Þýfi fyrir tugmilljónir króna skilað í réttar hendur Um sextíu til sjötíu innbrot hafa verið í húsnæði á höfuðborgarsvæðinu í hverjum mánuði síðan í sumar. Yfirlögregluþjónn segir að lögreglan upplýsi mörg málanna og hafi í þessari viku skilað þýfi fyrir tugmilljónir króna. Innlent 12. nóvember 2021 19:19
„Ömurlegar fréttir kæri félagi“ Sólveig Anna Jónsdóttir, fyrrverandi formaður Eflingar, hefur ritað Magnúsi M. Norðdahl, lögfræðingi ASÍ harðort bréf þar sem hún sakar hann um að standa með ofbeldismanni. Hún telur að með framgöngu sinni hafi Magnús gert Alþýðusambandið vanhæft til aðkomu að málum sem snerta kynbundið ofbeldi og áreiti. Innlent 12. nóvember 2021 15:57
Hafði í hótunum vopnaður öxi og klippum Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók í nótt mann í annarlegu ástandi í Hlíðahverfi en hann var vopnaður öxi og stórum klippum og hafði í hótunum við fólk. Maðurinn var vistaður í fangageymslu og verður tekin skýrsla af honum þegar bráir af honum. Innlent 12. nóvember 2021 06:10
„Við breytum ekki fortíðinni“ „Þetta kemur upp í hugann á mér á hverjum degi. En við breytum ekki fortíðinni og við getum ekkert gert í henni. Það sem gerðist, gerðist. Alveg sama hvað við reynum,“ segir Þór Sigurðsson, sem var dæmdur fyrir að hafa banað öðrum manni árið 2002. Innlent 12. nóvember 2021 06:00
Óku á öryggisslá við þinghúsið á flótta undan lögreglu Kona var flutt á bráðamóttöku Landspítala í nótt eftir að hún og samverkamaður freistuðu þess að komast undan lögreglu á vespu en enduðu á öryggisslá sem varnar óviðkomandi aðgangi við Alþingishúsið. Innlent 11. nóvember 2021 06:10
Konan fannst látin í sjónum Konan sem leitað var að í sjónum við Reynisfjöru fannst látin á sjötta tímanum í dag. Hún var kínverskur ferðamaður. Innlent 10. nóvember 2021 17:49
Ökumaður rafhlaupahjólsins látinn og hinn á gjörgæslu Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu og rannsóknarnefnd samgönguslysa hafa til rannsóknar hvort átt hafi verið við innsigli á rafhlaupahjóli og vespu, sem rákust á í morgun, svo hægt væri að aka hraðar á þeim. Innlent 10. nóvember 2021 15:52
Skoða hvort átt hafi verið við hjólin Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu mun við rannsókn sína á alvarlegu slysi við Sæbraut í morgun skoða hvort átt hafi verið við farartækin að því leyti að hægt væri að aka um á þeim yfir leyfilegum hámarkshraða. Innlent 10. nóvember 2021 13:03
Þrjú innbrot og árás á dyravörð Lögreglu bárust í gær þrjár tilkynningar vegna innbrota. Í tveimur tilvikum var um að ræða innbrot á heimili en í einu innbrot í bifreið. Innbrotin áttu sér stað í þremur póstnúmerum; 103, 105 og 108. Innlent 10. nóvember 2021 06:26
Drengurinn er fundinn heill á húfi Tíu ára gamall drengur sem lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsti eftir fyrr í kvöld er fundinn heill á húfi. Innlent 9. nóvember 2021 19:21
Fordæma staðhæfingar Þorbjargar og vilja rannsókn Landssamband lögreglumanna vill að ríkissaksóknari rannsaki staðhæfingar Þorbjargar Ingu Jónsdóttur lögmanns, sem sagði á ráðstefnu á Hólum engan vafa leika á því að kerfið réttarkerfið færi í manngreiningarálit eftir þjóðfélagsstöðu. Innlent 9. nóvember 2021 07:30
Varð fyrir hellusteini sem var kastað í gegnum rúðu veitingastaðar Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu var kölluð til í miðborginni um klukkan 21.30 í gærkvöldi, þar sem hellusteini hafði verið kastað inn um rúðu á veitingastað. Steinninn lenti í enni viðskiptavinar staðarins, sem blæddi mikið. Innlent 9. nóvember 2021 06:32
Hafi náð í haglabyssu þegar hann fékk ekki að upplifa unglingsárin aftur Lögreglan á Austurlandi rannsakar nú mál þar sem grunur er um að dvalargestum í sumarhúsahverfinu Einarsstöðum utan við Egilsstaði hafi verið hótað með skotvopni. Innlent 8. nóvember 2021 17:04
Hraðamyndavélin á Sæbraut gómað tæplega fimm þúsund á árinu Hraðamyndavélin á Sæbraut í Reykjavík hefur náð hraðakstri alls tæplega 4.700 ökumanna á mynd frá ársbyrjun og til 1. nóvember 2021. Af þeim fjórum hraðamyndavélum sem umferðardeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu starfrækir er hraðamyndavélin á Sæbraut sú sem leiðir til langflestra sekta til ökumanna. Innlent 8. nóvember 2021 08:01
Heimilisófriður reyndust kappsamir tölvuleikjaspilarar Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu sinnti nokkuð fjölbreyttum verkefnum í nótt en hún var meðal annars kölluð til vegna slagsmála, heimilisófriðar og vinnupalls sem féll á bifreið í miðborginni. Innlent 8. nóvember 2021 06:24
Lögregla rannsakar hótun með byssu á Austurlandi Lögreglan á austurlandi er með mál til rannsóknar eftir að tilkynning barst um að gestum í sumarhúsi á Austurlandi hafi verið hótað með skotvopni, að því er fram kemur í tilkynningu frá embættinu. Innlent 7. nóvember 2021 22:17
Níu ökumenn stöðvaðir í nótt grunaðir um akstur undir áhrifum Níu ökumenn voru stöðvaðir af lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í nótt grunaðir um akstur undir áhrifum. Þetta kemur fram í dagbókarfærslu lögreglu. Innlent 7. nóvember 2021 10:48
Klemmdist milli tveggja bifreiða Eftir annasama nótt var heldur rólegra á dagvaktinni í dag, segir í tilkynningu frá lögreglu. Dagurinn hófst klukkan 5 í morgun en þá var lögregla köllu til þar sem gestir voru í annarlegu ástandi á gistiheimili í miðborginni. Innlent 6. nóvember 2021 19:17
Sjö líkamsárásir tilkynntar til lögreglu síðasta hálfa sólarhringinn Sjö líkamsárásir voru tilkynntar til lögreglu síðasta hálfa sólarhringinn. Talsvert minna var um að vera í miðbænum í gærkvöldi en síðustu helgar en þó nokkur erill hjá lögreglu. Innlent 6. nóvember 2021 07:11
Maðurinn sem lýst var eftir fannst látinn í Ungverjalandi Maðurinn sem lýst var eftir á fimmtudag fannst látinn í Búdapest í Ungverjalandi, en hann var búsettur ytra. Innlent 5. nóvember 2021 22:44
Stunginn í kjölfar slagsmála Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst tilkynning um slagsmál í miðborginni í gærkvöldi eða nótt. Þegar lögregla kom á vettvang voru allir farnir en nokkru seinna var tilkynnt um einstakling sem hafði verið stunginn. Innlent 5. nóvember 2021 06:31
Lögreglan leitar Gunnars Svans Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Gunnari Svani Steindórssyni, 43 ára karlmanni. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni. Innlent 4. nóvember 2021 16:25
Endaði eftirförina með því að renna í hlað á lögreglustöð Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu veitti ökumanni eftirför í nótt þar sem hann stöðvaði ekki bifreið sína þrátt fyrir ábendingar lögreglu. Eftirförin hófst í Garðabæ en endaði óvænt við lögreglustöðina á Dalveginum, þar sem ökumaðurinn lagði loks bifreið sinni. Innlent 4. nóvember 2021 06:38
„Algjör tilviljun að þessir tveir menn rákust á hvorn annan“ Þann 18. febrúar 2002 fannst karlmaður liggjandi á gangstétt í blóði sínu við Víðimel í Vesturbæ Reykjavíkur. Kona sem gekk fram á manninn taldi hann meðvitundarlausan og kallaði til lögreglu en þegar lögreglumenn komu á staðinn kom í ljós að maðurinn var látinn. Innlent 4. nóvember 2021 06:00
Sjö tilkynntu byrlun á höfuðborgarsvæðinu um helgina Sjö voru fluttir á slysadeild Landspítala um helgina vegna gruns um að þeim hafi verið byrlun ólyfjan á skemmtistöðum í miðborginni. Málin eru öll til skoðunar hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Innlent 3. nóvember 2021 10:50
Mál gegn meintum byssumanni fellt niður Mál gegn manninum sem sat í gæsluvarðhaldi grunaður um að hafa skotið úr riffli á bifreið borgarstjóra við heimili hans og á skrifstofur Samfylkingarinnar hefur verið fellt niður hjá héraðssaksóknara. Innlent 3. nóvember 2021 07:06
Að minnsta kosti sjö fluttir á bráðamóttöku í gærkvöldi og nótt vegna slysa Tveir menn voru vistaðir í fangageymslum lögreglunnar á höfuðborgarsvæðin í gær sökum ástands. Annar var handtekinn í Hlíðahverfi og þar sem lögregla gat ekki komist að því hvar hann býr var hann fluttur á lögreglustöð. Innlent 3. nóvember 2021 06:27
Eigandi rakti símann en þjófurinn þóttist eiga hann Um klukkan 17 í gær barst lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu tilkynning um að farsíma hefði verið stolið í verslunarmiðstöð í Háaleitis- og Bústaðahverfi. Þremur tímum síðar hafði tilkynnandi aftur samband og hafði þá staðsett símann í Hlíðahverfinu. Innlent 3. nóvember 2021 06:07
Almenningur tapar milljónum í hverjum mánuði vegna svikapósta Netglæpamenn ná milljónum af almennum borgurum í hverjum mánuði með svikapóstum að sögn sviðsstjóra hjá Fjarskiptastofu. Nú standi yfir herferðir þar sem glæpamenn nýta sér vörumerki Póstsins og DHL. Viðskipti innlent 2. nóvember 2021 18:31
Mega skoða síma manns sem grunaður er um að hafa sent fjölmörg hótunarskilaboð Lögreglan á Suðurnesjum hefur fengið heimild til þess að fara yfir farsímagögn manns sem grunaður er um líkamsárás og umsáturseinelti. Þá telur lögregla að gögnin geti nýst í öðru sakamáli gegn manninum. Innlent 2. nóvember 2021 14:06