United náði efsta sætinu þrátt fyrir jafntefli Danska liðið Álaborg gerði sér lítið fyrir og nældi sér í stig í á Old Trafford í Meistaradeild Evrópu í kvöld. Þrátt fyrir það varð Manchester United í efsta sæti riðilsins. Fótbolti 10. desember 2008 21:38
Meistaradeildin: Baráttan um toppsætið Í kvöld ræðst það hvaða átta lið það verða sem tryggja sér efsta sæti síns riðils og forðast með því aðra sigurvegara riðlakeppninnar í 16-liða úrslitunum. Fótbolti 10. desember 2008 19:00
Meistaradeildin: Baráttan um þriðja sætið Nú þegar er ljóst hvaða sextán lið komast áfram í næstu umferð Meistaradeildar Evrópu en enn á eftir að útkljá hvaða átta lið það verða sem vinna sér þátttökurétt í 32-liða úrslitum UEFA-bikarkeppninnar. Fótbolti 10. desember 2008 18:45
Öll ensku og spænsku liðin áfram Öll átta liðin frá Englandi og Spáni sem tóku þátt í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu komust áfram í sextán liða úrslit keppninnar. Er þetta í fyrsta skipti sem það gerist. Fótbolti 10. desember 2008 15:00
Ekkert sæti laust í kvöld Riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu lýkur í kvöld. Spennan er þó í lágmarki þar sem þegar er ljóst hvaða lið eru komin áfram í sextán liða úrslitin. Aðeins er óljóst um sigurvegara í einhverjum riðlum. Fótbolti 10. desember 2008 09:45
Mourinho: Eigum skilið það versta Jose Mourinho, þjálfari Inter, segir að hans menn eigi ekkert betra skilið en að mæta Barcelona eða Manchester United í næstu umferð Meistaradeildarinnar. Fótbolti 9. desember 2008 22:45
Carragher: Gott kvöld fyrir Liverpool Liverpool tryggði sér toppsæti D-riðils með sigri á PSV Eindhoven í kvöld. Jamie Carragher, varnarmaður Liverpool, segir að kvöldið hafi verið frábært fyrir félagið. Fótbolti 9. desember 2008 22:15
Chelsea áfram - Liverpool tók efsta sætið Í kvöld lauk keppni í fjórum riðlum í Meistaradeild Evrópu. Didier Drogba kom inn sem varamaður og tryggði Chelsea 2-1 sigur á rúmenska liðinu Cluj í A-riðli. Enska liðið var þó ekki sannfærandi í leiknum. Fótbolti 9. desember 2008 21:29
Chelsea yfir gegn Cluj í hálfleik Chelsea er á leið áfram í Meistaradeild Evrópu eins og staðan er í hálfleik í leikjum kvöldsins. Chelsea er að vinna Cluj 1-0 með marki frá Salomon Kalou þegar um fimm mínútur voru til hálfleiks. Fótbolti 9. desember 2008 20:26
Eiður á bekknum í kvöld - Byrjar gegn Real Madrid? Barcelona hvílir marga lykilmenn sína í leiknum gegn Shaktar Donetsk í Meistaradeildinni í kvöld. Börsungar hafa þegar tryggt sér sigur í riðlinum. Fótbolti 9. desember 2008 19:09
Mikil meiðsli í herbúðum Cluj Rúmenska spútnikliðið Cluj frá Transilvaníu hefur heldur misst flugið eftir ótrúlega byrjun í Meistaradeildinni í haust. Fótbolti 8. desember 2008 11:32
Marseille kært Knattspyrnusamband Evrópu hefur kært franska félagið Marseille eftir að stuðningsmenn liðsins köstuðu kveikjara í Steven Gerrard fyrirliða Liverpool í viðureign liðanna í vikunni. Fótbolti 28. nóvember 2008 14:04
Eiður og Xavi sögðu mér að taka vítið Framherjinn ungi Bojan Krkic hjá Barcelona hafði heppnina með sér í gær þegar hann skoraði loksins mark úr vítaspyrnu í 5-2 sigri liðsins og Sporting í meistaradeildinni. Fótbolti 27. nóvember 2008 10:58
Atvik á Anfield til rannsóknar Knattspyrnusamband Evrópu ætlar að taka til rannsóknar atvik sem átti sér stað í leik Liverpool og Marseille í gærkvöld þar sem Steven Gerrard virtist verða fyrir aðskotahlut sem kom fljúgandi inn á völlinn. Fótbolti 27. nóvember 2008 10:52
Inter áfram þrátt fyrir tap Inter Milan tryggði sér í kvöld sæti í 16-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu jafnvel þótt að liðið hafi tapað fyrir Panathinaikos á heimavelli, 1-0. Fótbolti 26. nóvember 2008 22:53
Liverpool áfram - Inter tapaði Liverpool tryggði sér í kvöld sæti í 16-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu með 1-0 sigri á Marseille í kvöld. Inter tapaði hins vegar á heimavelli fyrir Panathinaikos, 1-0. Fótbolti 26. nóvember 2008 21:44
Rooney baðst afsökunar á leikaraskap Sir Alex Ferguson segir að Wayne Rooney hafi beðið sig og leikmenn Villarreal afsökunar á því að hafa látið sig falla í leik Manchester United við spænska liðið í gær. Fótbolti 26. nóvember 2008 10:28
Fabregas: Frábært að vera komnir áfram Fyrirliðatíð Cesc Fabregas hjá Arsenal hófst með 1-0 sigri á Dynamo Kiev í kvöld. Þessi úrslit þýða að Arsenal er komið áfram í 16-liða úrslit Meistaradeildarinnar. Fótbolti 25. nóvember 2008 22:35
Ferguson: Áttum meira skilið Sir Alex Ferguson, stjóri Manchester United, var sáttur við frammistöðu sinna manna í 0-0 jafnteflinu gegn Villareal í kvöld. Bæði lið eru komin áfram í 16-liða úrslitin eftir þessi úrslit. Fótbolti 25. nóvember 2008 22:20
Bendtner hetja Arsenal - United gerði jafntefli Nicklas Bendtner var hetja Arsenal gegn Dynamo Kiev á Emirates vellinum í kvöld. Hann skoraði sigurmarkið á 87. mínútu eftir að hafa komið inn sem varamaður á bleiku skónum sínum. Fótbolti 25. nóvember 2008 21:30
Markalaust á Emirates í hálfleik Nú er hálfleikur í leikjum kvöldsins í Meistaradeild Evrópu. Leikur Arsenal og Dynamo Kiev er í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport en þar er markalaust. Fótbolti 25. nóvember 2008 20:30
Markalaust hjá Zenit og Juventus Fyrsta leik kvöldsins í Meistaradeild Evrópu er lokið. Zenit frá Pétursborg og Juventus gerðu markalaust jafntefli í Rússlandi. Fótbolti 25. nóvember 2008 19:18
Ronaldo í byrjunarliðinu Cristiano Ronaldo er í byrjunarliði Manchester United sem mætir Villareal í Meistaradeildinni í kvöld. Ronaldo fór meiddur af velli gegn Aston Villa á laugardaginn og var talið líklegt að hann yrði hvíldur í kvöld. Fótbolti 25. nóvember 2008 18:59
Gallas byrjar hjá Arsenal William Gallas er í byrjunarliði Arsenal sem mætir Dynamo Kiev í Meistaradeildinni klukkan 19:45. Cesc Fabregas mun þó leiða liðið út á völlinn sem fyrirliði en hann er næst yngsti fyrirliði í sögu Arsenal. Fótbolti 25. nóvember 2008 18:48
Ferguson: Real talar við leikmenn okkar daglega Sir Alex Ferguson fór þess á leit við blaðamenn í dag að þeir einbeittu sér að leik Villarreal og Manchester United í Meistaradeildinni. Nokkrir blaðamenn höfðu þó meiri áhuga á að vita af meintum áhuga Real Madrid á framherjanum Carlos Tevez. Enski boltinn 25. nóvember 2008 12:48
Meistaradeildin fer í loftið 17:30 Átta leikir fara fram í Meistaradeild Evrópu í knattspyrnu og verður helmingur þeirra sýndur í beinni útsendingu á rásum Stöðvar 2 Sport. Fótbolti 25. nóvember 2008 10:14
Rossi mætir gömlu félögunum Patrice Evra, varnarmaður Manchester United, segir að það komi sér alls ekki á óvart hve vel hefur gengið hjá Guiseppe Rossi í liði Villareal á tímabilinu. Rossi yfirgaf United á síðasta ári en mætir sínum fyrrum félögum í Meistaradeildinni annað kvöld. Fótbolti 24. nóvember 2008 20:00
Ronaldo fór með United til Spánar Cristiano Ronaldo verður í leikmannahópi Manchester United fyrir leikinn gegn Villarreal í Meistaradeildinni á morgun þrátt fyrir að hafa farið meiddur af velli í deildarleik um helgina. Fótbolti 24. nóvember 2008 15:58
Kristinn dæmir í Úkraínu Kristinn Jakobsson mun dæma leik Shakhtar Donetsk og Basel í Úkraínu á miðvikudaginn kemur og verður það í fyrsta skipti sem íslenskur dómari dæmir í riðlakeppni Meistaradeildarinnar. Fótbolti 24. nóvember 2008 12:38
Áfrýjun Atletico hafnað en refsing milduð Atletico Madrid þarf að leika næsta heimaleik sinn í Meistaradeild Evrópu fyrir luktum dyrum og greiða 65 þúsund pund í sekt vegna ólæta stuðningsmanna félagsins á leik gegn Marseille í Meistaradeildinni í síðasta mánuði. Fótbolti 20. nóvember 2008 15:45