Oddur: Mjög spennandi verkefni sem tekur nú við „Það er frábært að vera komnir svona langt," sagði Akureyringurinn Oddur Gretarsson eftir að liðið vann Víking örugglega og tryggði sér sæti í undanúrslitum bikarsins. Handbolti 5. desember 2010 18:37
Róbert eftir tapið gegn Akureyri: Þetta var bara gaman fyrir okkur Róbert Sighvatsson, þjálfari Víkinga, segist taka jákvæðu punktana úr leiknum gegn Akureyri í dag. Norðanmenn unnu stórsigur. Handbolti 5. desember 2010 18:35
Akureyri komið í undanúrslit Akureyri, topplið N1-deildarinnar, átti ekki í vandræðum með að leggja Víking, sem er við botninn í 1. deildinni, í Fossvoginum í dag. Lokatölur urðu 18-34 og eru norðanmenn því komnir áfram í bikarnum. Handbolti 5. desember 2010 17:19
Reynir: Hrikalega flottur karakter Reynir Þór Reynisson, þjálfari Fram, var að vonum kátur eftir að hans menn höfðu tryggt sér sæti í undanúrslitum Eimskipsbikarsins með sigri á bikarmeisturum Hauka. Handbolti 4. desember 2010 17:27
Fram sló út bikarmeistarana Fram er komið í undanúrslit í Eimskipsbikar karla eftir sigur á bikarmeisturum Hauka, 32-31, í Safamýrinni í dag. Þetta var fyrsti leikurinn í átta liða úrslitum keppninnar. Handbolti 4. desember 2010 17:16
Sveinbjörn: Óbilandi trú og sigurvilji Sveinbjörn Pétursson, markvörður Akureyrar, var ánægður með sigurinn á Aftureldingu í N1-deild karla í gær. Handbolti 3. desember 2010 12:45
Hafþór: Fleiri sigurleikir framundan Hafþór Einarsson, markvörður Aftureldingar, segir að það séu fleiri sigurleikir framundan hjá Mosfellingum þó svo að liðið hafi aðeins unnið einn leik af níu til þessa í N1-deild karla. Handbolti 3. desember 2010 12:00
Nýju þjálfararnir komu Valsliðinu af botninum - myndir Valsmenn unnu 26-25 sigur á Selfossi í botnslag í N1 deild karla í gær og komust með því úr botnsæti deildarinnar þar sem þeir hafa verið nær allt tímabilið til þessa. Handbolti 3. desember 2010 08:45
Níu sigrar í röð hjá Akureyri - myndir Topplið Akureyrar hélt sigurgöngu sinni áfram í N1 deild karla í gærkvöldi með 25-24 sigri á Aftureldingu í Mosfellsbænum. Akureyri hefur nú fjögurra stiga forskot á toppi deildarinnar en norðanmenn eru búnir að vinn fyrstu níu leiki sína í N1 deildinni. Handbolti 3. desember 2010 08:30
Hlynur: Mikilvægur sigur fyrir okkur í botnbaráttunni „Ég er ánægður en alveg gjörsamlega búinn á því,“ sagði Hlynur Morthens, markvörður Vals, eftir sigurinn á Selfyssingum í kvöld. Valur vann mikilvægan sigur á Selfyssingum 26-25 í sannkölluðum botnslag. Hlynur átti frábæran leik og varði 21 skot en mörg þeirra voru algjör dauðafæri. Handbolti 2. desember 2010 22:34
Sebastian: Hlynur var okkur of erfiður Sebastian Alexandersson, þjálfari Selfyssinga, hafði blendnar tilfinningar í lokin eftir að hafa tapað gegn Valsmönnum í kvöld en Selfyssingar léku sennilega sinn besta leik á tímabilinu. Valur bar sigur úr býtum gegn Selfoss, 26-25, í 9.umferð N1-deild karla í kvöld en leikurinn fór fram að Hlíðarenda. Handbolti 2. desember 2010 22:29
Óskar Bjarni: Höfðum alltaf góð tök á leiknum Óskar Bjarni Óskarsson, annar þjálfari Valsmanna, var sáttur með stigin í kvöld og ánægður með leik sinna manna. Valur landaði mikilvægum sigri í botnbaráttunni í kvöld en þeir báru sigur úr býtum gegn Selfyssingum 26-25 í 9.umferð N1-deildar karla en leikurinn fór fram að Hlíðarenda. Handbolti 2. desember 2010 22:12
Umfjöllun: Valur vann botnslaginn gegn Selfossi Valur bar sigur úr býtum gegn Selfoss 26-25 í botnslagnum á Hlíðarenda í kvöld. Leikurinn var æsispennandi í lokin en reynsla Valsmanna skilaði þeim sigrinum að lokum. Valsliðið heldur áfram að bæta leik sinn og náði í gríðarlega mikilvæg stig. Hlynur Morthens fór hamförum í marki heimamanna og varði 21 skot,en Selfyssingar voru í stökustu vandræðum með að koma boltanum framhjá honum. Handbolti 2. desember 2010 21:03
Guðlaugur: Tæpt en góður sigur Guðlaugur Arnarsson, leikmaður Akureyrar, segir að liðið hafi oft spilað betur en gegn Aftureldingu í kvöld. Akureyri vann nauman sigur, 25-24. Handbolti 2. desember 2010 20:58
Gunnar: Vantar smá lukku í Mosfellsbæinn Gunnar Andrésson, þjálfari Aftureldingar, segir það skelfilegt að hafa tapað enn einum heimaleiknum í N1-deild karla. Handbolti 2. desember 2010 20:44
Umfjöllun: Akureyri vann nauman sigur í Mosfellsbænum Akureyri er enn ósigrað á toppi N1-deildar karla eftir sigur á Aftureldingu í Mosfellsbænum í æsispennandi leik í kvöld, 25-24. Handbolti 2. desember 2010 20:01
Framarar með sex sigra í röð eftir stórsigur á HK - myndir Framarar eru á mikill siglingu í N1 deild karla þessa daganna en liðið vann sinn sjötta leik í röð í gærkvöldi þegar liðið skellti HK-ingum með tíu marka mun í Safamýrinni, 36-26. Handbolti 2. desember 2010 08:30
Halldór Jóhann: Nýt þess að spila handbolta Halldór Jóhann Sigfússon átti frábæran leik þegar að Fram vann tíu marka stórsigur á HK í N1-deild karla í kvöld. Handbolti 1. desember 2010 22:34
Kristinn: Misstum liðsheildina Kristinn Guðmundsson, aðstoðarþjálfari HK, sagði að liðsheildin hjá sínum mönnum hafi ekki verið upp á marga fiska gegn Fram í kvöld. Handbolti 1. desember 2010 22:33
Reynir Þór: Gríðarlegur styrkur Reynir Þór Reynisson, þjálfari Fram, var vitanlega hæstánægður með sigurinn á HK í kvöld. Handbolti 1. desember 2010 22:32
Umfjöllun: Fram leiddi HK til slátrunar Fram komst í kvöld upp í annað sæti N1-deildar karla með sigri á HK, 36-26, sem tapaði í kvöld sínum öðrum leik í röð. Handbolti 1. desember 2010 21:08
Júlíus hættur með Valsliðið - Heimir og Óskar taka við liðinu Júlíus Jónasson er hættur sem þjálfari karlaliðs Vals en í tilkynningu á heimasíðu félagsins þá segir að Handknattleikdsdeild Vals og Júlíus hafa komist að samkomulagi um að Júlíus láti af störfum. Handbolti 1. desember 2010 18:34
Haukarnir hefndu með stórsigri í Krikanum - myndir Íslands- og bikarmeistarar Hauka sýndu styrk sinn í níu marka stórsigri á FH, 25-16, í Kaplakrika í Hafnarfjarðarslagnum í N1 deild karla í kvöld. Haukar hefndu þar með fyrir níu marka tap fyrir FH á Ásvöllum í október síðastliðunum með því að vinna FH-ingar með sama mun á þeirra heimavelli. Handbolti 30. nóvember 2010 23:00
Freyr: Einhverjir Haukamenn sem vilja ekki koma í Kaplakrika „Nú komum við tilbúnir," sagði Freyr Brynjarsson, hornamaður Hauka, eftir að liðið vann níu marka sigur á FH í grannaslag í Kaplakrika. Handbolti 30. nóvember 2010 22:10
Haukar unnu níu marka stórsigur á FH í Krikanum Haukar jöfnuðu FH að stigum með því að vinna sigur í Hafnarfjarðarslagnum í Kaplakrika í kvöld, lokastaðan 16-25. Þeir lögðu grunninn að sigrinum með því að skora sjö mörk í röð í kringum hálfleikinn. Handbolti 30. nóvember 2010 21:16
Heimir Guðjóns fer hamförum á grillinu Þegar þessi orð eru skrifuð er hálftími í slag erkifjendanna FH og Hauka í N1-deildinni í handbolta. FH-ingar voru í gær verðlaunaðir fyrir góða umgjörð á leikjum sínum en í leiknum í kvöld er öllu til tjaldað. Handbolti 30. nóvember 2010 19:15
Atli: Ég vil að menn hafi gaman af því sem þeir eru að gera Atli Hilmarsson, þjálfari toppliðs Akureyrar í N1-deild karla, var í dag valinn besti þjálfarinn í fyrstu sjö umferðum deildarinnar. Akureyri vann alla þá leiki og er reyndar búið að vinna áttunda leikinn líka. Handbolti 29. nóvember 2010 14:30
Ólafur Bjarki: Við vinnum Akureyri næst HK-ingurinn Ólafur Bjarki Ragnarsson var í hádeginu valinn besti leikmaður fyrstu sjö umferðanna í N1-deild karla. Ólafur Bjarki hefur leikið virkilega vel með HK það sem af er vetri og er vel að nafnbótinni kominn. Handbolti 29. nóvember 2010 13:20
Ólafur Bjarki bestur í umferðum eitt til sjö í N1-deild karla HK-ingurinn Ólafur Bjarki Ragnarsson var nú í hádeginu valinn besti leikmaður umferða 1-7 í N1-deild karla. Ólafur Bjarki hefur farið mikinn í liði HK sem hefur komið verulega á óvart með frábærri frammistöðu. Handbolti 29. nóvember 2010 12:00
Sverre: Áttum ekki von á því að þetta yrði svona auðvelt Sverre Jakobsson átti góðan leik í vörn Grosswallstadt þegar liðið burstaði Hauka í EHF-bikarnum í handbolta í kvöld. Þýska liðið fer áfram með samanlagða þrettán marka forystu úr leikjunum tveimur. Handbolti 27. nóvember 2010 20:30
Uppgjörið: Grindavík-Njarðvík 122-115 | Háspenna lífshætta í ótrúlegum sigri Grindvíkinga Körfubolti