Ron Artest: Mér að kenna ef Lakers-liðið ver ekki titilinn Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 22. september 2009 23:00 Ron Artest sést reyna að dekka Kobe Bryant en þeir leika saman hjá Los Angeles Lakers í vetur. Mynd/AFP
Körfuboltamaðurinn Ron Artest er þekktur fyrir sínar yfirlýsingar og hann er óhræddur við að setja pressu á sjálfan sig. Artest sem samdi við NBA-meistara Los Angeles Lakers í sumar, mun spila við hlið Kobe Bryant í vetur og sættir sig við ekkert annað en meistaratitil næsta sumar. „Stuðningsmenn Lakers eiga að kenna mér um það ef við vinnum ekki titilinn í vetur. Liðið vann á síðasta ári og síðan hef ég bæst í hópinn. Það búast allir við að við verjum titilinn og allir í Los Angeles liðinu bíða eftir að fá annan meistarahring," sagði þessi 29 ára framherji. Artest er þekktur fyrir frábæran varnarleik en hann er 201 sentímetrar á hæð og getur dekkað fljótustu bakverði deildarinnar eins og Kobe Bryant. „Ef við vinnum ekki þá geta allir bent á mig og þeir ættu líka að kasta í mig tómötum og öllu tilheyrandi," sagði Artest meira í gríni en alvöru. Artest skrifaði undir fimm ára og 33 milljón dollara samning við Lakers 8.júlí síðastliðinn en hann kemur í stað Trevor Ariza sem samdi í staðinn við hans gamla lið Houston Rockets. Ron Artest hefur spilaði í NBA-deildinni frá 1999 með liðum Chicago Bulls (1999-2002), Indiana Pacers (2002-2006), Sacramento Kings (2006-2008) og Houston Rockets (2008-2009) og er með 16,1 stig, 5,1 frákast, 3,2 stoðsendingar og 2,1 stolna bolta að meðaltali í 604 leikjum.
NBA Mest lesið Franco Baresi er látinn Fótbolti FIFA heldur settri stefnu Fótbolti Palmer steinsvaf meðan enska landsliðið spilaði á HM Fótbolti Lítið af möguleikum fyrir Liverpool í vörninni Fótbolti Mun það sama gerast við Anderson og gerðist við Philips hjá City? Fótbolti Concacaf mótmælir Fifa en sniðgengur ekki Fótbolti Er ekki bjartsýnn fyrir framtíð Newcastle Fótbolti Uppgjörið: Zrinjski Mostar - Valur 2-2 (2-3) | Frábær Frederik og trylltur Tryggvi Fótbolti Stones skrifar undir hjá ítölsku meisturunum Fótbolti Leikmenn sem gerast sekir um mismunun fá tíu leikja bann Fótbolti Fleiri fréttir LeBron framleiðir „Last Dance“ heimildarþætti Sakar leikmann um að halda framhjá sér með mörgum leikmönnum Milka farinn frá Njarðvík Birmingham stigahæstur í þriðja sigri strákanna KR heldur áfram að sækja leikmenn frá Lettlandi Martin áfram í Berlín Nýr leikmaður Tindastóls féll á lyfjaprófi þegar hann spilaði í G-deild NBA Keflvíkingar semja við Litáa og Stólarnir fá Bandaríkjamann Íslenska liðið með stórsigur á EM Vann þriggja stiga skotkeppni WNBA og skoraði á Curry Mirza Bulic yfirgefur Keflavík og semur við Grindavík Sonur Kristófers og Guðrúnar er bæði Acox og Guðjohnsen Trump kallar LeBron James kynþáttahatara Byrjuðu á nítján stiga sigri á Portúgölum LeBron hélt að hann væri búinn að spila sinn síðasta leik Lebron fer til Fíladelfíu Stephen Curry fær sögulega einkasýningu í heiðurshöllinni Hafa náð í leikmenn frá fjórum bestu liðunum KR sækir sænskan landsliðsmann Tékki til Njarðvíkur Miami Heat birti hlekk á blaðamannafund LeBron James fyrir mistök Semple bætist við stjörnum prýtt lið Álftaness Sigurinn á Bretum ýtti íslensku strákunum upp heimslista körfuboltans Strákarnir fengu silfur á EM Sigur á Svíum og sæti í A-deild tryggt LeBron James ekki enn tilbúinn að gefa upp sitt næsta lið Reyndur sænskur sonur til Ármenninga Íslensku strákarnir í undanúrslit Ísland á tvo stigahæstu leikmenn mótsins Rekinn fyrir að senda körfuboltakonu rasísk skilaboð Sjá meira