Lokuðu einni mikilvægustu olíuleiðslunni Sádi-Arabar hafa lokað einni mikilvægustu olíuleiðslu landsins eftir drónaárásir sem Írakar eru taldir bera ábyrgð á. Atvikið er nýjasta dæmið um útbreiðslu átakanna fyrir botni Persaflóa og setja aukinn þrýsting á alþjóðlegar olíuflutningaleiðir. Erlent 12.9.2026 14:01
Miklar hækkanir á olíumörkuðum í dag Verð hráolíu hefur rokið upp í dag vegna áhyggja af enn frekari truflunum á flutningsleiðum olíu um heiminn, sem rekja má til aukinna og harðnandi átaka í Jemen. Hútar tóku í dag mikilvægan strandbæ við Rauðahaf sem mun gera þeim mun auðveldara að gera árásir á olíuflutningaskip á Rauðahafi. Erlent 10.9.2026 16:35
Pakistanar sögðu klerkastjórninni að koma böndum á Húta Erindrekar frá Pakistan komu í dag viðvörun á framfæri við ráðamenn í Íran. Klerkastjórnin var beðin um að koma böndum á Húta eftir umfangsmiklar árásir þeirra á Sádi-Arabíu, ellegar væri hætta á því að átök á svæðinu gætu stigmagnast verulega. Erlent 9.9.2026 23:21
Afþakkaði milljón Bandaríkjadala fyrir eitt uppistand Grínistinn Weird Al Yankovic segist hafa neitað að koma fram á grínhátíðinni í Ríad í Sádi-Arabíu síðasta haust þrátt fyrir að honum hafi boðist sjö stafa tala að launum. Hátíðin vakti mikið umtal og gagnrýni en fjöldi heimsfrægra grínista kom þar fram. Lífið 24. júlí 2026 11:11
Óttast að hin leiðin lokist með miklum afleiðingum Olíuverð hefur tekið mikinn kipp upp á við á undanförnum dögum. Útlit er fyrir frekari hækkanir þar sem stríð Bandaríkjanna gegn Íran gæti stækkað að umfangi og ekkert útlit er fyrir að því ljúki í bráð. Erlent 23. júlí 2026 21:10
Sádar verði að viðurkenna tilvist Ísrael Donald Trump segir að samkomulag sem skrifað var undir í gær milli Bandaríkjanna og Sádi-Arabíu, um að koma upp kjarnorku í síðarnefnda ríkinu, feli í sér að Sádar verði að viðurkenna tilvist Ísrael. Þar að auki verði þeir að opna formlega á pólitísk samskipti ríkjanna á milli, með því að verða aðilar að Abraham-sáttmálunum svokölluðu. Erlent 23. júlí 2026 15:02
Olíutunnan nálgast aftur hundrað dali Olíuverð hefur haldið áfram að hækka í dag, samhliða aukinni útbreiðslu átaka í Mið-Austurlöndum og hafa fjárfestar áhyggjur af flæði olíu og jarðgass frá svæðinu. Hútar í Jemen hafa hótað því að loka Rauðahafi fyrir siglingum flutningaskipa og segjast hafa gert árás á tvö olíuflutningaskip frá Sádi-Arabíu. Viðskipti erlent 23. júlí 2026 10:26
Hútar réðust á olíuflutningaskip frá Sádi Arabíu Uppreisnarmenn Húta í Jemen, sem ráða stórum hluta landsins, segjast hafa ráðist á tvö olíuskip frá Sádí Arabíu á Rauða hafinu í nótt. Sádíarabísk yfirvöld hafa staðfest árás á annað skipanna en ekki á hitt og enn er óljóst hvort Hútar hafi í raun verið þar að baki. Engan mun hafa sakað. Erlent 23. júlí 2026 07:18
Bandaríkin og Sádi-Arabía undirrita kjarnorkusaming Bandaríkin og Sádi-Arabía hafa undirritað samning sín á milli um rekstur bandarískra fyrirtækja á kjarnorkuverum í Sádi-Arabíu. Ekkert í samningnum hindrar úranauðgun Sáda til að framleiða kjarnorku, að sögn bandarískra fjölmiðla. Erlent 22. júlí 2026 21:41
Undirrita samkomulag sem opnar á úranauðgun Sáda Bandaríkjastjórn mun greina frá því í dag að hún hafi komist að samkomulagi við stjórnvöld í Sádi Arabíu um samvinnu á sviði kjarnorkumála. Það er sagt geta leitt til úranauðgunar í Sádi Arabíu. Erlent 22. júlí 2026 07:51
HM í fótbolta: Sameiningaraflið sem sundrar „Hér verða allir velkomnir árið 2026,“ sagði Gianni Infantino, forseti FIFA, við fjölmiðlamenn á síðasta ári um komandi heimsmeistaramót. Nú er ljóst að sú setning er eins röng og hún hljómaði vitleysisleg þegar hún var látin falla. Fótbolti 10. júní 2026 08:01
Mesti fjöldi aftaka á heimsvísu í 44 ár Ekki hafa verið fleiri aftökur í heiminum í 44 ár, eða frá árinu 1981. Á síðasta ári voru 2.707 einstaklingar teknir af lífi í sautján löndum. Þetta kemur fram í nýútkominni árlegri skýrslu Amnesty International um beitingu dauðarefsingarinnar. Erlent 18. maí 2026 07:58
FIFA og Sádar í eina sæng FIFA hefur gert styrktarsamning við fjárfestingarsjóð Sádi-Arabíu, PIF, sem verður stuðningsaðili komandi heimsmeistaramóts í fótbolta. PIF bætist við sádíska olíufyrirtækið Aramco sem einn aðalstyrktaraðili mótsins. Fótbolti 15. maí 2026 13:18
Skrípamark kom í veg fyrir að Ronaldo yrði meistari í gær Klaufalegt sjálfsmark Al-Nassr á elleftu stundu í gær í leik gegn Al-Hilal í sádi-arabísku deildinni, sá til þess að Cristiano Ronaldo og liðsfélagar hans í liði Al-Nassr tryggðu sér ekki meistaratitilinn en fá annað tækifæri. Fótbolti 13. maí 2026 09:30
Stórmynd Sádanna stefnir í stærsta flopp sögunnar Eyðimerkurepíkin Desert Warrior átti að vera fyrsti liðurinn í menningarátaki Sádi-Arabíu og stórmynd sem gæti keppt við það besta í Hollywood en stefnir í að verða eitt stærsta flopp sögunnar. Framleiðsla myndarinnar kostaði 150 milljónir Bandaríkjadala en eftir fyrstu vikuna er aðeins hálf milljón komin í kassann. Bíó og sjónvarp 30. apríl 2026 17:24
Ronaldo lenti í hörkurifrildi í toppslagnum Cristiano Ronaldo skoraði sitt 970. mark á ferlinum í 2-0 sigri Al-Nassr gegn Al-Ahli í sádiarabísku úrvalsdeildinni en rifrildi hans við andstæðing vakti hvað mesta athygli. Fótbolti 30. apríl 2026 13:45
Tilvistarkreppa LIV-mótaraðarinnar heldur áfram Móti LIV-golfmótaraðarinnar í Lúisíana í Bandaríkjunum hefur verið frestað og óvíst er hvort af því verði. Talið er að sádiarabískir bakhjarlar mótaraðarinnar ætli að ætta að halda henni uppi á næstunni. Golf 29. apríl 2026 14:52
Pílagrímaflug Air Atlanta á fullri ferð þrátt fyrir átök Hið árlega pílagrímaflug Air Atlanta er komið á fulla ferð, þrátt fyrir að vera nærri áhrifasvæði stríðsátakanna í Miðausturlöndum. Milli fimm- og sexhundruð starfsmenn félagsins koma að verkefninu að þessu sinni. Innlent 28. apríl 2026 18:48
Al Hilal ekki lengur í eigu ríkissjóðsins Ríkissjóður Sádi-Arabíu hefur selt fótboltafélagið Al Hilal til prinsins Alwaleed Bin Talal. Al Hilal hefur verið stórtækt á leikmannamarkaðnum en ríkissjóðurinn virðist vera að draga saman seglin. Fótbolti 17. apríl 2026 09:00
LIV heldur sínu striki í miðjum stormi Óvissa er uppi um framtíð LIV mótaraðarinnar í golfi. Sagt er að ríkissjóður Sádi-Arabíu muni draga úr eða jafnvel hætta öllum fjárframlögum en stjórnarmenn LIV blása á allar sögusagnir. Mótaröðin heldur áfram með móti í Mexíkó í dag. Golf 16. apríl 2026 09:02
Íranska þjóðin vöruð við því að nota lestar landsins í dag Ísraelsher hefur varað Írani við því að nota lestarkerfi landsins í dag og fram til klukkan 21 í kvöld. Viðvörunin var gefin út á samfélagsmiðlinum X, þar sem sagði að íbúar væru vinsamlegast beðnir um að ferðast ekki með lestum í dag eða vera nálægt lestarleiðum, þar sem það myndi setja líf þeirra í hættu. Erlent 7. apríl 2026 06:33
Krónprinsinn sagður hvetja til áframhaldandi aðgerða gegn Íran Mohammed bin Salman, krónprins Sádi Arabíu, er sagður hafa hvatt Bandaríkjastjórn til að halda árásum á Íran áfram og herða á, ef eitthvað er. Frá þessu greindi New York Times á dögunum og Guardian segist hafa þetta fengist staðfest hjá heimildarmanni innan öryggisgeira Sádi Arabíu. Erlent 27. mars 2026 11:33
Opna nýja möguleika í að binda kolefni með aðferð Carbfix Alþjóðleg rannsókn sem gerð var í Sádi-Arabíu og íslenskir fræðimenn tóku þátt í bendir til að hægt sé að binda kolefni í berg á mun fleiri stöðum í heiminum en áður var talið gerlegt. Aðferðin sem var beitt dregur verulega úr vatnsþörf bindingarinnar. Innlent 26. mars 2026 13:38
Leyniklefi áhafna uppi í rjáfri Atlanta-flugvéla Risaþotum af gerðinni Boeing 777 í flota Air Atlanta fjölgar upp í sex á árinu en þær eru núna stærstu flugvélar heims í fjöldaframleiðslu. Svo stórar eru þær að um borð er að finna leyniklefa uppi í rjáfri fyrir áhafnir sem farþegar vita almennt ekki um. Innlent 26. mars 2026 07:47