NBA

NBA

Fréttir úr körfuboltadeild hinna bestu.

Fréttamynd

Sonics formlega flutt til Oklahoma

Eftir 41 ár í NBA á Seattle-borg ekki lengur lið í deildinni. Í gærkvöld náðist samkomulag um að flytja liðið frá borginni til Oklahoma eftir langar og erfiðar deilur.

Körfubolti
Fréttamynd

Del Negro þjálfar Bulls

Forráðamenn Chicago Bulls gengu í vikunni frá samningi við Vinnie del Negro um að taka við þjálfun liðsins. Del Negro hefur aldrei þjálfað áður en starfaði sem aðstoðar framkvæmdastjóri Phoenix Suns.

Körfubolti
Fréttamynd

Boston einum sigri frá titlinum

Boston gerði sér lítið fyrir í nótt og vann fjórða leikinn í úrslitarimmu liðsins gegn Los Angeles Lakers í nótt. Boston er því komið með 3-1 forystu og þarf því aðeins einn sigur til að tryggja sér meistaratitilinn.

Körfubolti
Fréttamynd

Kvöld með eiginkonunni fyrir Celtics-miða

Fárið í kring um úrslitaeinvígið í NBA deildinni virðist nú komið á suðumark. Stuðningsmaður Boston liðsins hefur þannig boðið hverjum þeim sem útvegar honum aðgöngumiða á Boston-leik að eiga kvöld með eiginkonu sinni.

Körfubolti
Fréttamynd

Tekst Lakers að jafna metin í nótt?

Fjórði leikur LA Lakers og Boston Celtics í lokaúrslitum NBA fer fram í Los Angeles klukkan eitt eftir miðnætti í nótt. Lakers-liðið getur jafnað metin í 2-2 í einvíginu með sigri í nótt.

Körfubolti
Fréttamynd

Vujacic var lykillinn

LA Lakers náði í nótt að minnka muninn í 2-1 í úrslitaeinvígi sínu við Boston í NBA deildinni með 87-81 sigri á heimavelli sínum. Rétt eins og í öðrum leiknum var það ólíkleg hetja sem steig á svið og réði úrslitum.

Körfubolti
Fréttamynd

Curry tekur við Detroit

Michael Curry er tekinn við sem aðalþjálfari Detroit Pistons í NBA-deildinni. Hann tekur við af Flip Saunders sem rekinn var eftir að Detroit beið lægri hlut fyrir Boston í úrslitakeppninni.

Körfubolti
Fréttamynd

Boston komið í 2-0

Nú er ljóst að baráttan um meistaratitilinn í NBA-deildinni mun ráðast á heimavelli Boston Celtics þó svo að LA Lakers vinni alla heimaleiki sína í seríunni.

Körfubolti
Fréttamynd

Porter tekur við Phoenix Suns

Terry Porter verður næsti þjálfari Phoenix Suns í NBA deildinni. ESPN greindi frá þessu í kvöld. Porter var aðalþjálfari Milwaukee Bucks á árunum 2003-05 en hefur verið aðstoðarþjálfari Detroit síðan.

Körfubolti
Fréttamynd

Collins hættur í viðræðum við Chicago Bulls

Doug Collins hefur tilkynnt að hann muni ekki taka að sér að þjálfa Chicago Bulls í NBA deildinni eins og til stóð. Samingaviðræður milli hans og stjórnar félagsins hafa ekki gengið sem skildi og því hefur Collins bakkað út úr viðræðunum.

Körfubolti
Fréttamynd

Pierce neitar að fara í myndatöku

Paul Pierce var hetja Boston í gærkvöldi þegar lið hans vann fyrsta leikinn gegn LA Lakers í úrslitaeinvígi NBA deildarinnar. Pierce meiddist á hné í þriðja leikhlutanum og þurfti að fara til búingsherbergja, en sneri aftur og átti stóran þátt í sigri sinna manna.

Körfubolti
Fréttamynd

Úrslitaeinvígið í NBA hefst í nótt

Í nótt klukkan eitt eftir miðnætti hefst draumaúrslitaeinvígi Boston Celtics og LA Lakers í NBA deildinni. Þessi fornfrægu lið hafa ekki mæst í úrslitunum í tvo áratugi, eða síðan Larry Bird og Magic Johnson fóru fyrir liðunum á sínum tíma.

Körfubolti
Fréttamynd

Saunders rekinn frá Pistons

Forráðamenn Detroit Pistons tilkynntu í dag að þjálfaranum Flip Saunders hefði verið sagt upp störfum eftir þriggja ára setu í þjálfarastól liðsins. Saunders tók við Pistons af Larry Brown árið 2005 eftir að Brown hafði tvisvar komið liðinu í lokaúrslitin.

Körfubolti
Fréttamynd

Allen að glíma við meiðsli

Fyrsti leikurinn í úrslitaeinvíginu um NBA-meistaratitilinn verður aðfaranótt föstudags en Boston Celtics og LA Lakers eigast við. Óvíst er með þátttöku bakvarðarins Tony Allen hjá Boston í úrslitarimmunni.

Körfubolti
Fréttamynd

Boston og Lakers leika til úrslita

Það verða gömlu stórveldin Boston Celtics og LA Lakers sem leika til úrslita um NBA meistaratitilinn. Þetta varð ljóst í nótt eftir að Boston skellti Detroit 89-81 á útivelli í sjötta leik liðanna í úrslitum Austurdeildar og vann einvígið því 4-2.

Körfubolti
Fréttamynd

Tekst Boston að komast í úrslitin?

Boston Celtics getur í kvöld tryggt sér sæti í lokaúrslitum NBA deildarinnar með sigri í Detroit í sjötta leik liðanna í úrslitum Austurdeildarinnar. Leikurinn verður sýndur beint klukkan 00:30 á Stöð 2 Sport.

Körfubolti
Fréttamynd

25,000 dollara ummæli Rasheed Wallace

Rasheed Wallace, leikmaður Detroit Pistons, er nú aðeins einni tæknivillu frá því að verða dæmdur í eins leiks bann með liði sínu í úrslitakeppni. Hann fékk sína sjöttu tæknivillu í úrslitakeppninni í fyrrakvöld fyrir að rausa í dómurum.

Körfubolti
Fréttamynd

LA Lakers í úrslitin

Los Angeles Lakers tryggði sér í nótt sæti í úrslitaeinvígi NBA deildarinnar með 100-92 sigri á meisturum San Antonio Spurs í fimmta leik liðanna í úrslitum Vesturdeildar. Lakers vann einvígið örugglega 4-1 og mætir Boston eða Detroit í lokaúrslitum.

Körfubolti
Fréttamynd

Scott að framlengja við Hornets

Byron Scott hefur samþykkt að framlengja samning sinn við spútniklið New Orleans Hornets í NBA deildinni. Scott var kjörinn þjálfari ársins í NBA í vetur og undir hans stjórn var Hornets-liðið aðeins einum leik frá því að komast í úrslitaeinvígi Vesturdeildarinnar.

Körfubolti
Fréttamynd

NBA beitir sektum fyrir leikaraskap

Á fulltrúaþingi NBA deildarinnar í Orlando á dögunum var ákveðið að á næsta keppnistímabili verði leikmenn í deildinni sektaðir ef þeir gerast sekir um leikaraskap.

Körfubolti