
Kominn tími til að rannsaka innihaldsefni íslenskra bláberja
Allt of lítið er vitað um íslensk ber til að hafa traustar upplýsingar um hollustu þeirra.
Girnilegar uppskriftir úr öllum áttum og fréttir tengdar mat.
Allt of lítið er vitað um íslensk ber til að hafa traustar upplýsingar um hollustu þeirra.
Guðríður Gyða Eyjólfsdóttir sveppafræðingur kynnir í dag á Amtsbókasafninu á Akureyri hvernig eigi að greina og safna matsveppum, verka þá, frysta og þurrka.
Sæþór H. Þorbergsson, veitingamaður í Stykkishólmi er farin að undribúa jólin með því að verka og gera jólaskinkuna fyrir jólin 2019 klára.
Opinberar stofnanir og stórfyrirtæki eru í auknum mæli að ráða til sín færustu kokka landsins. Eftirsótt er að komast í þessar stöður vegna þægilegs vinnutíma og góðra launa. Bitnar það á hótelum og stórum veitingastöðum.
Veitingastaðnum Dill við Hverfisgötu hefur verið lokað.
Ég held að við séum bara að borða of mikið yfir höfuð. Við borðum mikinn sykur, mikið ger og mikið hveiti, mikið skyndibitafæði. Við, því miður, erum að elta Ameríku of mikið, segir Birna G Ásbjörnsdóttir, doktorsnemi í heilbrigðisvísindum við HÍ.
Forsvarsmenn Domino's hér á landi hafa ákveðið að nýta sölurétt sinn á 4,7 prósent hluti í Pizza-Pizza, sem á og rekur Domino's hér á landi, til breska móðurfélagsins Domino's Pizza Group,
Hjónin Hlal Jarah og Iwona Sochacka opnuðu nýlega sýrlenska veitingastaðinn Mandi í Skeifunni - Faxafeni 9. Nýi staðurinn er útibú frá Mandi við Ingólfstorg sem þau hafa rekið í 7 ár.
Það er hægðarleikur að finna fullt af ætilegum mat í ruslatunnum Reykjavíkur.
Uppeldi barna er mikil áskorun fyrir alla sem að því verkefni koma og er um margt að hugsa í því samhengi.
Dóra Svavarsdóttir matreiðslumeistari hefur látið sig matarsóun varða um árabil og hefur sem dæmi gert fjölda myndskeiða og haldið matreiðslunámskeið þar sem hún fer yfir ýmis atriði til að koma í veg fyrir matarsóun.
Gríðarlegu magni af matvælum er sóað á hverjum degi. Gert er ráð fyrir að Reykvíkingar hendi mat að andvirði 4,5 milljörðum árlega. Á þessu ári verður leitað til heimila og fyrirtækja til að kanna magn matarúrgangs. Hægt er að koma í veg fyrir matarsóun með góðri skipulagningu ásamt því að fylgjast betur með hvað er til í ísskápnum.
Heilsa ehf. hefur, í samráði við matvælaeftirlit Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur, innkallað vegan hrískökur.
Hópur aðgerðasinna mótmælti neyslu dýraafurða í Krónunni á Granda í dag.
Meistarakokkurinn Maggi opnar nýjan veitingastað við Laugaveg.
Kanadíski myndbandabloggarinn Derek Gerard er heilt yfir ánægður með Íslandsferð sína, þrátt fyrir að þykja lítið til harðfisks, verðlagsins og myglaðs osts í Bónus koma.
Mörg þúsund manns heimsóttu matarmarkaðinn í Laugardalnum um helgina. Um er að ræða verkefni sem valið var af íbúum hverfisins í kosningum. Loka þurfti markaðinum snemma á laugardag þar sem maturinn kláraðist.
Skiptum á þrotabúi Borgarhorns ehf. er lokið en félagið var á sínum tíma rekstraraðili Jamie's Italian á Íslandi.
Reykjavík Street Food stendur fyrir spennandi matarmarkaði í Laugardalnum tvær næstu helgarnar í júlí, í samstarfi við Reykjavíkurborg.
Menningar- íþrótta- og tómstundaráðs Reykjavíkur lagðist gegn því að pylsuvagn risi fyrir utan Sundhöll Reykjavíkur. Annar þeirra sem hugðist reisa vagninn furðar sig á ákvörðun ráðsins og segir hana hljóta að vera á misskilningi byggða.
Menningar-, íþrótta- og tómstundaráð Reykjavíkur leggst gegn því að komið verði upp pylsuvagni við Sundhöll Reykjavíkur við Barónsstíg.
Framkvæmdastjóri Ali ákvað að hækka vöruverð um 4,8% og forstjóri SS ákvað að hækka verð 23 af rúmlega 200 vöruliðum.
Grænmeti sem selt er í verslunum á ekki roð í heimaræktað grænmeti að sögn forskrappa matjurtagarðaverkefnis Akureyrarbæjar. Um 250 einstaklingar rækta grænmeti af miklum móð rétt innan við Akureyri.
Veitingastaðakeðjan Arby's hefur lengi heitið því að hætta aldrei að bjóða upp á kjöt, sama hvað tískustraumum í grænkerafæði líður.
Pálmi Jónsson keypti 89 prósent í Emmessís í lok apríl og selur nú meirihluta í fyrirtækinu. Kaupandinn á og rekur heildsöluna Nathan & Olsen og Ekruna. Stjórnendur 1912 sjá samlegðartækifæri í kaupunum.
Hjónin Kári Þorsteinsson og Sólveig Bjarnadóttir opnuðu nýlega veitingastað á Egilsstöðum í elsta íbúðarhúsi bæjarins, Nielsenshúsi. Þau lýsa því sem langþráðum draumi að vera kominn aftur í sveitina en segja taktinn á Egilsstöðum allt öðru vísi en í Reykjavík – og hvað þá í Kaupmannahöfn.
Þurrvörur, brauð, kex, sælgæti og snakk hækkaði töluvert í verði í flestum verslunum á átta mánaða tímabili.
„Að vera án kjöts er gott fyrir plánetuna og dýrin sem við deilum henni með,“ segir Hanks í myndbandi sem eiginkona hans birti á Twitter.
Formaður Bændasamtaka Íslands segir niðurstöður Matvælastofnunar um sjúkdómsvaldandi bakteríur í íslensku lamba- og nautakjöti koma á óvart. Rannsaka þurfi málin betur og skerpa á fyrirbyggjandi aðgerðum í sláturhúsum og kjötvinnslum. Skoðunin hafi hins vegar leitt í ljós sterka stöðu svína- og kjúklingakjöts.
Eiturmyndandi E. Coli-baktería fannst í fjölmörgum sýnum af íslensku kjöti í fyrra. Sóttvarnalæknir segir nú ljóst að sjúkdómsmyndandi bakteríur finnist í íslenskri kjötframleiðslu líkt og þeirri erlendu.