Afsláttardagar alltaf að stækka: „Enginn dagur sem sker sig jafn mikið úr“ Einn stærsti dagur afsláttardagur ársins er í dag, svokallaður Singles day eða Dagur einhleypra. Sífellt fleiri landsmenn nýta sér alþjóðlega afsláttardaga í nóvember til að hefja og jafnvel klára jólainnkaup. Framkvæmdastjóri Samtaka verslunar og þjónustu segir mikilvægt að hafa umhverfisáhrif í huga þegar verslað sé af erlendum netverslunum. Neytendur 11. nóvember 2022 12:46
Umsóknir um aðstoð vegna fjárhagsvanda ekki verið fleiri það sem af er ári Sífellt fleiri leita til umboðsmanns skuldara vegna fjárhagsvanda. Metfjöldi fólks sótti um aðstoð hjá embættinu í síðasta mánuði. Formaður Neytendasamtakanna segir aukin yfirdráttarlán mælikvarða á stöðu heimilanna. Neytendur 10. nóvember 2022 14:00
Sitjum ekki uppi með sárt enni og brennt kort – vörumst netsvik Jólageit IKEA er komin á sinn stað og fyrsti stóri netverslunar dagurinn nálgast. Þetta verður ekki flúið, það eru að koma jól. Burtséð frá því hvenær fólki finnst eðlilegt að byrja að minnast á jólin þá er fjöldi fólks sem nýtir sér þau tækifæri sem gefast í netverslunum í nóvember. Skoðun 10. nóvember 2022 07:01
Yfirdráttarlán heimilanna að aukast Samkvæmt hagtölum Seðlabanka Íslands eru bæði innlán og yfirdráttarlán heimilanna að aukast. Innlent 10. nóvember 2022 06:36
Færeyingar á sama Svalalausa báti og Íslendingar Það eru ekki bara Íslendingar sem munu ekki geta lengur svalað þorsta sínum með ísköldum Svala. Færeyingar eru í sömu stöðu. Í frétt Dimmalættings um endalok Svalans er drykkurinn kallaður „hinn víðfrægi íslenski svaladrykkur Svali“. Viðskipti innlent 9. nóvember 2022 23:14
Syrgði svalann syngjandi í Bónus Íslendingar syrgja nú ávaxtasafann Svala, sem hætt verður að framleiða um áramótin. Forstjóri Coca-Cola á Íslandi segir ákvörðunina hafa verið afar erfiða en Svali, sykraður drykkur markaðssettur til barna, samræmist ekki stefnu fyrirtækisins. Viðskipti innlent 9. nóvember 2022 20:01
Landsmenn gráta Svala og sumir óttast það versta Ávaxtasafinn Svali er allur, ef svo má segja. Það virðast vera ein stærstu tíðindi dagsins ef marka má viðbrögð landsmanna á samfélagsmiðlum við tíðindunum. Sumir minnast blás Ópals og Frissa fríska við þessi tímamót. Aðrir velta upp hvaða vörur gætu horfið af markaði. Neytendur 9. nóvember 2022 14:42
Hætta framleiðslu á Svala Framleiðsla og sala á Svala mun hætta um áramótin. Svali hefur verið einn vinsælasti drykkur landsins í yfir fjörutíu ár. Neytendur 9. nóvember 2022 12:15
Dökku litirnir horfnir: „Finnst þetta bara vera léleg afsökun“ Vala Emanuela Reynisdóttir upplifir erfiðleika við að finna förðunarvörur sem henta sér hér á landi. Vala, sem er dökk á hörund, segist hingað til hafa geta keypt sér farða sem hentar en nú sé búið að taka þá úr sölu. Framkvæmdastjóri Danól segir fyrirtækið alltaf hafa fjölbreytileika í huga. Neytendur 5. nóvember 2022 09:00
Kostulegt myndasafn úr Góða hirðinum: „Ég er náttúrulega bara áhrifavaldur“ Í Íslandi í dag kynnumst við Maríu Hjálmtýsdóttur, kennara sem fer í Góða hirðinn nær daglega til að kanna hvort hún finni eitthvað að viti. Um leið og hún gengur tekur hún oft myndir sem rata í gífurlega vinsælan hóp hennar: „Hver hendir svona?“ Neytendur 4. nóvember 2022 09:29
Þetta hækkar hjá Reykjavíkurborg um áramótin Verð á sorphirðu, skólamáltíðum og árskorti í sund hjá Reykjavíkurborg mun hækka um áramótin. Borgarfulltrúi minnihlutans hefði viljað frysta gjaldskrárhækkanir sem snúa að frístundastarfi í ljósi verðbólgu. Innlent 3. nóvember 2022 21:30
Betra er brjóstvit en bókvit Það styttist í jólin. Verslanir keppast því við að fylla hillur af nýprentuðum bókum. Vísir fjallaði um málið í vikunni þar sem sagði að verð á bókum hækki með hverju ári og bókin stefni í að kosta tæplega átta þúsund krónur, að jafnaði. Skoðun 28. október 2022 13:01
Afhjúpaði gróðavænlegasta lukkuhjól borgarinnar Júlíus Þór Björnsson Waage, Akureyringur í verkfræðinámi í Reykjavík, hefur unnið mikið tölfræðilegt afrek í frítíma sínum að undanförnu, sem er að skrásetja tölfræðilega möguleika á vinningum í lukkuhjólunum á öldurhúsum Reykjavíkur. Lífið 28. október 2022 08:40
Landsbankinn hagnast um 11,3 milljarða á árinu Landsbankinn hagnaðist um 11,3 milljarða á fyrstu þremur ársfjórðungum ársins, þar af um 5,8 milljarða króna á þriðja ársfjórðungi. Viðskipti innlent 27. október 2022 12:51
Sykur í sykurlausum Opal Mistök við pökkun hjá Nóa Síríus olli því að sykraðir opalmolar enduðu í pakka ætluðum sykurlausum opal. Neytendur 26. október 2022 20:10
Bílaleiga þarf að endurgreiða viðskiptavini útlagðan viðgerðarkostnað Íslenskri bílaleigu hefur verið gert að endurgreiða viðskiptavini sínum 250 þúsund krónur sem honum hafði verið gert að greiða vegna viðgerðarkostnaðar eftir að hann skilaði bílnum í lok leigutímans. Deilan sneri að skemmdum á undirvagni sem bílaleigan taldi viðskiptavininn hafa valdið með því að aka yfir stórgrýti. Neytendur 26. október 2022 08:00
Fær hótelnætur endurgreiddar eftir höfnun í móttökunni Fyrirtæki sem rekur hótel hérlendis hefur verið gert að endurgreiða viðskiptavini sínum andvirði fjögurra hótelnótta eftir að hafa meinað honum að dvelja á hótelinu þegar hann mætti til dvalarinnar. Fyrirtækið vísaði þar til þess að upplýsingar hefðu borist um að viðskiptavinurinn væri með Covid-19. Neytendur 25. október 2022 11:33
Símtöl til Bretlands geta kostað formúu ef menn passa sig ekki Brexit hefur þegar haft ýmis áhrif á Bretland og á þá sem eiga í samskiptum við breska heimsveldið. Ef menn passa sig ekki gæti kostað skildinginn að tala í síma á Bretlandseyjum. Neytendur 24. október 2022 10:49
Meint íslenskt óveður reynst dýrkeypt fyrir Vueling Spænska flugfélagið Vueling hefur þurft að greiða um sjötíu farþegum flugfélagsins samtals rúmlega fimm milljónir króna í skaðabætur vegna flugferða á vegum félagsins sem var ýmist seinkað eða aflýst vegna veðurs hér á landi. Í öllum tilvikum var það metið svo að veðrið hafi ekki átt að hafa áhrif á ferðir félagsins. Viðskipti innlent 23. október 2022 10:00
Neitað um gistingu vegna Covid og fékk endurgreitt Hóteli hefur verið gert að endurgreiða ferðamanni rúmar 340 evrur vegna gistingar. Hótelið neitaði manninum um gistingu vegna þess að hann var smitaður af kórónuveirunni. Á þeim tímapunkti hafði öllum sóttavarnaraðgerðum verið aflétt. Innlent 22. október 2022 12:54
Arion hækkar vexti innlána og annarra útlána en íbúðalána Arion banki hefur hækkað vexti á innlánum og öllum útlánum fyrir utan íbúðalán. Hækkunin á kjörvöxtum tekur í gildi eftir þrjátíu daga en vextir yfirdráttarlána og innlána breytast á morgun. Viðskipti innlent 21. október 2022 11:27
Alicante-farar fá engar bætur eftir að Play flaug með leiguflugvél í stað Airbus Fjórir viðskiptavinir Play fá engar skaðabætur úr hendi flugfélagsins eftir að það neyddist til að notast við leiguflugvél í áætlunarflugi til Alicante á Spáni í júní síðastliðnum. Hópurinn kvartaði þar sem hann taldi að um niðurfærslu í flugi væri að ræða og að þau hafi borgað fyrir að fljúga með Airbus-vél flugfélagsins. Neytendur 21. október 2022 10:49
Heimkaup að meðaltali lengst frá lægsta verði Heimkaup var að meðaltali lengst frá lægsta verði í verðkönnun verðlagseftirltis ASÍ á matvöru. Bónus var oftast með lægsta verðið. Neytendur 20. október 2022 10:54
Frekari merki kólnunar á fasteignamarkaði Fasteignamarkaðurinn heldur áfram að kólna en verulega hefur dregið úr hlutfalli íbúða sem seljast yfir ásettu verði. Meðal kaupverð á höfuðborgarsvæðinu heldur áfram að lækka. Viðskipti innlent 19. október 2022 07:35
Innkalla Kalk + Magnesíum frá Gula miðanum Heilsa hefur að höfðu samráði við Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur stöðvað sölu og innkallað frá neytendum fæðubótarefnið Kalk+Magnesíum frá Gula miðanum. Viðskipti innlent 18. október 2022 13:41
Vildu fá fjögur þúsund krónur en þurfa að greiða 372 þúsund Kona þarf ekki að greiða 4.580 krónur líkt og fyrirtækið Fresco 48 ehf. sem rekur veitingastaðinn Fresco hafði krafið hana um. Þess í stað þarf fyrirtækið að greiða málskostnað konunnar sem var 372 þúsund krónur. Viðskipti innlent 18. október 2022 12:56
Telur umræðu um aukna greiðslubyrði á villigötum Umræða um aukna greiðslubyrði lána sem bera breytilega vexti er á villigötum að mati Rannveigar Sigurðardóttur varaseðlabankastjóra. Hún segir mjög algengt að þeir sem hafi tekið slík lán hafi blandað þeim saman við verðtryggð lán, sem mildi áhrif. Tilbúin dæmi sem sýni miklar hækkanir á greiðslubyrði slíkra lána segi ekki alla söguna. Viðskipti innlent 18. október 2022 12:06
Heimila samruna Haga og Eldum rétt Samkeppniseftirlitið hefur samþykkt kaup Haga á öllu hlutafé í Eldum rétt ehf. án íhlutunar. Viðskipti innlent 18. október 2022 07:29
Brot gegn persónuverndarlögum misnotkun á markaðsráðandi stöðu? Tæknirisar nútímans hafa umtalsverðan markaðsstyrk og viðskiptamódel þeirra grundvallast að miklu leyti á söfnun persónuupplýsinga Skoðun 17. október 2022 16:00
Mikilvægt að huga að íslensku í auglýsingum Á árunum 1993 til 2005 hafa 35 mál verið tekin fyrir hjá neytendastofu vegna tungumáls í auglýsingum sem beint er til íslenskra neytenda. Samkvæmt lögum skulu þesskonar auglýsingar vera á íslensku. Eitt slíkt mál er nú til skoðunar hjá neytendastofu en aðeins hafa átta mál verið tekin fyrir síðan 2005. Lilja Dögg Alfreðsdóttir, menningar- og viðskiptaráðherra segir beitingu laga mikilvæga í þessum efnum. Neytendur 16. október 2022 14:23