Ætlar sér að vinna titil Chris Webber mun spila með Detroit Pistons í NBA-deildinni í vetur. Nú er að sjá hvort hann geti hjálpað Pistons á svipaðan hátt og Rasheed Wallace gerði á meistaraárinu 2004. Körfubolti 17. janúar 2007 08:30
Anthony körfuboltamaður ársins í Bandaríkjunum Framherjinn Carmelo Anthony hjá Denver Nuggets var í dag kjörinn körfuboltamaður ársins í Bandaríkjunum fyrir frammistöðu sína með landsliðinu á HM í körfubolta sem fram fór í Japan í fyrra. Þetta þykja mörgum nokkuð kaldhæðnislegar fréttir í ljósi þess að hann situr nú af sér 15 leikja bann í NBA fyrir slagsmál. Körfubolti 16. janúar 2007 18:13
LA Lakers lagði Miami Fjöldi leikja fór fram í NBA deildinni á degi Martin Luther King í Bandaríkjunum. Kobe Bryant og félagar í LA Lakers stöðvuðu sigurgöngu Miami með 124-118 sigri í framlengdum leik í Staples Center í Los Angeles. Körfubolti 16. janúar 2007 13:19
Dallas með sigurkörfu á síðustu sekúndu Josh Howard tryggði Dallas sigur á Toronto í NBA-deildinni í nótt með því að skora sigurkörfuna þegar innan við sekúnda var til leiksloka. Dallas náði að vinna upp 16 stiga forystu Toronto á tiltölulega skömmum tíma og tryggja sér þannig sinn 17. sigur í síðustu 18 leikjum. Körfubolti 15. janúar 2007 12:13
10 þúsund fráköst hjá Garnett Kevin Garnett, leikmaður Minnesota, skorað 32 stig og reif niður 14 fráköst í 109-98 sigri liðs síns á New Jersey í NBA-deildinni í nótt. Garnett hefur nú tekið 10.007 fráköst á ferlinum og er hann 32. leikmaðurinn í sögu deildarinnar sem rýfur 10 þúsund frákasta múrinn. Pheonix vann sinn áttunda leik í röð í nótt. Körfubolti 14. janúar 2007 12:45
Allen og Nowitzki stálu senunni Dirk Nowitzki hjá Dallas og Ray Allen hjá Seattle voru menn næturinnar í NBA-boltanum. Nowitzki skoraði 43 stig, það mesta sem hann hefur skorað á leiktíðinni, þegar Dallas lagði Indiana af velli en Allen gerði enn betur og setti niður 54 stig í sigri Seattle á Utah. Allen hefur aldrei skorað meira á sínum ferli. Körfubolti 13. janúar 2007 12:39
Phoenix - Cleveland á Sýn í kvöld Stórleikur Phoenix Suns og Clevleland Cavaliers frá því í gærkvöld verður sýndur á sjónvarpsstöðinni Sýn á miðnætti í kvöld. Óhætt er að lofa áhorfendum Sýnar góðum tilþrifum að þessu sinni, en þarna áttust við tveir af bestu leikmönnum deildarinnar Steve Nash og LeBron James. Körfubolti 12. janúar 2007 19:18
Kidd lætur skrautlegan skilnað ekki hafa áhrif á sig Leikstjórnandinn magnaði Jason Kidd hjá New Jersey Nets lætur erfiðan hjónaskilnað ekki hafa áhrif á leik sinn með liðinu og í nótt fór hann á kostum þegar Nets lagði Chicago Bulls á útivelli í NBA deildinni. Þá var stórleikur í Phoenix þar sem heimamenn tóku á móti Cleveland, en sá leikur verður sýndur á Sýn í kvöld. Körfubolti 12. janúar 2007 12:10
Segir eiginkonuna hafa lamið sig í mörg ár Ein skærasta stjarna NBA-deildarinnar, Jason Kidd, leikmaður New Jersey Nets, hefur sótt um skilnað frá eiginkonu sinni til síðustu tíu ára. Málið hefur vakið mikla athygli vestra enda sakar Kidd eiginkonu sína um áralanga misnotkun, líkamlega sem andlega. Kidd sótti um skilnað degi eftir að hann fór fram á tímabundið nálgunarbann á eiginkonuna. Körfubolti 12. janúar 2007 00:01
O´Neal, Walker og Posey farnir að æfa með Miami Meisturum Miami Heat hefur borist góður liðstyrkur það sem það er nú á miðju keppnisferðalagi um vesturströnd Bandaríkjanna, því þeir Shaquille O´Neal, Antoine Walker og James Posey mættu allir á æfingu liðsins þar sem það var statt í San Francisco í dag. Körfubolti 11. janúar 2007 20:16
Boykins á leið til Milwaukee Minnsti leikmaðurinn í NBA deildinni, leikstjórnandinn Earl Boykins hjá Denver Nuggets, er á leið til Milwaukee Bucks ásamt framherjanum Julius Hodge í skiptum fyrir bakvörðinn Steve Blake. Þetta er fyrst og fremst ráðstöfun til að spara peninga af hálfu Denver, en Milwaukee liðið er í gríðarlegum meiðslavandræðum þessa dagana. Körfubolti 11. janúar 2007 17:58
Wade kemur Miami til bjargar Hinn magnaði Dwyane Wade hjá meisturum Miami er kominn aftur á fulla ferð eftir að missa úr fjóra leiki vegna meiðsla og segist ekki hafa verið eins ferskur lengi. Það sýndi sig í nótt þegar hann tryggði Miami 107-103 sigur á Seattle með því að skora 14 af 29 stigum sínum á síðustu 8 mínútunum. Körfubolti 11. janúar 2007 14:08
Webber á leið frá Philadelphia Segja má að vorhreingerningarnar hefjist snemma hjá liði Philadelphia 76ers þetta árið en félagið er í þessum töluðu orðum að ganga frá því að kaupa framherjann Chris Webber út úr samningi sínum. Webber er 34 ára gamall og orðinn nokkuð lúinn sem leikmaður, en á hvorki meira né minna en 43 milljónir eftir á samningi sínum sem gildir út næsta keppnistímabil. Körfubolti 10. janúar 2007 19:35
Treyja Kobe Bryant orðin vinsælust á ný Svo virðist sem vinsældir körfuboltamannsins Kobe Bryant séu aftur að ná hámarki, en samkvæmt nýjustu tölum frá Bandaríkjunum á hann nú söluhæstu keppnistreyjuna á markaðnum í dag. Bryant var á toppnum árið 2003, en Dwyane Wade hjá Miami hirti toppsætið árið 2005 og hafði haldið því síðan. Treyja LeBron James er í þriðja sætinu og liðsfélagarnir Allen Iverson og Carmelo Anthony hjá Denver eru í fjórða og fimmta sæti. Körfubolti 10. janúar 2007 16:44
Dallas vann góðan sigur í Utah Dallas er komið aftur á sigurbraut eftir að liðið lagði keppinauta sína í Utah Jazz á útivelli 108-105 í hörkuleik í Salt Lake City. Dirk Nowitzki fór fyrir Dallas með 38 stigum en Carlos Boozer skoraði 29 stig fyrir Utah. Körfubolti 10. janúar 2007 14:28
Memphis - LA Lakers í beinni í nótt Leikur Memphis Grizzlies og LA Lakers verður sýndur beint á NBA TV sjónvarpsstöðinni klukkan eitt eftir miðnætti í nótt. Lið Lakers hefur verið á góðri siglingu undanfarið þrátt fyrir meiðsli lykilmanna og stöðvaði síðast ótrúlega sigurgöngu Dallas Mavericks. Körfubolti 9. janúar 2007 19:27
Houston lagði Chicago Houston vann í nótt góðan 84-77 útisigur á Chicago í NBA deildinni og hefur liðið nú unnið 5 af 7 leikjum sínum síðan Yao Ming meiddist í síðasta mánuði. Tracy McGrady skoraði 31 stig fyrir Houston og var það sjötti leikurinn í röð sem hann skorar 31 stig eða meira. Ben Gordon skoraði 24 stig fyrir Chicago. Körfubolti 9. janúar 2007 14:50
Lakers stöðvaði sigurgöngu Dallas Los Angeles Lakers naut aðstoðar óvæntrar hetju í nótt þegar liðið lagði Dallas Mavericks 101-98 á heimavelli sínum og stöðvaði þar með 13 leikja sigurgöngu Dallas. Það var Sasha Vujacic sem tryggði Lakers sigurinn með þriggja stiga körfu í lokin, en hann skoraði 16 stig í leiknum sem er persónulegt met. Körfubolti 8. janúar 2007 04:56
Stórleikur á NBA TV í nótt Það verður sannkallaður stórleikur í beinni á NBA TV sjónvarpsrásinni á Fjölvarpinu í kvöld þegar Kobe Bryant og félagar í LA Lakers taka á móti eldheitu liði Dallas Mavericks sem hefur unnið 13 leiki í röð. Útsending hefst klukkan 2:30. Körfubolti 7. janúar 2007 19:47
Ben Wallace hafði betur gegn sínum gömlu félögum Stóri-Ben Wallace og hans menn í Chicago Bulls höfðu betur gegn gamla liðinu hans Detroit í nótt 106-89. Þetta var fyrsti leikur Wallace gegn liðinu sem hann spilaði með í 6 ár og hampaði meistaratitlinum með árið 2004. Körfubolti 7. janúar 2007 14:51
Dallas vann stóran sigur í San Antonio Dallas vann í nótt 13. sigurinn í röð í NBA deildinni þegar liðið skellti erkifjendum sínum í San Antonio 90-85 á útivelli. Leikurinn, sem sýndur var beint á Sýn, var æsispennandi allt til loka og nú hefur Dallas unnið þrjá leiki í röð í San Antonio. Körfubolti 6. janúar 2007 14:35
Raja Bell settur í bann Bakvörðurinn Raja Bell verður ekki með liði Phoenix sem tekur á móti Miami Heat í NBA í kvöld eftir að hann var settur í eins leiks bann í kvöld fyrir að sparka í nýliðann Andrea Bargnani hjá Toronto í leik liðanna á miðvikudag. Það ætti þó ekki að koma að sök fyrir Phoenix gegn Miami í kvöld, því gestirnir verða líka mjög undirmannaðir. Körfubolti 5. janúar 2007 22:15
Risaslagur í beinni á Sýn í kvöld Það verður sannkallaður risaslagur í beinni útsendingu Sýnar klukkan 1 í nótt þegar erkifjendurnir San Antonio Spurs og Dallas Mavericks eigast við í NBA deildinni. Liðin hafa mæst tvisvar í vetur og hvort lið hefur sigrað einu sinni. Þau áttust líka við í undanúrslitum Vesturdeildar síðasta vor þar sem Dallas hafði betur í sjö leikjum í einni bestu seríu úrslitakeppninnar. Körfubolti 5. janúar 2007 17:17
Aftur vinnur Dallas 12 í röð Dallas Mavericks vann í nótt sinn 12. leik í röð í NBA deildinni þegar liðið skellti Indiana á heimavelli 100-91. Þetta er í annað sinn á leiktíðinni sem Dallas vinnur 12 leiki í röð, sem er einstakur árangur á aðeins tveimur mánuðum. Liðið sækir San Antonio heim í nótt klukkan 1 í beinni á Sýn. Körfubolti 5. janúar 2007 13:28
Baráttan um Texas í beinni á Sýn annað kvöld Það verður sannkallaður stórleikur á dagskrá Sýnar annað kvöld þegar San Antonio tekur á móti Dallas Mavericks í NBA deildinni. Leikurinn hefst klukkan eitt eftir miðnætti, en þarna eru á ferðinni tvö af sterkustu liðum deildarinnar. Körfubolti 4. janúar 2007 15:55
Undirmannað lið Miami steinlá á heimavelli Meistarar Miami Heat eiga mjög erfitt verkefni fyrir höndum á næstu vikum eftir að liðið tapaði enn einum leiknum í nótt, að þessu sinni gegn LA Clippers á heimavelli 110-95. Liðið var án fimm fastamanna og þjálfarans Pat Riley sem þarf að gangast undir aðgerð á hné og mjöðm. Körfubolti 4. janúar 2007 05:16
Arenas kláraði Milwaukee Gilbert Arenas lét ekki axlarmeiðsli hafa áhrif á sig í nótt þegar hann skoraði ótrúlega sigurkörfu Washington Wizards í 108-105 sigri liðsins á Milwaukee. Arenas fékk boltann þegar sex sekúndur lifðu leiks og skoraði sigurkörfuna nokkrum metrum fyrir utan þriggja stiga línuna. Körfubolti 4. janúar 2007 04:45
Walker og Posey verða ekki með Miami í nótt Pat Riley, þjálfari Miami Heat, tilkynnti á blaðamannafundi í beinni útsendingu á NBA TV nú í kvöld að hann yrði ekki með liðinu um óákveðinn tíma vegna aðgerða sem hann þarf að gangast undir á hné og mjöðm. Þetta voru ekki einu tíðindin sem Riley tilkynnti á fundinum. Körfubolti 3. janúar 2007 20:55
Minnesota - San Antonio í beinni í kvöld Sjónvarpsleikur kvöldsins á NBA TV rásinni á Fjölvarpinu er viðureign Minnesota Timberwolves og San Antonio Spurs. Þar eigast við tveir af bestu framherjum deildarinnar síðustu ár, þeir Kevin Garnett og Tim Duncan og hefst leikurinn klukkan 1 eftir miðnætti. Körfubolti 3. janúar 2007 19:39
Riley ætlar að taka sér frí frá þjálfun Pat Riley, þjálfari NBA meistara Miami Heat, þarf að taka sér frí frá þjálfun um óákveðinn tíma til að gangast undir aðgerð á hné og á mjöðm. Chicago Tribune greindi frá þessu í dag. Ron Rothstein aðstoðarþjálfari liðsins mun taka við stjórn liðsins á meðan Riley nær sér, en liðið er nú að fara í sex leikja keppnisferð um vesturströndina. Körfubolti 3. janúar 2007 18:59