New York Times fjallar um íslenskar pylsur: Ekkert jafnist á við eina með öllu Verðbólga hefur verið áberandi umfjöllunarefli fjölmiðla undanfarin misseri en nú hefur hún mögulega í fyrsta skipti verið skoðuð frá sjónarhóli pylsuunnenda. Þrátt fyrir að verð nái nýjum hæðum þá hörfa Íslendingar ekki frá þeim góða sið að fá sér eina með öllu. Innlent 2. apríl 2026 09:21
Hver ber ábyrgð á heimilisleysi á Íslandi? Það er óhætt að segja að enginn kýs að vera heimilislaus, húsaskjól er jú ein af grunnþörfum fólks. Alls konar aðstæður og áföll geta hins vegar komið upp í lífi hvers og eins sem geta gert það að verkum að viðkomandi missir húsnæði. Skoðun 2. apríl 2026 07:32
Kostnaður við borgarstjórn Reykjavíkur Það er ekki beinlínis fallið til vinsælda að verja kerfi þar sem launakjör kjörinna fulltrúa koma við sögu og ég ætla ekki að gera tilraun til þess. Hinsvegar langar mig að varpa ljósi á kostnaðinn við kjörna fulltrúa í Reykjavík annarsvegar og stærstu sveitarfélaga landsins hinsvegar. Skoðun 1. apríl 2026 21:30
Hátt í sextíu prósent óánægð með störf borgarstjóra Óánægja borgarbúa með störf borgarstjóra og borgarstjórnar í heild eykst á milli mælinga. Þetta sýnir nýr borgarviti Maskínu þar sem spurt er um ánægju reykvískra kjósenda. Innlent 1. apríl 2026 19:42
Gestum neyðarskýla fækkar verulega milli ára Gestum neyðarskýla Reykjavíkurborgar hefur fækkað verulega á milli ára. Gestir gista jafnframt færri nætur að meðaltali í skýlunum. Deildarstjóri segir ánægjulegt að sjá slíka fækkun og að hana megi rekja til nýrra úrræða og betri þjónustu við heimilislausa í Reykjavík. Reykjavíkurborg stefni að frekari uppbyggingu húsnæðis á þessu ári. Innlent 1. apríl 2026 12:12
Biðin bitnar á börnunum Í Reykjavík fer fram öflugt og fjölbreytt íþróttastarf. Slíkt starf styrkir nærsamfélög og hverfabrag og er ómetanlegt fyrir vellíðan og forvarnir barna. En í of mörgum hverfum er aðstaðan ekki í samræmi við það mikilvæga starf sem unnið er. Skoðun 1. apríl 2026 06:30
„Ég stend ekki hér út af minni fortíð“ Nýr oddviti Flokks fólksins í Reykjavík segir að ekki sé hægt að bendla hann við flokkaflakk eftir að hafa skipt um flokk fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar. Hann segir mestu máli skipta að mikilvæg málefni hljóti hljómgrunn. Það sé gott að fá annað tækifæri eftir að hafa afplánað 16 ár í fangelsi. Innlent 31. mars 2026 19:32
Guðmundur Ingi leiðir Flokk fólksins Guðmundur Ingi Þóroddsson, formaður Afstöðu, verður oddviti Flokks fólksins í Reykjavík fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar. Hann tók þátt í prófkjöri Samfylkingarinnar fyrir sömu kosningar en var hafnað. Innlent 31. mars 2026 15:04
Óseðjandi útvistunarblæti Samfylkingar og Vinstrisins (2/3) Orð Vinstrisins á móti verkum Vinstrisins er kosningasamsteypa Vinstri grænna og Vor til vinstri, stofnuð fyrir sveitarstjórnarkosningarnar 2026. Vor til vinstri er hreyfing sem Sanna Magdalena, fyrrverandi pólitískur leiðtogi Sósíalistaflokksins, stofnaði eftir að hún sneri baki við flokknum, þótt hún sé enn skráð á félagaskrá hans. Skoðun 31. mars 2026 15:02
Bein útsending: Flokkur fólksins kynnir efstu fimm Flokkur fólksins kynnir efstu fimm frambjóðendur á lista flokksins í Reykjavík fyrir komandi borgarstjórnarkosningar á blaðamannafundi klukkan 15. Beina útsendingu frá fundinum má sjá hér á Vísi. Innlent 31. mars 2026 14:50
Edition-málið komið aftur til saksóknara og farbann framlengt Frönsk kona sem grunuð eru um að hafa myrt eiginmann sinn og dóttur á Edition-hótelinu síðasta sumar sætir áframhaldandi farbanni til 27. apríl næstkomandi. Mál hennar er komið aftur á borð Héraðssaksóknara, eftir að hafa verið sent lögreglu til frekari rannsóknar í febrúar. Innlent 31. mars 2026 13:52
Förgun bóka áþekk því að lóga gæludýrum Þær notuðu bækur sem Bjarni bóksali Harðarson í Bókakaffinu tekur við í tonnatali komast, eðli málsins samkvæmt, ekki allar í endursölu og enda í Sorpugámum. Með Bjarna sem millilið friðar fólk þó samviskuna enda segir hann förgun bóka ekki ósvipaða því að að lóga gæludýrum. Lífið 31. mars 2026 10:01
Andspyrna á Íslandi sé hvatning fyrir þau sem heima eru Hópurinn Indivisible Iceland boðaði til mótmæla á Austurvelli síðustu helgi til að mótmæla aðgerðum Trump í Bandaríkjunum og víða um heim. Um átta milljónir manns tóku þátt í svipuðum No Kings-mótmælum víða um Bandaríkin síðustu helgi. Innlent 31. mars 2026 06:47
„Þá er ég hræddur um að þetta kerfi falli um sjálft sig“ Hundruðum þúsunda bóka er fargað hér á landi á ári hverju. Varaformaður Hagþenkis segir það þó ekki endilega slæmt að bækur endi í ruslinu enda mikilvægt að fólk rýmki til fyrir nýjum bókum. Öflug bókasala forsenda nýsköpunar í bókmenntum hér á landi. Innlent 30. mars 2026 23:28
Feiminn í æsku en fann sig í tískunni „Þetta gefur mér mikinn tilgang þrátt fyrir að vera mjög krefjandi og tímafrekt. Þetta er áskorun á hverjum degi og ég bara elska þetta,“ segir hinn 22 ára gamli Haraldur Björnsson sem rekur sitt eigið fatamerki undir nafninu Coppermine. Tíska og hönnun 30. mars 2026 20:02
Um 36 prósent foreldra í Reykjavík hafa stytt dvalartíma Um 36 prósent foreldra hafa stytt skráðan vistunartíma barna sinna fyrir innleiðingu Leikskólaleiðarinnar í Reykjavík 1. apríl næstkomandi. Mun færri foreldrar skrá börn sín í 40 klukkustunda vistun á viku en áður. Innlent 30. mars 2026 14:40
Hundruðum þúsunda bóka fargað á ári hverju Mörg hundruð þúsund bækur enda í ruslinu á hverju ári samkvæmt sviðsstjóra samskipta- og þjónustusviðs Sorpu. Ýmsum sárnar að sjá meistaraverk stórhöfunda í ruslinu en hundrað þúsund bækur fara á sölu hjá Góða hirðinum á hverju ári. Framboð sé langt umfram eftirspurn neytenda og sviðsstjórinn býður Hallgrími Helgasyni í kaffi. Innlent 30. mars 2026 12:06
Leita að fjölskyldu til að vista allt að fjögur börn í neyð Barnavernd Reykjavíkur leitar að fjölskyldu eða einstaklingi til að reka neyðarheimili í Reykjavík fyrir allt að fjögur börn í allt að þrjá mánuði. Laun fyrir slíka vistun eru um 1,5 milljónir á mánuði óháð því hvort barn dvelur á heimilinu. Aukalega er svo greitt fyrir hvert barn sem dvelur á heimilinu miðað við lengd sem það dvelur. Innlent 30. mars 2026 11:27
Söguleg stund í KR heimilinu Það var gríðarleg stemning á tónleikum rappsveitarinnar Mobb Deep síðastliðinn þriðjudag. „Það er óhætt að segja að þetta hafi verið stærstu tónleikar sem við höfum staðið fyrir hingað til,“ segir Benni B-ruff einn af lykilskipuleggjendum þessarar tónleikaveislu. Tónlist 30. mars 2026 11:02
Neitaði að segja til nafns og hafði í hótunum við lögreglu Einn var handtekinn í hverfi 108 í gærkvöldi eða í nótt fyrir brot á lögreglusamþykkt. Í dagbók lögreglu kemur fram að hann hafi neitað að segja til nafns og hafi svo hótað lögreglu með ofbeldi. Fram kemur í dagbók að fjórir hafi gist í fangageymslu eftir nóttina. Innlent 30. mars 2026 07:42
Slökkvilið bjargaði ketti í vanda Slökkviliðið aðstoðaði í gær köttinn Ólíver sem hafði komið sér í vandræði. Innlent 30. mars 2026 07:31
Ríteil Kids hættir rekstri Versluninni Ríteil Kids í Holtagörðum verður lokað 4. apríl og hættir rekstri. Áfram verður opið í Ríteil á Smáratorgi. Viðskipti innlent 29. mars 2026 17:28
Kanna hvort hinn eftirlýsti sé í löglegri dvöl Karlmaðurinn sem lögregla hafði afskipti af í miðbænum í nótt var eftirlýstur vegna þess að kanna átti hvort hann væri á landinu í ólöglegri dvöl. Innlent 29. mars 2026 17:00
Þórbergur og Laxness í ruslinu Hallgrími Helgasyni rithöfundi brá í brún þegar hann opnaði pappírsgám í endurvinnslustöð Sorpu í Elliðavogi. Við blöstu bækur en ekki hvaða bækur sem er. Þar var að finna Bréf til Láru eftir Þórberg Þórðarson. Fjölmörgum blöskrar að sjá slíkt stórvirki á leið í tætarann á meðan aðrir benda á að um óumflýjanleg örlög bóka sé að ræða. Lífið 29. mars 2026 14:34
Ársæll hættur sem skólameistari Ársæll Guðmundsson hefur lokið störfum sem skólameistari Borgarholtsskóla en skipunartími hans rennur út í júní. Hann hefur ekki ákveðið hvað hann hyggst gera í framhaldinu en segist stoltur af ferlinum. Innlent 29. mars 2026 13:12
Breytingar á deiliskipulagi Suðurlandsbrautar auglýstar Umhverfis- og skipulagsráð hefur samþykkt að senda deiliskipulag Suðurlandsbrautar vegna Borgarlínunnar til auglýsingar í samráðsgátt. Minnihluti borgarstjórnar gagnrýnir fyrirhugaðar breytingar og sér í lagi að ekki sé búið að útfæra breytingar á bílastæðum við götuna. Innlent 29. mars 2026 08:59
„Brjálaður aðili“ reyndist eftirlýstur af lögreglu Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst tilkynning um „brjálaðan aðila“ í miðbæ Reykjavíkur. Sá reyndist vera eftirlýstur. Innlent 29. mars 2026 07:16
Bílar sitja fastir vegna þungrar færðar Lokað hefur verið fyrir umferð um vegi í kringum höfuðborgarsvæðið vegna óveðurs sem ríður yfir landið. Þung færð er um helstu stofnbrautir höfuðborgarsvæðisins og víða sitja bílar fastir. Innlent 28. mars 2026 20:06
Leiðinlegt þegar ráðist er á „litla manninn á horninu“ Brotist var inn á pítsastaðinn Pizza 107 snemma í morgun og vínflöskum stolið. Eigandi staðarins, sem hefur séð upptöku af innbrotinu, telur innbrotið hafa verið planað í þaula. Það sé leiðinlegt þegar ráðist er á „litla manninn á horninu“ og hefði hann frekar lánað viðkomandi nokkrar vínflöskur. Innlent 28. mars 2026 13:39
Vinstrið á blússandi siglingu Fylgi Vinstrisins, nýs framboðs í Reykjavík undir forystu Sönnu Magdalenu Mörtudóttur, eykst um rúm þrjú prósentustig milli kannanna. Samfylkingin og Sjálfstæðisflokkurinn keppast enn um efsta sætið. Innlent 28. mars 2026 09:41