Lagði Boston næsta auðveldlega Detroit Pistons hélt sigurgöngu sinni áfram í NBA-deildinni í körfubolta í gær þegar liðið mætti Boston Celtics í fyrrinótt. Lið Boston reyndist vera lítil fyrirstaða og unnu Pistons sanngjarnan sigur 94-84. Sport 17. janúar 2006 12:30
Kobe og Shaq mætast á ný Það verður enginn smá leikur á dagskrá á NBA TV í beinni útsendingu í nótt, en þar mætast LA Lakers og Miami Heat í síðari leik sínum á tímabilinu eftir að Miami vann uppgjör liðanna á jóladag. Þó mikið hafi verið gert úr einvígi hinna fornu fjenda og fyrrum félaga, Kobe Bryant og Shaquille O´Neal, er ekki víst að mesta andúðin í kvöld verði þeirra á milli. Leikurinn hefst klukkan 03:30 í nótt. Sport 16. janúar 2006 19:30
Toronto stöðvaði sigurgöngu New York Lið Toronto Raptors stöðvaði í nótt sex leikja sigurgöngu New York Knicks með 129-103 sigri á heimavelli sínum í Kanada. New York var fyrir leikinn eina taplausa liðið í NBA á árinu, en 31 stig frá Jalen Rose áttu stóran þátt í þessum sigri, sem jafnframt bauð upp á mesta stigaskor í sögu Toronto liðsins. Eddy Curry skoraði 20 stig fyrir New York og Stephon Marbury var með 18 stig og 13 stoðsendingar. Sport 16. janúar 2006 13:53
James með 46 stig í tapleik Cleveland Hinn tvítugi LeBron James skoraði 46 stig fyrir Cleveland Caveliers í NBA-deildinni í körfubolta í nótt en þrátt fyrir það tapaði Cleveland fyrir Phoenix, 115-106. Þá skoraði Kobe Bryant 38 stig fyrir Los Angeles Lakers sem unnu Golden State Warriors 110-104. Sport 15. janúar 2006 08:00
Indiana - Washington í beinni Leikur Indiana Pacers og Washington Wizards verður sýndur í beinni útsendingu á NBA TV á Digital Ísland í kvöld og hefst klukkan tólf á miðnætti. Indiana hefur unnið 19 leiki og tapað 14, en Washington hefur unnið 14 og tapað 19. Bæði lið unnu stórsigra í síðasta leik sínum, Indiana valtaði yfir Milwaukee 112-88 og Washington sigraði Atlanta 103-72. Sport 13. janúar 2006 20:49
Hætt við að skipta á Artest og Maggette Orðrómurinn sem hefur verið á kreiki síðustu daga um að Indiana Pacers og LA Clippers hafi ætlað að skiptast á leikmönnum var staðfestur í nótt, þegar í ljós kom að Indiana bakkaði út úr því að fá hinn meidda Corey Maggette í skiptum fyrir vandræðagemlinginn Ron Artest. Sport 13. janúar 2006 15:15
Detroit vann auðveldan sigur á meisturunum Þrír leikir fóru fram í NBA deildinni í körfubolta í nótt. Detroit Pistons unnu annan sannfærandi sigurinn í röð á meisturum San Antonio, nú á útivelli 83-68. Detroit hefur því unnið báða leiki liðanna í vetur og hélt San Antonio í lægsta stigaskori sínu til þessa á leiktíðinni. Sport 13. janúar 2006 13:35
Lakers - Cleveland í beinni Þrír stórleikir verða á dagskrá í NBA deildinni í körfubolta í nótt. Viðureign LA Lakers og Cleveland Cavaliers verður í beinni útsendingu á NBA TV á Digital Ísland, en þar mætast tveir af stigahæstu leikmönnum deildarinnar, Kobe Bryant og LeBron James. Leikurinn hefst klukkan hálf fjögur í nótt. Sport 12. janúar 2006 21:44
Fer Ron Artest til Los Angeles? Al Harrington, leikmaður Atlanta Hawks og fyrrum leikmaður Indiana Pacers, sagði í samtali við Indanapolis Star að hann hefði heimildir fyrir því að Indiana og Los Angeles Clippers væru að komast að samkomulagi um að skipta á Artest og Corey Maggette á allra næstu dögum. Sport 12. janúar 2006 21:00
Dansarar Detroit þykja djarfir Dagatal sem gefið var út af klappstýrum Detroit Pistons um jólin hefur heldur betur farið fyrir brjóstið á ákveðnum hópi fólks, sem þótti dagatalið heldur ósiðlegt. Hópur kristinna manna hefur nú vakið athygli á því að dagatalið, sem gefur að líta myndir af klappstýrunum í efnislitlum sundfötum, særi blygðunarkennd fólks og sé ekki sæmandi körfuboltaliði sem nýtur stuðnings fjölskyldufólks. Sport 12. janúar 2006 17:53
Iverson skoraði 46 stig í tapi Allen Iverson skoraði 46 stig fyrir lið sitt Philadelphia í nótt, en það dugði ekki til sigurs gegn Utah Jazz sem hafði betur 110-102. Þetta var 8. sigur Utah í síðustu 9 leikjum. Varnarleikur Philadelphia var sem fyrr skelfilegur og kostaði liðið sigur, en Utah var með um 70% skotnýtingu í síðari hálfleiknum. Mehmet Okur skoraði 25 stig, hirti 8 fráköst og gaf 8 stoðsendingar fyrir Utah. Sport 12. janúar 2006 13:31
Aftur tapar Phoenix í þriðju framlengingu Denver Nuggets lagði Phoenix Suns á heimavelli sínum í nótt 139-137 eftir þrjár framlengingar. Þetta er í annað sinn á stuttum tíma sem Phoenix lendir í þremur framlengingum og tapar. Carmelo Anthony skoraði 43 stig fyrir Denver og þar á meðal sigurkörfuna í lokin. Raja Bell var stigahæstur hjá Phoenix með 30 stig. Sport 11. janúar 2006 13:45
McGrady meiddur Tracy McGrady, leikmaður Houston Rockets, mun missa af í það minnsta tveimur leikjum með liði sínu eftir að hann var fluttur á sjúkrahús með mikla bakverki eftir leik Houston og Denver á sunnudagskvöldið. Þetta eru ekki góð tíðindi fyrir Houston sem er einnig án Yao Ming vegna meiðsla. Sport 10. janúar 2006 20:45
Nash og James leikmenn vikunnar Steve Nash, leikmaður Phoenix Suns og Mike James hjá Toronto Raptors voru hafa verið útnefndir leikmenn vikunnar í Vestur- og Austurdeildinni í NBA. James stýrði liði Toronto til þriggja sigra í fjórum leikjum og skoraði 25 að meðaltali í leik og gaf sjö stoðsendingar. Nash skoraði 21 stig að meðaltali í leik og gaf 14,3 stoðsendingar í þremur sigrum Phoenix í fjórum leikjum. Sport 10. janúar 2006 19:00
Bryant jafnaði 40 ára gamalt met Chamberlain Kobe Bryant skoraði í nótt 45 stig í sigri LA Lakers á Indiana 96-90, en þetta var í fyrsta sinn síðan árið 1964 sem leikmaður skorar 45 stig eða meira, fjóra leiki í röð. Wilt Chamberlain var síðasti maðurinn til að ná því afreki, en Michael Jordan skoraði 45 stig eða meira þrjá leiki í röð árið 1990. Sport 10. janúar 2006 07:23
Carter tryggði Nets 10. sigurinn í röð Vince Carter fór illa með sína gömlu félaga í Toronto Raptors í nótt þegar hann skoraði sigurkörfu New Jersey Nets með ævintýralegu þriggja stiga skoti um leið og lokaflautið gall. New Jersey sigraði 105-104 og var þetta 10. sigurleikur liðsins í röð. Carter skoraði 42 stig og hirti 10 fráköst í leiknum og Jason Kidd skoraði 22 stig og gaf 15 stoðsendingar. Sport 9. janúar 2006 14:22
Bryant skoraði 50 stig Kobe Bryant er heldur betur í stuði þessa dagana og í nótt skoraði hann 50 stig fyrir LA Lakers í sigri liðsins á grönnum sínum í LA Clippers 112-109. Bryant hefur því skorað að meðaltali 49 stig í síðustu tveimur leikjum liðsins og í nótt hirti hann auk þess 8 fráköst og gaf 8 stoðsendingar. Sport 8. janúar 2006 14:36
Phoenix burstaði Miami Stjörnum prýtt lið Miami Heat á ekki sjö dagana sæla um þessar mundir og í nótt tapaði liðið stórt fyrir Phoenix Suns 111-93, eftir að hafa fengið á sig 47 stig í fyrsta fjórðung leiksins. Dwayne Wade lék ekki með Miami í nótt, en Steve Nash fór á kostum í liði Phoenix, skoraði 11 stig og gaf 19 stoðsendingar, þar af 12 í fyrsta leikhlutanum, sem er annar besti árangur í sögu NBA. Sport 7. janúar 2006 14:09
Hornets spila þrjá leiki í New Orleans Forráðamenn New Orleans/Oklahoma City Hornets-liðsins í NBA deildinni hafa nú tilkynnt að liðið muni spila þrjá heimaleiki í New Orleans í vor sökum þess hve vel uppbygging í borginni gengur eftir að fellibylurinn Katrín reið þar yfir á sínum tíma. Sport 6. janúar 2006 19:00
McGrady vann einvígið við James Tveir leikir fóru fram í NBA deildinni í körfubolta í nótt. Tracy McGrady og LeBron James háðu mikið einvígi þegar Houston vann góðan útisigur á Cleveland 90-81 og svo virðist sem Cleveland sakni Larry Hughes mikið, en hann verður frá í allt að tvo mánuði vegna fingurbrots. Cleveland hafði verið á mikilli sigurgöngu fyrir leikinn, en náði ekki að leggja meiðslum hrjáð lið Houston. Sport 6. janúar 2006 13:45
LeBron James með stórleik LeBron James átti stjörnuleik þegar lið hans Cleveland Cavaliers bar sigurorð af Milwaukee Bucks í NBA deildinni í nótt 91-84. James skoraði 32 stig, þar af 17 í fjórða leikhluta, hirti 11 fráköst, gaf 11 stoðsendingar og stal 5 boltum. Liðið varð þó fyrir áfalli í leiknum, því Larry Hughes fingurbrotnaði og verður frá í 6-8 vikur. Michael Redd var atkvæðamestur hjá Milwaukee með 28 stig. Sport 5. janúar 2006 07:45
Fimmta tap Lakers í röð LA Lakers tapaði fimmta leik sínum í röð í nótt þegar liðið lá fyrir Utah Jazz, en þetta var síðari leikurinn sem Kobe Bryant þurfti að taka út leikbann fyrir olnbogaskot í leik á dögunum. Utah sigraði 90-80. Mehmet Okur skoraði 20 stig og hirti 10 fráköst fyrir Utah og Andrei Kirilenko skoraði 14 stig, gaf 9 stoðsendingar, hirti 8 fráköst, varði 7 skot og stal 6 boltum. Lamar Odom skoraði 25 stig fyrir Lakers. Sport 4. janúar 2006 14:28
Weiss rekinn frá Seattle NBA-lið Seattle Supersonics rak í gær þjálfara sinn Bob Weiss og er aðstoðarmaður hans Bob Hill tekinn við þjálfun liðsins þangað til eftirmaður Weiss er fundinn. Gengi Seattle hefur verið upp og ofan það sem af er vetri en illa hefur gengið að byggja á góðum árangri sem náðist svo óvænt í fyrra, þegar liðið fór lengra en nokkurn óraði fyrir í úrslitakeppninni. Sport 4. janúar 2006 07:45
Stoudamire spilar ekki meira í ár Spútniklið Memphis Grizzlies hefur orðið fyrir gríðarlegu áfalli því leikstjórnandinn Damon Stoudamire fór í aðgerð í gær vegna hnémeiðsla og nú þykir víst að hann muni ekki leika meira með liðinu á þessu tímabili. Stoudamire var kjörinn nýliði ársins árið 1996 þegar hann lék með Toronto Raptors. Hann var með um 12 stig og 4 stoðsendingar að meðaltali í leik í vetur með Memphis. Sport 4. janúar 2006 06:45
Stu Jackson er glæpamaður Danny Fortson, leikmaður Seattle Supersonics í NBA deildinni á ekki von á góðu eftir nýjustu ummæli sín í garð Stu Jackson, sem er varaforseti deildarinnar. Fortson hefur þurft að greiða sem nemur 200.000 dollurum í sektir fyrir ósæmilega hegðun og tæknivillur í vetur og segir að hann hljóti ósanngjarna meðferð hjá Jackson - sem sé ekkert annað en glæpamaður. Sport 3. janúar 2006 21:00
Hill íhugar að hætta eftir næsta tímabil Framherjinn Grant Hill hjá Orlando Magic hefur viðurkennt að hann íhugi að leggja skóna á hilluna eftir næsta keppnistímabil í NBA deildinni, en Hill hefur sem kunnugt er átt við þrálát meiðsli að stríða allar götur síðan hann gekk til liðs við Orlando árið 2000. Sport 3. janúar 2006 18:30
New York lagði Phoenix í maraþonleik Fimm leikir fóru fram í NBA deildinni í körfuknattleik í nótt og þar bar hæst viðureign New York Knicks og Phoenix Suns, þar sem úrslitin réðust ekki fyrr en í þriðju framlengingu. New York hafði betur 140-133. Sport 3. janúar 2006 11:15
Miami burstaði Minnesota Þrír leikir fóru fram í NBA deildinni í körfubolta í nótt. Miami burstaði Minnesota 97-70 eftir að jafnræði hafði verið með liðunum í fyrri hálfleik. Pat Riley las hressilega yfir sínum mönnum í hálfleiknum og það dugði, því Miami fékk aðeins á sig 26 stig í síðari hálfleiknum. Dwayne Wade var stigahæstur í jöfnu liði Miami með 19 stig, en Wally Szczerbiak skoraði mest hjá Minnesota, 19 stig. Sport 2. janúar 2006 13:36
Cleveland stöðvaði Detroit LeBron James og félagar í Cleveland Cavaliers stöðvuðu níu leikja sigurgöngu Detroit Pistons í nótt með öruggum 97-84 sigri á heimavelli sínum. James skoraði 30 stig, hirti 7 fráköst og gaf 7 stoðsendingar fyrir Cleveland, en Rasheed Wallace og Rip Hamilton skoruðu 21 stig hvor fyrir Detroit sem er þó enn með bestan árangur allra liða í deildinni. Sport 1. janúar 2006 08:00
Áttundi sigur New Jersey í röð New Jersey Nets vann sinn áttunda leik í röð í nótt þegar liðið sigraði Atlanta Hawks 99-91. Vince Carter skoraði 37 stig fyrir New Jersey, en Al Harrington var atkvæðamestur hjá Atlanta með 26 stig. Alls voru spilaðir níu leikir í deildinni í nótt. Sport 31. desember 2005 15:39