytir áætlunarkerfinu vegna verkfallanna Tímabundnar breytingar verða gerðar á tengileiðakerfi flugfélagsins Play meðan á verkfallshrinu flugumferðarstjóra stendur. Breytingarnar eiga við um flugferðir á mánudag, þriðjudag og miðvikudag. Innlent 16. desember 2023 17:53
Mánuður án flugs gæti kostað 40 milljarða Ætla má að algjör stöðvun flugsamgangna í einn dag vegna verkfalls flugumferðarstjóra myndi kosta hagkerfið 1,5 milljarð króna samkvæmt útreikningum Samtaka atvinnulífsins. Þá myndi slík stöðvun í mánuð kosta það fjörutíu milljarða. Samtök atvinnulífsins segja stöðuna átakanlega. Innlent 16. desember 2023 17:36
Ólíklegt að allir komist heim fyrir jól Icelandair segir það ólíklegt að allir farþegar komist á áfangastað fyrir jól að öllu óbreyttu. Er það vegna verkfalls flugumferðastjóra sem hefur valdið umtalsverðri truflun og töfum á flugáætlun flugfélagsins. Innlent 15. desember 2023 18:35
Samruni Marels og JBT skynsamlegur ef skuldir aukast ekki verulega Greinendur bandaríska fjárfestingarbankans William Blair telja að Marel og John Bean Technologies (JBT) séu nú nær því að hefja samrunaviðræður og um möguleika á „verulegum“ samlegðaráhrifum ef samningar nást. Innherji 15. desember 2023 13:47
Samskiptaleysi olli því að farþegaþotan lenti á sömu braut Kerfisbundin mistök og skortur á samskiptum urðu til þess að farþegaþota Icelandair á leið frá Seattle lenti í október árið 2019 á flugbraut í Keflavík þar sem önnur flugvél var fyrir. Innlent 15. desember 2023 08:16
Miðla upplýsingum til mögulegra kaupenda á Bylgjunni og Vísi Stjórn Sýnar hefur falið Kviku banka að annast vinnu við að miðla afmörkuðum fjárhagsupplýsingum til mögulegra fjárfesta á rekstrareiningunni „Vefmiðlar og útvarp“ hjá félaginu. Þetta ákveður stjórnin að lokinni greiningu Kviku banka á rekstri og virði nýstofnaðrar rekstrareiningar. Viðskipti innlent 14. desember 2023 16:22
Rekstur Eimskips „mjög sterkur“ og metur félagið hærra en markaðurinn Uppgjör Eimskips fyrir þriðja ársfjórðung er enn frekari staðfesting á því að grunnrekstur skipafélagsins er „orðinn mjög sterkur“, segir í verðmati. Það skiptir miklu máli þar sem flutningsverð eru komin á eðlilegar slóðir. Þekkt er að flutningsverð voru afar há í Covid-19 heimsfaraldrinum og því var arðsemi fyrirtækja í þeim rekstri góð á þeim tíma. Innherji 14. desember 2023 16:15
Sannfærður um „verulega“ samlegð af mögulegri sameiningu Marel og JBT Uppfærð viljayfirlýsing um mögulegt tilboð John Bean Technologies (JBT) í allt hlutafé Marel, sem er hækkað um átta prósent frá fyrra boði, gerir ráð fyrir sambærilegu gengi og erlendir greinendur eru að verðmeta íslenska félagið á um þessar mundir. Forstjóri JBT segist sannfærður um að mögulegur samruni muni hafa í för með sér „verulega“ samlegð fyrir bæði félög sem hluthafar ættu að njóta góðs af en hlutabréfaverð Marels hefur rokið upp í fyrstu viðskiptum á markaði í morgun. Innherji 14. desember 2023 10:57
Bökkuðu bíl inn í Nova og stálu símum Innbrot var framið í verslun Nova í Lágmúla í Reykjavík í nótt. Bíl var bakkað inn í verslunina áður en innbrotsþjófarnir létu greipar sópa. Innlent 14. desember 2023 10:07
Hækka hugsanlegt tilboð um 22 milljarða króna Marel hefur borist uppfærð óskuldbindandi viljayfirlýsing frá John Bean Technologies Corporation, JBT, varðandi mögulegt tilboð í öll hlutabréf í félaginu. JBT lýsir yfir vilja til að greiða mögulega átta prósent meira fyrir hvern hlut í félaginu. Það gerir um 22 milljörðum króna meira en í upphaflegri yfirlýsingu. Viðskipti innlent 14. desember 2023 07:45
Guðjón hættir sem forstjóri í apríl Guðjón Auðunsson, forstjóri fasteignafélagsins Reita, hefur tilkynnt stjórn félagsins að hann muni láta af störfum sem forstjóri félagsins 1. apríl næstkomandi. Hættir hann í framhaldi af aðalfundi félagsins sem fram fer 6. mars. Viðskipti innlent 14. desember 2023 07:24
Önnur lota verkfallsaðgerða flugumferðarstjóra hafin Önnur lota verkfallsaðgerða flugumferðarstjóra hófst klukkan fjögur í nótt, en aðgerðirnar hafa áhrif á ferðir þúsunda ferðalanga. Aðgerðirnar nú standa líkt og á þriðjudag til klukkan 10. Innlent 14. desember 2023 06:36
„Þetta snýst bara um skynsemi“ Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair og stjórnarmaður í Samtökum atvinnulífsins, segir verkfall flugumferðarstjóra, sem hefst á ný í nótt, búa til aðstæður sem minni á lélega bíómynd. Innlent 13. desember 2023 20:45
Gengi Marel „sigið niður á við“ eftir mikinn sprett í kjölfar yfirtökutilboðs Gengi Marels hefur farið lækkandi að undanförnu í tiltölulega lítilli veltu eftir að hafa hækkað verulega eftir að óskuldbindandi tilboð barst frá erlendum keppinaut í félagið sem stjórn þess hafnaði. Forstöðumaður í eignastýringu segir að á meðan engin tíðindi berist af yfirtökumálum eða rekstri félagsins sé líklegt að verðþróun Marel ráðist að mestu af ytri aðstæðum og stemningu á markaði. Innherji 13. desember 2023 14:30
Verkfallið hefur áhrif á ríflega átta þúsund farþega Icelandair Boðaðar verkfallsaðgerðir Félags flugumferðarstjóra frá klukkan 04 í nótt til klukkan 10 í fyrramálið munu hafa áhrif á um sextíu flugferðir og 8.300 farþega Icelandair. Viðskipti innlent 13. desember 2023 13:10
Forstjóri rekinn og skoðað hvort slíta eigi samstarfi við Eimskip Skipafélag grænlensku landsstjórnarinnar, Royal Arctic Line, er í ólgusjó. Forstjóri félagsins undanfarin átta ár, Verner Hammeken, var látinn taka pokann sinn og landsstjórnin hefur ákveðið að endurskoða alla starfsemi félagsins, þar á meðal siglingasamstarf þess við Eimskip um Ísland. Viðskipti innlent 12. desember 2023 22:20
Telur að stjórnvöld ættu að stíga inn í deiluna Flugsamgöngur lömuðust þegar flugumferðarstjórar lögðu niður störf í morgun. Frekari verkfallsaðgerðir eru fyrirhugaðar á fimmtudag og í næstu viku. Fundi var slitið nú síðdegis án þess að samningar næðust. Forstjóri Play segir furðulegt að svo lítill hópur geti sett svo mikið úr skorðum og telur að stjórnvöld ættu að stíga inn í deiluna. Innlent 12. desember 2023 20:52
Fundi lauk án árangurs og verkfall á fimmtudag Samningafundi Félags flugumferðarstjóra og Samtaka atvinnulífsins, fyrir hönd Isavia, lauk um fimmleytið án árangurs. Næsti fundur í kjaradeilunni verður á fimmtudag klukkan tvö. Það er því ljóst að sú vinnustöðvun sem boðuð hefur verið næsta fimmtudag kemur til framkvæmda. Innlent 12. desember 2023 17:26
Á leiðinni til útlanda í boði Nóa Konfekts Í október blés Nóa Konfekt í lúðra og kynnti til sögunnar ferðaleik þar sem í vinning voru þrjú 400.000 kr. gjafabréf frá Icelandair. Lífið samstarf 12. desember 2023 15:04
Furðuleg og ósanngjörn staða Icelandair og Play skoða réttarstöðu sína vegna verkfallsaðgerða flugumferðastjóra sem hafa valdið félögunum miklu tjóni. Ferðaplön þúsunda farþega röskuðust þegar verkfallið skall á í nótt. Boðað hefur verið til fundar hjá ríkissáttasemjara klukkan þrjú í dag. Viðskipti innlent 12. desember 2023 12:53